blaðið - 15.05.2007, Side 21
blaðiö
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 29
í fullum skrúða Börnunum finnst
afskaplega spennandi að sjá lög-
regluna.
Felix vinsæll Börnin horfa meðal ann-
ars á mynd sem Felix Bergsson gerði
sérstaklega fyrir Umferðarskóiann.
h
kost enda sé það þeirra hlutverk að
fylgja fræðslunni eftir.
„Það er mjög mikilvægt að þeir
fylgi henni eftir og það er ekkert
sem kemur í staðinn fyrir að fara
með barninu sínu út að ganga, út-
skýra hætturnar fyrir því og vera
með lifandi kennslu. Börn eru svo
mikið keyrð núna og það er miklu
minna um að þau gangi eða fari
nokkuð nema í bíl. Svo þurfa for-
eldrarnir svo sannarlega að vera
börnum sínum fyrirmyndir í um-
ferðinni og aka með beltin spennt
og nota hjálm þegar hjólað er og svo
framvegis," segir hún.
Umferðarskólinn er starfrækt-
ur á vorin og að þessu sinni hófst
starfsemin seint í apríl og stendur
fram í miðjan júnímánuð. Því fylg-
ir óneitanlega mikil skiplagning og
vinna að koma skólanum á koppinn
enda nær hann til meira en 120 leik-
skóla á höfuðborgarsvæðinu auk
leikskóla á Suðurnesjum og á Akur-
eyri. „Það eru rúmlega 4000 börn í
hverjum árgangi og við erum að ná
til um 6000 barna af rúmlega 8000
sem er mjög gott,“ segir Kristín sem
lýkur sérstöku lofsorði á samstarfs-
aðila Umferðarstofu, lögregluna,
leikskólakennara og sveitarfélögin
sem taki skólanum fagnandi á vori
hverju.
Kynning
lokaverkefna
Lífeindafræðinemar við Háskólann
í Reykjavík verja lokaverkefni sín
til BSc-prófs í dag og á morgun í
húsnæði skólans að Höfðabakka
9. Verkefnin eru unnin á ýmsum
rannsóknarstofum þar sem
stundaðar eru rannsóknir til að
greina sjúkdóma hjá mönnum og
dýrum og rannsóknir sem stuðla
að aukinni þekkingu og skilningi á
eðli sjúkdóma. Leiðbeinendur og
prófdómarar eru sérfræðingar á
því sviði líf- og læknavísinda sem
verkefnið fellur undir. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Ur níunda bekk í menntaskóla
Menntaskólinn í Reykjavík og
Verzlunarskóli {slands hafa fengið
leyfi menntaráðs Reykjavíkur til að
innrita nemendur sem lokið hafa 9.
bekk í grunnskólum borgarinnar. í
báðum skólum verður fjöldi 9. bekk-
inga sem fá að hefja nám á næsta
ári takmarkaður og þurfa þeir að
auki að uppfylla viss skilyrði fyrir
skólavist. Um tilraunverkefni er að
ræða og munu báðir skólarnir skila
menntamálaráðuneyti skýrslu um
framgang þess eftir skólaárið 2007-
2008.
Yngvi Pétursson, rektor Mennta-
skólans í Reykjavík, segir að ef verk-
efnið gefist vel verði vonandi fram-
hald á því.
Komið til móts við nemendur
„Það má segja að þetta sé leið
bekkjaskólanna til að koma til móts
við nemendur sem vildu kannski ella
taka framhaldsskólaáfanga og geta
þá fengið þá metna inni í áfangaskól-
unum,“ segir Yngvi en á undanförn-
um árum hefur færst í vöxt að nem-
endur í efstu bekkjum grunnskólans
ljúki framhaldsskólaáföngum.
Verzlunarskólinn mun innrita
allt að 30 nemendur úr 9. bekk en
Menntaskólinn mun innrita nemend-
ur úr 9. bekk í einn til tvo bekki á
málabraut og náttúrubraut. Nemend-
urnir þurfa að uppfylla ýmis skilyrði
til dæmis hvað varðar einkunnir og
umsögn grunnskólans.
„Hugmyndin er að bjóða upp á
námsleið fyrir nemendur sem eru
búnir að taka hluta af námsefni 10.
bekkjar og það er gert ráð fyrir því að
nemendur hafi tekið eitt til tvö sam-
ræmd próf,“ segir Yngvi og bætir við
að greinarnar ráðist af því á hvora
brautina nemendurnir fara.
Margar fyrirspurnir
„Bekkirnir verða þá saman fyrstu
tvö árin á meðan verið er að fara yf-
ir námsefni fyrstu tveggja ára fram-
haldsskólans og síðan tvinna það við
það námsefni úr 10. bekk sem þarf
að bæta við. Það þýðir það að þetta
verða litlir bekkir og vonandi verða
þetta nemendur af svipuðu getustigi
þannig að námsefni og námsyfirferð
miðast við það,“ segir Yngvi.
Að sögn Yngva hafa margir lýst yf-
ir áhuga á verkefninu og margar fyr-
irspurnir borist um það á skrifstofu
skólans. Ekki er þó ljóst hve margir
munu sækja um enda hófst innritun
í framhaldsskóla í gær og lýkur ekki
fyrr en 11. júní.
Fjölbreytt störf
í framsækinni atvinnugrein
íslenskur sjávarútvegur er öflugur og framsækinn. Hann er í fremstu röð
í heiminum og sóst er eftir sjávarafurðum, þekkingu og þjónustu frá íslandi.
Skipstjórnar- og vélstjórnarnám í Fjöltækniskólanum, er fjölbreytt
nám sem veitir aðgang að vel launuðum störfum, bæði á sjó og í landi.
Kynntu þér skipstjórnar- og vélstjórnarnám hjá Fjöltækniskólanum á www.fti.is.
Umsóknarfrestur rennur út 10. júní n.k.
Við bjóðum einnig nám í flugstjórn til atvinnuflugs og nám á náttúrufræðibraut,
skipstækni, véltækni, raftækni og flugtækni og Diploma nám á háskólastigi.
I
I
sssst
FJÖLTÆKNISKÓLI ÍSLANDS
TÆKNi VÉIAR SIELINGAR ÚTVEGUR