blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 19

blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 19
blaðið íþróttir ithrottir@bladid.net MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 2007 GUL SPJOLD litu dagsins Ijós í fyrstu umferð Landsbanka- deildarinnar í knattspyrnu sem nýlokið er. Tvö rauð fóru einnig á loft. SINNUM hafa felog fra Spam unmð titillinn í Meistaradeildinni en þann 23. maí geta Englendingar eða ítalir jafnað það met eftir því hvort Milan eða Liverpool ber sigur úr býtum. kbrrij LEIÐ ESPANYOL Espanyol - Austria Vín 1-0 Ajax - Espanyol 0-2 Espanyol - Zulte Waregem 6-2 Sparta Prag - Espanyol 0-2 Espanyol - Livorno 4-1 Espanyol - Maccabi Haifa 4-0 Espanyol - Benfica 3-2 Espanyol - Werder Bremen 5-1 LEIÐ SEVILLA: Sevilla-AZ Alkmaar 1-2 Grasshoppers - Sevilla 0-4 Sevilla — Braga 2-0 Liberec - Sevilla 0-0 Sevilla - Steaua Bukarest 3-0 Sevilla - Shaktar Donetsk 4-3 Sevilla - Tottenham 4-3 Sevilla-Osasuna 2-1 Smáþjóð á leika 23 frjálsíþróttamenn frá Islandi munu taka þátt í Smáþjóðaleik- unum sem fram fara í Mónakó í byrjun næsta mánaðar. Tólf karlar og ellefu konur hafa verið valin og eiga íslendingar kepp- endur í öllum greinum. Hoflegt lokahof Handknattleikssamband islands heldur lokahóf sitt í kvöld en ólíkt minni pomp og prakt fylgir því en hjá Körfuknattleikssam- bandinu sem hélt sitt lokahóf fyrir skömmu. Engir sérstakir kostunaraðilar koma að hófi HSÍ sem er 50 ára á þessu ári. Fyrir vikið verður hljómsveitin ekki jafn þekkt og sú sem lék fyrir dansi hjá körfuboltafólkinu. /l\iK afaBenítez 1-^ undirbýr XVnúUð sitt af kappi fyrir úrslitaleikinn í Meist- aradeildinni á miðviku- daginn kemur. Leika leikmenn Liverpool listir sínar á La Manga-svæðinu á Spáni en þar er hitastig með svipuðum hætti og gerist í Aþenu auk þess sem foreldr- ar Benítez búa ekki ýlga langt frá. Það renna á marga tvær grímur ef ekki y þrjárþegarí ljós kemur að risa- kaupin á David Beckham eru ekki einu kaupin hjá Los Angeles Galaxy í Bandaríkj- unum. Hinn litríki og að margra mati lélegi Abel Xavier sem nú síð- ast lék með Middlesbrough og Ev- erton þar áður hefúr söðlað um og skartar nú nýtískulegum hárgreiðsl- um sínum í Hollywood. Kannski kappinn verði næsti Vinnie Jones? s l ami grautur í annarri . skál. Nú hefur Sam f Allardyce tekið við taumum Newcastle United og ljóst að meðal- mennska verður ráðandi þar næstu leiktíðir eins og raunin hefúr verið með Bolton. tj i-ji ykilmenn eru jafnanhvíldirhjá /þjálfara brasilíska liðsms Brasileirao en þar leikur hinn spjátrungslegi Romario listir sínar.Hefurverið hlé í deildinni undanfarið að auki og útskýrir það af hverju fréttir af þúsund marka mark- miði Romario fóru ekki lengra að sinni. Vill hann meina að hann sé með 999 mörk undir beltinu og mun því eiga góða möguleika að setja þúsundasta markið í næsta leik sem er heimaleikur. Forráðamenn Manchester Cityæda sér aðráðaþjálfaraaf meginlandinu og færa þannig ferskan blæ inn ístirðanklúbbinn en Stuart Pearce var látmn taka pokann í vikunni eftir enn eitt fyrir-neðan-meðal- lag-tímabil í vetur. Það gæti þó breyst enda er fyrrum forsætisráð- herra Taílands að reyna að kaupa félagið. Fint að hafa eitthvað fyrir stafúi þegar manni er velt úr stóU. ■ Tvö spænsk félög ■ Tveir markahrókar ■ Tvísýnt Gangsetning Um næstu helgi fer fram fyrsta mótið í Kaupþingsmótaröðinni sem er íslandsmótið eina og sanna. Flestir af bestu kylfingum landsins, sem ekki eru að freista gæfunnar erlendis, eru skráðir til leiks en mótið er engu að síður opið ölium þeim sem eru félagar í íslenskum golfklúbbum. Feitum hesti ekki riðið Stórlið KR í knattspyrnunni hóf leik á íslandsmótinu með tapi á heimavelli gegn Keflvíkingum. Var ekki að sjá á leikmönnum liðsins að þeir hefðu hafið