blaðið - 15.05.2007, Side 18
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 2007
blaöiö
menning@bladid.net
Framlag Listasafns Islands til Listahátíðarinnar 2007 er sýningin
Cobra Reykjavík, sem stendurtil 8. júlí. Á næsta ári verða liðin 60
ár frá því að alþjóðlegi listamannahópurinn Cobra var stofnaöur,
en hann var mikilvægur og frjór vettvangur fyrir abstraktlistina.
Tyrkjaránsins minnst
(ár eru 380 ár liðin frá Tyrkjaráninu, skelfilegasta sjóráni í sögu Is-
lands. Af því tilefni stendur Vestmannaeyjabær fyrir margvíslegum
viðburðum. Meðal annars verður sett uþp sýningin „Sjóræningjar
og kristnir þrælar - ferðir og örlög fórnarlamba Tyrkjaránsins".
Sýning um
feril Helga
Helgi Tómasson, stjórnandi San
Francisco ballettsins, er staddur
hér á landi þessa dagana og af
því tilefni verður
sett upp í and-
dyri Borgarleik-
hússins sýning
um feril Helga,
allt frá því að
hann steig sín
fyrstu spor
á sviði sem
kornungur list-
dansnemi. Sýningin er samstarfs-
verkefni Leikminjasafns íslands,
Listahátíðar í Reykjavík og Borgar-
leikhússins og er þetta í fyrsta
sinn sem ferli þessa listamanns
eru gerð slík skil hér á landi.
Sýningin verður opnuð þann 16.
maí klukkan 18.30.
Tómas R.
á Vorblóti
Latínsveit Tómasar R. Einars-
sonar leikur á Vorblótstónleikum
á NASA næstkomandi fimmtu-
dag, þann 17. maí. Sveitin er
skipuð Kjartani
Hákonarsyni
trompetleik-
ara, Samúel J.
Samúelssyni
básúnuleikara,
Ómari Guðjóns-
syni gítarleik-
ara, Matthíasi
M.D. Hemstock
trommu- og slagverksleikara, Sig-
tryggi Baldurssyni kóngatrommu-
leikara og Tómasi R. Einarssyni
bassaleikara. Hljómsveitin hefur
spilað á ýmsum djasshátíðum síð-
ustu árin og árið 2006 lék hún á
helsta djassklúbbi Moskvuborgar,
Le Club, og hélt útgáfutónleika
(því sögufræga húsi Casa de la
Amistad í Havana.
Bútasaums-
verðlaun
Sýningin „Ég bið að heilsa" er
nú hafin í Gerðubergi en þar eru
sýnd 13 bútasaumsverk í tilefni af
200 ára fæðingarafmæli Jónasar
Hallgrímssonar.
Við opnun
sýningarinnar
í gær afhenti
formaður dóm-
nefndar, Hildur
Bjarnadóttir,
verðlaun í samkeppni um besta
teppið. Fyrstu verðlaun hlaut
Guðný Benediktsdóttir fyrir verkið
Vorboðinn og Svava K. Egilsson
hlaut önnur verðlaun fyrir verkið
Hugsað heim. Sýningin stendur til
9. september næstkomandi.
ír vel heppnaðrl ferð;
Kínverskt dansævintýri
Ótrúlega mikil aðsókn
Uppselt var á allar þrjár sýningar
Islenska dansflokksins og á einni
þeirra þurfti að mæta aðsókninni
með hjálp nútímatækninnar. „I
Guangzhou átti fyrst bara að selja
um 8oo miða að mig minnir, en
vegna mikillar eftirspurnar var
fleiri sætum bætt við í salnum. En
það dugði ekki til þannig að á end-
anum var settur upp myndbands-
skjár fyrir utan salinn til þess að
þeir, sem ekki höfðu náð í miða í
tæka tíð, gætu horft á sýninguna
úr anddyrinu. í heildina voru rúm-
lega þúsund manns sem sáu okkur
þar,“ segir Hjördís og bætir því við
að hópurinn sé vitaskuld í skýjun-
um yfir þessum góðu undirtektum.
