blaðið - 15.05.2007, Side 26
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 2007
Risessan í myndum
Þeir sem misstu af ferðum risessunnar um bæinn um helgina geta farið inn á artfest.is en þar
er að finna myndir og myndbönd sem áhorfendur hafa sent inn af ferðum hennar og uppátækj-
um. Ekki eins áhrifaríkt og að sjá hana í eigin persónu en skemmtilegt samt sem áður...
»Vegvísir að heimili mínu
Vigdís Hlíf Sigurðardóttir er að útskrifast úr grafískri hönnun frá
Listaháskóla Islands. Lokaverk hennar var myndskreyting við bókina
Litla rauðhærða stúlkan eftir Auði Haralds. Vigdís er nýlega flutt í sína
fyrstu íbúð ásamt kærastanum sínum en hún hefur ekki haft mikinn
tíma til að koma sér fyrir þar sem vinna að lokaverkefninu hefur átt
tíma hennar allan. Hún hlakkar hins vegar mikið til að fara að koma sér
betur fyrir og það eru ýmis plön á dagskrá hvað varðar íbúðina. Vigdís
hefur meðal annars nýtt grafíska hæfileika sína og hannað veggfóður
og síðan ætlar hún að mála mynd á vegg í svefnherberginu.
Staðhættir Fyrsta ibúð eigenda á
Skarphéðinsgötu í Norðurmýrinni.
Risi í garðinum
,Við vöknuðum á laugardags-
morgun og kíktum út um glugg-
ann og uppgötvuðum þá að
það var risi sofandi í garðinum
okkar. Dóttur okkar fannst þetta
náttúrlega rosalegt og þetta var
stærsti viðburður helgarinnar
á okkar heimili,“ segir Reynlr
Lyngdal leikstjóri en risinn
sem um ræðir var að sjálfsögðu
pabbi risessunnar sem rölti um
götur bæjarins um helgina.
,Við fylgdumst síðan að sjálf-
sögðu með ferðum þeirra feðg-
ina um bæinn og skemmtum
okkur konunglega. Listahátíð á
hrós skilið fyrir að hafa skipu-
lagt þetta atriði og gaman
þegar skemmtunin höfðar til
fullorðinna jafnt sem barna. Við
fylgdumst síðan með Eurovision
og kosningavökunni á laugar-
dagskvöldið og buðum til okkar
góðum vinum í kosningapartí.
Gestirnir voru ekki allir á sömu
skoðun í pólitíkinni þannig að
það mynduðust eldheitar og
fjörugar umræður meðan á
kosningavökunni stóð. Þetta
var æsispennandi og maður veit
náttúrlega ekki ennþá hvernig
þetta á eftir að fara þannig að
það er bara spennandi að sjá.
Það er síðan bara aftur komin
vinnuvika og mikið að gera.
Hvenær er hentugast að ferðast Það má koma hve-
nær sem er... húsráðendur eru mikið heima og tesopi
er yfirleitt í boði fyrir þá sem kíkja við.
Hættur Nei, ekki svo ég viti.
Vert að sjá Appelsínuguli hraðsuðuketillinn
sem er bæði góður og nytsamlegur og eini
hönnunarhlutur húsráðanda. Síðan er falleg upp
trekkt tinkisa í miklu uppáhaldi húsráðanda en
hana fékk hún að gjöf frá mikilli kattakonu.
Heilsa Húsið er í góðu ásigkomulagi. Það
þarf kannski aðeins að mála girðinguna og þak-
ið en annars er það við mjög góða heilsu.
Samfélag og menning Húsráð-
endur eru tveir og menningin væri
eflaust skilgreind sem krúttgoth.
Matur og menning Húsráðendur eru
mikið fyrir mexíkóskan mat eftir að þau
heimsóttu landið í fyrrasumar. Allt sem er
með annað hvort chili eða lime er vinsælt
og það er alltaf til í ísskápnum.
Siðir og venjur Það er ekki mikið um siði eða venjur
en það á kannski eftir að breytast þar sem húsráðandi
er búinn með skóla og fer senn að vinna. Húsráðandi
hefur hins vegar vanið sig á að fara í heitt og gott bað á
hverju kvöldi og á bágt með að sofna ef hún sleppir því.