æf- ingar mun fyrr í vetur en önnur lið en það hefur verið raunin í vesturbænum undanfarin ár. í öllu falli er Ijóst að ekkert félag sem vinnurekki heimaleiki sína mun hampa titli þegar haustar. % ■ i * r> . ■ í 1 i'i Hjól atvinnulífsins Átakið Hjólað í vinnuna gengur vel samkvæmt tölum frá íþrótta- sambandi islands. Eru þátttak- endur rúmlega 6200 talsins eða um þúsund fleiri en á sama tíma fyrir ári. Koma þátttakendur frá 366 fyrirtækjum sem verður að teljast gott. Jafnastir jafningja Phoenix Suns jafnaði rimmu sína við San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA og hafa bæði lið unnið tvo leiki. Fjóra slíka þarf til að komast áfram í úrslitakeppni vesturdeildar og sigurliðið þaðan keppir um NBA- meistaratitilinn sjálfan. Rígur þessara félaga er það mikill að slíkt svíður en þó kannski ekki jafn mikið og sigri flamencosveit Sevilla en það lið hefur á síðustu leiktíðum orðið skæður keppi- nautur og er enn í harðri baráttu í spænsku deildinni. Sevilla er einnig að verja titil sinn en takist það verður liðið að- eins það annað í sögunni sem slíkt gerir. Aðeins Real Madrid, 1985- 1987, hefur leikið þann leik áður. Og víst er að Sevilla er sigurstrang- legra enda með breiðari og sterk- ari mannskap en á móti kemur að pressan er á þeim og jafnvel aðdá- endur Espanyol eru fyrir löngu orðnir sáttir við sína menn fyrir að hafa þó komist alla þessa leið. Spænskir þegnar hafa ekki haft af miklu að státa í Meistaradeild- inni í vetur og var öllum stórliðum landsins, Barcelona, Real Madrid og Valenciu, sópað snyrtilega undir teppi löngu áður en nokkur heimamaður hafði stunið upp eins og einu Olé! I kvöld hljóta þeir þó nokkra uppreisn æru því engu skiptir hver niðurstaðan verður; spænskt lið mun vinna UEFA-keppnina í ár. Það eru blendnar tilfinningar meðal íbúa hinnar fögru Barcel- ona. „Smáliðið” Espanyol getur í kvöld orðið sér úti um fræga evr- ópska dollu en ekkert slíkt tæki- færi gefst hinu heimsfræga stórliði Barcelona hinum megin í bænum. Úrslitaleikurinn í UEFA-keppninni fer fram í kvöld: m Freddie Kanoute: Hefur blomstraö 1 hlýrra loftslagi en finnst i London. Marka kóngur liðsins en alls ekki sá eini sem skorað getur reglulega. Hann þarf þó að asanna sig í UEFA enda aðeins sett inn þrjú stykki sem er fyrir neðan hellur miðað við skotskó þá er hann notar í deildinni. Daniel Alves: Snillingur af guðs nað með bolta og ýmislegt annað. Einn sá besti i spænska boltanum og boltanum, punktur Spilar oft vinstra megin í vörn enda með alla eiginleika landa sins Roberto I Carlos nema bara fljótari, mun betri varnarmaðurog með betri klippingu. Sevilla: Spilar friskasta boltann á Spáni i tlag og er ennfremur besta spænska félagið þegar þeir ná toppleik. Sem næst reyndar ekki oft enda hópurinn litill og ei í baráttu á mörgum vígstöðvum. Á enn möguleika á spænska meistaratitlinum. HELSTU LEIKNIENN: Ivan de la Pena: Fer að styttast í annan endann hjá þessari fyrrver- andi vonarstjörnu Spánverja sem keypti sér mikla hillusamstæðu und ir bikara og verðlaunagripi fyrir all- Smörgum árum. Hillurnar standa tómar og safna ryki en nú er tækifærið og það mun hann gripa enda gefast þau ekki svo stór aftur með þessu félagi. Walter Pandiam: Endurnyjun lif- daga hjá Pandiani eins og Kanoute eftir hræðilegt tímabil I Englandi. Hefur skorað ellefu mörk í keppn- inni og er langefstur á blaði. Var í gullliði IIUMjLjJj Deportivo fyrir nokkrum árum og þekkir vel and- I rúmsloftið í stærri leikjum. Espanyol: Toppmarkvarsla og soknac menn sem best virðast finna sig í Evrópu- keppnínni. Litlum sögum feraf sérstöku gengi þelrra i deildinni en hingað eru þeir komnir langt fram úr væntingum og press an minni en á brunahönum i Mjóafirði.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.