„Sum okkar höfðu aldrei sýnt fyrir
svona mikinn mannfjölda og okk-
ur hefur reiknast til að fjöldinn
sem kom á þessar þrjár sýningar
jafnist sennilega á við tvö og hálft
leikár hérna heima.“
Sáu kínverska kollega
Dansflokkurinn notaði líka
tækifærið og skellti sér á tvær nú-
tímadanssýningar hjá kínverskum
kollegum sínum. „Það var mjög
athyglisvert að sjá þær, en við sá-
um að það var töluverður munur
á kínverskum og íslenskum nú-
tímadönsurum. Þau voru á öðru
róli og virtust einbeita sér meira
að tækninni heldur en við. I okk-
ar sýningum fá dansararnir hins
vegar meira að skína í gegn og það
gefur sýningunum mikið líf, þann-
ig að ég hugsa að við höfum haft
eitthvað nýtt fram að færa þarna í
Kína,“ segir Hjördís.
Fall er fararheill
Aðspurð segir hún að vissulega
hafi komið upp smávægileg vanda-
mál í ferðinni. „Á leiðinni út lent-
um við í smá töf af því að einn
dansarinn, sem er frá Kanada, var
ekki með dvalarleyfi frá Islandi
inni í passanum sínum þannig
að við lá að hann yrði sendur aft-
ur til Kanada. Önnur lenti í því
að dvalarleyfið fyrir Kína virtist
hafa horfið úr hennar passa þann-
ig að allt útlit var fyrir að henni
yrði ekki hleypt inn í landið. En
svo kom í ljós að síðurnar þar sem
leyfið var höfðu einfaldlega límst
saman.“
Bandaríkin næst á dagskrá
I haust er fyrirhuguð sýningar-
ferð til Bandaríkjanna og munu
æfingar fyrir hana fljótt hefjast.
„Svo eigum við vonandi eftir að
fara aftur til Kína í nánustu fram-
tíð enda var markmiðið með ferð-
inni að kynna okkur með það fyrir
augum að geta farið þangað aftur,“
segir Hjördís að lokum.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
íslenski dansflokkurinn er nýkom-
inn heim úr vel heppnaðri sýn-
ingarferð til Kína. Sýningar voru
haldnar í þremur borgum þar í
landi, í Sjanghai, Guangzhou og
Peking. Hjördís Lilja Örnólfsdóttir
er ein dansaranna sem fóru í ferð-
ina og segir hana hafa gengið von-
um framar.
„Við vorum þarna úti í tvær og
hálfa viku og þetta var ótrúlega
skemmtileg ferð og frábær lífs-
reynsla,“ segir Hjördís. „Ég held
að við höfum verið um 16 manns
sem fórum saman, en á milli sýn-
inga skoðuðum við okkur um og
ákváðum til dæmis að taka erfið-
ustu leiðina alla leið upp á topp á
Kínamúrnum."
Hún segir borgirnar þrjár hafa
verið mjög ólíkar. „Sjanghai er
langnútímalegust og svona mesta
stórborgin. Þar eru rosaleg háhýsi
og til að byrja með minnir borgin
dálítið á New York. Inni á milli há-
hýsanna eru þó stór og eldgömul
fátækrahverfi þar sem fólk býr í
hálfhrundum húsum. I Guangz-
hou eru líka mörg háhýsi en and-
rúmsloftið er dálítið rólegra, enda
er þetta mun suðlægari og heitari
borg en Sjanghai. Peking er síðan
eiginlega minnst nútímaleg af
þessum þremur borgum þótt það
sé reyndar mjög mikil uppbygging
í gangi þar núna vegna Ólympíu-
leikanna sem verða haldnir þar á
næsta ári.“
Hjordis Lilja i Summer Palace i
Peking „Þetta var otrulega skemmti
leg ferð og frábær lífsreynsla."
Betri heyrn
— bætt lífsgæði #
Orgelsnillingur
á íslandi
Pantaðu tíma í heyrnarmælingu og fáðu ráðgjöf um hvernig nýjasta kynslóð
heyrnartækja getur hjálpað þér að heyra betur
Einn mesti orgelsnillingur okk-
ar tíma, Michael Radulescu, er
staddur hér á landi á vegum Kórs
Langholtskirkju, Listvinafélags
Hallgrímskirkju og Tónskóla
þjóðkirkjunnar. Hann heldur
barokktónleika á Noak-orgelið
í Langholtskirkju á uppstigning-
ardag 17. maí klukkan 20. Sunnu-
daginn 20. maí leikur hann á
Klais-orgelið í Hallgrímskirkju
og næstu þrjá daga á eftir held-
ur hann meistaranámskeið fyrir
organista í Langholtskirkju og
Hallgrímskirkju.
Michael Radulescu er prófess-
or í organleik við Tónlistarhá-
skólann í Vínarborg og mjög
eftirsóttur kennari á meistara-
námskeiðum og til tónleika-
halds.