Dýralíf Kisan Snúður sem er 6 mánaða
býr í íbúðinni. (dag flutti svo inn lítil kisa
sem hefur fengið nafnið Doppla.
Hvað þarf að hafa með Góða skapið er það eina sem
nauðsynlegt er að koma með. Á heimilinu er til spilið Partý
og CO þannig að allir aðrir hlutir eru óþarfir.
Afmælis-Eurovision
og kosningapartí
,Föstudagurinn var æðislegur en
þá slæptist ég í bænum í góða
veðrinu með dóttur mína í kerru
og við fylgdumst með ferðum
risessunnar," segir Póra Tóm-
asdóttir sjónvarpskona. „Mér
fannst risessan alveg stórkost-
leg en stelpan mín var ekki mikið
að kippa sér upp við hana enda
bara ársgömul. Kosningadagur-
inn var síðan mjög skemmtilegur
en þá fór ég í matarboð í tilefni
af afmæli systur minnar. Ég
fylgdist að sjálfsögðu með Euro-
vision, þó meira af skyldurækni
þar sem Eiki var dottinn út en
það fannst mér mjög leiðinlegt.
Ég hefði viljað sjá Úkraínu eða
Rúmeníu vinna þannig að þetta
var ákveðið svekkelsi. Eftir
keppnina kíkti ég í kosningapartí
til vina minna og tók síðan allt
partíið með mér í kosningapart-
íið uppi í Sjónvarpi þar sem
stuðið hélt áfram fram eftir nóttu.
Ég vaknaði síðan snemma á
sunnudaginn og fór út á land til
að taka upp efni fyrir Kastljósið.
Forkastanleg fordæming
Myndin The Condemned, eða
hinir fordæmdu, „skartar" hinum
sterkbyggða Steve Austin, sem er
þekktur fjölbragðaglímukappi í
Bandaríkjunum og sjálfum Vinnie
Jones, fyrrverandi fótboltafanti úr
enska boltanum. Söguþráðurinn
er einfaldur enda byggður á tölvu-
leik. Tíu forhertir fangar með
yfirvofandi dauðadóm eru látnir
dvelja saman á eyðieyju af siðlaus-
um sjónvarpsframleiðanda sem
ætlar sér að græða á blóðugum bar-
dögum fanganna.
Eyjan er þakin sjónvarpsmynda-
vélum sem sýna „raunveruleikann'
beint á Netinu og þurfa netverjar
auðvitað að greiða fyrir áhorfið,
sem rennur í vasa sjónvarpsfram-
leiðandans. Allir fangarnir eru
með sprengju um fótinn, sem
springur að loknum 30 klukkutím-
um og því brýnt að standa uppi
Myndin er ein klisja út í gegn og
fannst undirrituðum hann hafa séð
myndina oft áður. Leikurinn er til-
gerðarlegur og handritið meingallað.
Hugmyndin er svosem ágæt þó hún
sé ófrumleg. Hún er einfaldlega of
illa útfærð. Slagsmálaatriðin eru
klén og myndin nær aldrei flugi. Ég
fordæmi því Hina fordæmdu.
sem sigurvegari. Að drepa eða
verða drepinn. Myndin er byggð á
sömu hugmyndum og The Runn-
ing Man og Battle Royale með
smá Survivor-ívafi. Þó myndin
veki vissulega upp siðferðistengd-
ar spurningar og geti talist sem
gagnrýni á úrkynjaða sjónvarps-
skemmtun samtímans, verður
myndin seint talin góð. Ofbeldið
er vissulega til staðar en vekur
litla sem enga spennu.
The Condemned
Laugarásbíó, Háskólabíó CPl
Scott Wiper
Steve Austin, Vinnie Jones, Rick Hoffman, Robert Mammon
Trausti Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net
| Kvikmyndir ★ ;
1
Greiðslukjör
íallt að 36
mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræðingur með
réttindi til sjónmælinga og
linsumælinga
§Gleraugað
Bláu húsin við Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
Sími: 568 1800
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is