blaðið - 15.05.2007, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007
blaöið
fólki
folk@bladid.net
ALLSÉRSTÆÐ auglýsingaherferð
Öryggismiðstöðvarinnar hefur
náð athygli manna. Þar er mynd
af Lalla Johns með textanum:
„Hver vaktar þitt heimili?" Sem
kunnugt er þá er Lalli svokallaður
góðkunningi lögreglunnar og
hefur augljóslega fallist á að vinna
með Öryggismiðstöðinni að þessu
verkefni. Síðan er spurning hvort
fyrirtækið hafi tekið loforð af Lalla,
um að hann muni ekki brjótast inn
á heimili merkt Öryggismiðstöð-
inni í framtíðinni...?
BLOGGARINN Gísli Freyr Hall-
dórsson kemur með skemmtilega
sýn á útstrikunarauglýsingu
Jóhannesar í Bónus fyrir kosningar.
Hann segir að annað hljóð hefði
komið í strokkinn
hjá fjölmiðlum
og stjórnmála-
mönnum ef
Steingrímur J.
hefði keypt sams-
konar auglýsingu,
undiryfirskrift-
inni: Kaupum
mat - bara ekki
í Bónus...
KOSNINGASJÓNVÖRP RÚV og
Stöðvar 2 börðust um hylli kjós-
enda á kosninganótt. Stöð 2 aug-
lýsti nýja byltingarkennda grafík
sem átti að taka öllu öðru fram.
Virtist hún byggja á því að Sig-
mundur Ernir Rúnarsson dansaði
í kringum súlurit sem spratt fram
úr hverju kjördæmi fyrir sig. Þótt
grafíkin hafi mælst misjafnlega
fyrir þótti Sigmundur standa sig
með mikilli prýði og virtist aldrei
vefjast tunga um tönn. Hins vegar
galt Bogi Agústsson á tíðum fyrir
tæknileg mistök í grafík, sem þó
innihélt nytsamlegri upplýsingar
við upplestur talna. Verður því
gaman að sjá áhorfstölurnar, hvort
súludans Sigmundar eða bagalegur
Bogi hefur haft betur...
HVAÐ Óskaðirðu Ólafi Ragnari
fit^nst til hamingju með daginn?
ÞER? „Nei, en ég nota þá bara tækifærið og geri það hér með.“
Ásta Möller, alþitigismaður
Forseti Islands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, átti afmæli í
gær. Ásta Möller hafði áhyggjur af því um daginn að forsetinn
gætti ekki hlutleysis þegar kæmi að stjórnarmyndunarviðræð-
um. Hún leiörétti hins vegar þær áhyggjur síðar um daginn.
Lét gamlan draum rætast
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Elsta öldurhús landsins, Gaukur
á Stöng, hefur verið reist til fyrri
vegs og virðingar af athafnamann-
inum Kristjáni Þór Jónssyni, sem
er betur þekktur sem Kiddi Bigfoot.
Kidda hefur löngum dreymt um
að hreppa þetta hnoss íslenskrar
dægurmenningar.
„Mig hefur alltaf langað í þetta
hús og núna rætist gamall draumur.
Það hefur gríðarlegan karakter og
sál og á sér langa sögu. Seldi meðal
annars bjórlíki áður en bjórinn
var leyfður 1989. Mér fannst synd
hvernig farið var með húsið á tíma-
bili og langaði til að sýna og sanna
að hægt væri að reka staðinn, enda
mikill bjartsýnismaður," segir
Kiddi sem hefur mikla reynslu af
slíkum rekstri.
„Ég hef verið viðloðandi þennan
bransa í 26 ár og unnið í öllum
störfum sem reksturinn hefur
upp á að bjóða held ég. Ég var með
Tunglið á sínum tíma, Deja Vu,
Casablanca á tímabili og Berlín,
áður en það hét Astro og Pravda.
Og síðast var ég með Nelly's þannig
að maður er ekki alls ókunnugur
slíkum rekstri."
Gaukur á Stöng hefur gegnt hlut-
verki tónleikastaðar um árabil,
meðan hljómsveitir áttu varla í
önnur hús að vernda. Nafnið sækir
hann til Gauks Trandilssonar frá
Stöng sem var sterkefnaður og vel
ættaður höfðingi og kappi hinn
mesti. Talið er að bærinn Stöng hafi
eyðilagst í Heklugosinu árið 1104
og féll Gaukur fyrir hendi Ásgríms
Elliða-Grímssonar, fóstbróður síns,
væntanlega fyrir að hafa fíflað hús-
freyjuna á Steinastöðum, sem var
skyldkona Ásgríms.
„Mér fannst synd hvemig
faríö varmeö húsiö á tíma-
bili og langaöi til aö sýna
og sanna að hægt værí að
reka staðinn, enda mikill
bjartsýnismaöur“
En nóg af sögukennslunni. Stað-
urinn var opnaður um helgina við
góðar undirtektir og ekki sist fyrir
þær sakir að staðurinn er reyklaus.
