blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007
blaðið
VEÐRID í DAG
Rigning suðaustanlands
Noröaustlægari og rigning öðru
hverju suðaustanlands, annars þurrt
og bjart veður á köflum. Hiti 3 til
12 stig, hlýjast suðvestanlands, en
sums staðar vægt næturfrost.
Á FÖRNUM VEGI
Hvaða flokka viltu sjá
í ríkisstjórn?
ívar Anton Jóhansson
„Allt nema Sjálfstæðisflokkinn.“
Björg E Sigfúsdóttir
„Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk."
Ragnheiður Hera
Sigurðardóttir
„Vinstri græna og Samfylkingu."
Sigrún Katrín Þórarinsdóttir
„Vinstri græna, Samfylkinguna og
Framsóknarflokkinn.“
Sigurður Þórarinsson
„Samfylkinguna."
ÁMORGUN
Enn rigning
Austan og norðaustan 10 til 8
m/s. Rigning sunnan- og aust-
anlands þegar líður á daginn,
annars úrkomulítið. Hiti 2 til
10 stig, hlýjast vestanlands.
VÍÐA UM HEIM I
Algarve 26
Amsterdam 14
Barcelona 20
Berlin 11
Chicago 25
Dublin 11
Frankfurt 12
Glasgow 12
Hamborg 14
Helsinki 13
Kaupmannahöfn 13
London 14
Madrid 19
Montreal 12
New York 17
Orlando 22
Osló 12
Palma 21
París 16
Stokkhólmur 15
Þórshöfn 6
Héraðsdómur
Reykjavíkur Sýknaði
þrjá drengi afnauðg-
unarkæru ungrar
stúlku, þrátt fyrir að
telja framburð drengj-
anna ekki endilega
trúverðugan. Fram-
burður stútkunnar
þótti stangast á.
■ æ*w.-ar**.i**K. t
Kynferðisbrotamál:
Þrír unglingspiltar
sýknaðir af nauðgun
■ Samræði sannað ■ Reikull framburður ■ Annmarkar á skýrslutöku
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Þrír piltar, 18 og 19 ára gamlir,
voru sýknaðir fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær af ákæru um
kynferðisbrot gegn stúlku sem var
16 ára gömul er atburðurinn átti
sér stað. Var þeim gefið að sök að
hafa notfært sér aðstöðu- og afls-
níun til að þröngva stúlkunni
til samræðis við sig, hvern
á fætur öðrum, er hún var
gestkomandi á heimili eins
þeirra. Piltarnir héldu því
hins vegar fram að stúlkan
hafi viljug tekið þátt í
samförunum.
Vinir stúlkunnar
sóttu hana eftir at-
burðinn og sagði vin-
kona stúlkunnar að
henni hafi greinilega
verið mjög brugðið.
Henni var skutlað
á neyðarmóttöku
þar sem tekin voru
sýni sem staðfestu
að samræði hefði
átt sér stað. Stúlkan
hélt því fram við
lækni neyðarmót-
tökunnar að henni
hefði verið haldið
niðri þrátt fyrir að
hafa sparkað frá sér og mótmælt.
Stúlkan gaf einnig skýrslu í
Barnahúsi, þar sem hún játaði
því aðspurð að henni hefði verið
nauðgað. Sagðist hún einnig hafa
grátið og öskrað er samræðið átti
sér stað, en sér hafi verið skipað að
þegja og þaggað hefði verið niður
í sér. Barnavernd Reykjavíkur
kærði málið til lögreglunnar og
í kjölfarið voru teknar tvær
skýrslur af stúlkunni til
viðbótar.
f dómi Hæstaréttar segir
að óumdeilt sé að unga
fólkið hafi verið í íbúð eins
ákærða og að ákærðu hafi
allir haft samræði við
stúlkunaþar. í dómnum
segir einnig að þvi sé
hvorki haldið fram
að framburður pilt-
anna sé trúverðugur
né að stúlkan hafi
vísvitandi sagt ósatt.
Hins vegar hafi pilt-
arnir verið sýknaðir
þar sem reikull og
margsaga fram-
burður stúlkunnar
sé haldlítill gegn
neitun ákærðu og
nánast samhljóða
frásögn þeirra
um málsatvik.
'«*«' 'i' 1 , * Dómarar bera
ábyrgð á skýrslu-
I tökum sem á að
nota fyrir dómi Bragi Guðbrands-
son, forstjóri
Barnaverndarstofu
Þá fundust við skoðun á neyðarmót-
töku ekki ummerki á líkama stúlk-
unnar um að nauðung hafi átt sér
stað og seinni skýrslurnar tvær bera
vott um gloppótt minni og stangast
í einhverjum atriðum á.