Ánnars héldu böndin Buff og Vinir
vors og blóma uppi stuðinu og
strax á morgun mun hljómsveitin
Spútnik stíga á stokk ásamt DJ Dod-
delicius sem verður á efri hæðinni.
„Við stefnum á að bjóða upp á fjöl-
breytta og góða tónlist. Við höfum
í raun engan einn markhóp, þó
flestir gestir okkar séu komnir af
unglingsárunum. í rauninni verða
það böndin sjálf sem ráða mark-
hópnum hjá okkur, en við ætlum
okkur að vera þessi hefðbundni
vinalegi ballstaður á mölinni. Ég
er búinn að laga aðeins til hérna,
fríkka staðinn aðeins. Hann hafði
staðið auður í um eitt ár og því
þörf á smávægilegum breytingum.
Einnig lagaði ég hljóðkerfið, bætti
við sjónvörpum á efri hæðinni og
er staðurinn stórglæsilegur þótt
ég segi sjálfur frá, jafnvel á heims-
mælikvarða! “ segir Kiddi stoltur.
En staðurinn mun ekki aðeins
bjóða upp á góða tónlist:
„Það er stefnan að hafa þetta kaffi-
hús á daginn með léttum veitingum.
Það er verið að endurnýja eldhúsið
þannig að þetta er allt á leiðinni."
Kristján situr sveittur við að
bóka bönd fram á sumar.
„Það er hellingur bókaður, ég er
að vinna í að fá staðfestingar. Á
laugardaginn leigi ég staðinn til
Partyzone sem skartar erlendum
plötusnúð, en annars verður lítið
um svoleiðis uppákomur í fram-
tíðinni, bara einstaka skipti. Ann-
ars getur fólk fylgst með dagskrá
staðarins á slóðinni prime.is þar
sem tilkynningar um tónleikahald
eru birtar," segir Kiddi Bigfoot að
lokum.
BLOGGARINN...
L v
Utstrikuð Kolbrún
„Ég hefþað eftir áreiðanlegum
heimildum, að töluverður fjöldi
kjósenda vinstri grænna í umræddu
Rvk-kjördæmi hafi strikað Kolbrúnu
Halldórsdóttur út. Það voru því fleiri
en Árni Johnsen og Björn Bjarnason
sem fengu útstrikanir í massavís. En
þetta má auðvitað ekki fjalla um í
fjölmiðlum. Ég skal fúslega viður-
kenna, að þetta kemur mér ekki á
óvart. Það rennur úr henni eins og
vatn úr krana, óstöðvandi
orðaflaumur og það
sem verra er, að það
sem hún segir er sjald-
an neitt sérstaklega
skynsamlegt, ekki að
mínum dómi amk.
Zero Kolbrún.“
Snorri G. Bergsson ,
hvala.blog.is
Kuldaleg
kaflaskil
„Jónina Bjartmarz, fráfarandi um-
hverfisráðherra, fékk þungan skell í
þingkosningunum um helgina er hún
féli af þingi. Stjórnmálaferli hennar
virðist lokið. Fall hennar kemur
skömmu eftir margfrægt mál tengt
veitingu ríkisborgararéttar til Luciu
Celeste Molina Sierra, tengdadóttur
hennar. Þá varJónína í eldlínu mjög
erfiðrar umræðu og reifst við
Helga Seijan, frænda minn,
í eftirminnilegu Kastljósvið-
tali. Allt til loka kosningabar-
áttunnar barðist hún fyrir
því að fá afsökunarbeiðni
frá Rikisútvarpinu vegna
umfjöllunar Kastljóss.
Hún kom auðvitað
ekki. “
Stefán Friðrik Stefánsson
stebbifr.blog.is
Umboðslaus
Framsókn
„Mín skoðun ersú að hrein hneisa
væri að leiða Framsóknarflokkinn til
valda eina ferðina enn. I fyrsta lagi
hefur Framsóknarflokkurinn ekkert
umboð frá kjósendum til að sitja
ístjórn. Hvorki í hægri eða vinstri
stjórn. Formaður flokksins, sem hef-
ur ekki einu sinni traust almennings
til að vera þingmaður, talar gjarnan
um að axla ábyrgð.
Ábyrgð hans er sú
að útiloka, svo
enginn vafi leiki
á, að framsókn-
armenn gangi
á svig við vilja
kjósenda."
Þórður Víkingur Friðgeirsson
thordurv.blog.is
Su doku
5 1 7 9 4
3 7 2 6 9
9 4 5 7
8 9 7
3 8 5
9 5 2
6 2 3
7 9
2 4 6
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir i hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Þú ert ekki búinn að borða kjúklinginn þinn!