Einnig kemur fram að dómurinn
hafi metið frásögn stúlkunnar í
ljósi annmarka við skýrslutökuna
í Barnahúsi, „en einsætt [sé] að
stúlkan hafi verið leidd áfram við
skýrslugjöf sína og ekki fengið ráð-
rúm til að skýra frá mikilvægum
staðreyndum málsins í sjálfstæðri
frásögn".
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu sem rekur Barna-
hús, segir að um könnunarviðtal
hafi verið að ræða sem ekki eigi að
byggja dómsmál á. „Dómarar bera
lögum samkvæmt ábyrgð á skýrslu-
tökum sem á að nota fyrir dómi.
Hins vegar gilda sömu reglur um
könnunarviðtöl og slíkar skýrslur.
Ef rétt er að spurningar hafa verið
leiðandi þá er það alvarlegt mál sem
við þurfum að skoða vel.“
Bandaríkin:
Wolfowitz í
vandræðum
Hópur yfirmanna við Alþjóða-
bankann segir augljóst að Paul
Wolfowitz hafi brotið lög bank-
ans og að stjórn bankans ætti því
að hugleiða það hvort hann geti
áfram veitt bankanum forystu.
Wolfowitz mun fljótlega
koma fyrir stjórn bankans. Þá
kemur í ljós í nýrri skýrslu vegna
rannsóknar á embættisfærslum
Wolfowitz að hann hafi beitt
starfsfólk Alþjóðabankans hótun-
um til þess að koma í veg fyrir
að upplýsingar um að hann heíði
látið hækka laun hjákonu sinnar
yrðu opinberar. Skýrslan hefúr
verið send til stjórnar bankans.
Braust inn þrisvar:
Vildi eignast
hjálpartæki
Átján ára piltur var handtek-
inn í gær etór að hafa ítrekað
reynt að steflHrörum úr versl-
un á höfuðborgarsvæðinu
sem selur kynlífsleikfong.
Drengurinn reyndi að stela
úr sömu verlsun á fóstudag en
komst ekki undan með vörurn-
ar. Brotist var inn í verslunina
aðfaranætur laugardags og sunnu-
dags. Meðal annars var stolið
stinningartæki fyrir karlmenn.
Eftir að eigendur höfðu skoðað
öryggismyndavélar sem eru á
staðnum kom í ljós pilturinn
var að verki i bæði skiptin.
Chrysler Grand
Voyager Disel.
2,8L CRD ey&sla 8,5 L á 100/km, 7 manna,
leður, tvær rafknúnar hliðarhurðir, bakkskynjari,
álfelgur, 6 diska CD í mælaborái, km mælir. ofl.
Tveggja ára ábyrgð. Þjónustaður af Ræsi.
Til sýnis á staðnum.
Verft 4.490 þús.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17
Sími: 577 3344
Landhelgisgæslan við æf-
ingar Öllum var bjargað nema
tveimur er Dísarfell sökk.
Samskip dæmt til að greiða ekkju skipverja á Dísarfelli bætur:
Lést vegna svifaseins skipstjóra
Samskip eiga að greiða ekkju rúm-
lega i,8 milljónir króna auk tveggja
prósenta vaxta í tæp átta ár. Dómur-
inn var kveðinn upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Maður konunnar
lést er flutningaskipið Dísarfell
sökk. Hún fór fram á rúmar átta
milljónir í bætur auk vaxta.
Dómurinn er byggður á þvi að
skipstjórinn hafi gert mistök þar
sem hann kallaði ekki nægilega
skjótt eftir neyðaraðstoð. Vélstjórar
hafi yfirgefið vélarrúmið klukkan
fjögur um nóttina en kallað var á
hjálp rúmum fimmtíu mínútum
síðar. Unnt hefði verið að bjarga
skipshöfninni áður en skipinu
hvolfdi og áður en áhöfnin fór í
sjóinn hefði skipstjórinn brugðist
fyrr við.
1 dómnum kemur fram að sá
Tnjpnai^
látni hafi sagt konu sinni að hann
hefði haft mjög mikla vantrú á skip-
inu og talið að það vatn sem hann
hafði til afnota til matargerðar væri
bæði blandað olíu og sjó. Hann hafi
kvartað yfir þessu við yfirmenn
sína og útgerðina, en þeir hefðu
þagað þunnu hljóði.
Hann fékk hjartaáfall og lést er
hann lenti í sjónum.