blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 18
-30 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007
blaðið
neytend
neytendur@bladid.net
Húsaleigubætur
Ný og endurbætt útgáfa bæklings um húsaleigu-
bætur er komin út og hefur þegar veriö dreift.
Nálgast má bæklinginn á pdf-formi á heimasíðu
félagsmálaráðuneytisins, felagsmalaraduneyti.is.
Endurnýtanlegir pokar
Með því að nota endurnýtanlega poka (til dæmis
úr striga) undir matvörur getur fólk sparað sér
dágóðar upphæðir á ári hverju auk þess sem það
leggur sitt af mörkum til umhverfisins.
Endurunninn
úrgangur
Um þessar mundir eru margir í
óðaönn að koma görðum sínum
í gott horf fyrir sumarið. Mikill
úrgangur fellur oft til við garðhreins-
*■ unina svo sem gras, mosi, lauf og
greinar. Sveitarfélögin aðstoða
gjarnan garðeigendur við að losna
við úrganginn á tilteknum dögum
en einnig má benda fólki á að tekið
er á móti garðaúrgangi á endur-
vinnslustöðvum Sorpu. Vilji fólk
skila úrgangi sínum þangað skal
hafa í huga að flokka þarf hann á
eftirfarandi hátt:
1. Trjágreinar
2. Gras
3. Annar garðaúrgangur svo sem
blómaafskurður, illgresi eða þökuaf-
gangar
4. Grjót og jarðvegur.
Ekki er hægt að taka við
trjágreinum á endurvinnslustöðinni
við Miðhraun í Garðabæ og hefur
Sorpa bent garðeigendum í Hafn-
arfirði, Garðabæ og á Álftanesi á
að fara með greinar á endurvinnslu-
stöðina við Dalveg í Kópavogi eða
—i Sævarhöfða í Reykjavík.
Diskum bjargað
Símabær hefur hafið innflutning á
slípimassa sem vinnur gegn yfir-
borðsskemmdum á geisladiskum.
Slíkar rispur geta valdið því að
geisladiskarnir hætta að virka.
Rispur valda Ijósbroti við aflestur á
diskum sem gerir það að verkum
að þeir verða ólesanlegir þó að
gögn innar á þeim séu óskemmd.
Slípiefnið má nota á allar tegundir
geisladiska þar með talið DVD-
diska og Playstation-diska. Efnið
er selt í túpu sem dugar á allt að
10 diska.
Með hækkandi sól og auknum
hlýindum fjölgar börnum að leik
utandyra. Ýmis tæki og tól sem leg-
ið hafa í geymslu um veturinn eru
dregin fram og leikskvæði fyllast
af börnum á reiðhjólum, hlaupa-
hjólum, hjólabrettum, línuskautum,
stökkskóm og hvað þessi tæki öll
heita. Þó að fjör færist í leiki barna á
sumrin fylgir því ekki eintóm gleði
því að leiktækin geta einnig reynst
slysavaldar og því oft stutt milli hlát-
urs og gráts. Draga má úr hættunni
á að slys eigi sér stað til dæmis með
því að huga vandlega að öryggisbún-
aði, notkun tækjanna og ástandi
þeirra.
Mikilvægt er að börn fari eftir
þeim umgengnisreglum sem gilda
um þessi tæki að sögn Sigrúnar A.
Þorsteinsdóttur, sviðsstjóra slysa-
varnasviðs Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Hún tekur trampólín
sem dæmi en þau hafa notið mikilla
vinsælda hér á landi á undanförn-
um árum.
„Þau eru náttúrlega frábær leik-
tæki svo framarlega sem farið er eft-
ir þeim leiðbeiningum sem fylgja.
Það þarf náttúrlega að festa þau rétt,
það þarf að vera öryggisnet og það
þurfa að vera ákveðnar umgengnis-
reglur við þau,“ segir Sigrún og bæt-
ir við að alltof algengt sé að börn séu
að brjóta bein og tennur þegar þau
leika sér á trampólínum. „Mjög oft
er það vegna þess að það vantar ör-
yggisnetið eða það eru of mörg börn
að hoppa á trampólíninu saman.“
Ástand tækjanna
Upplagt er að nota tækifærið þeg-
ar tækin eru dregin fram úr geymsl-
unni á vorin til að yfirfara ástand
þeirra og gildir þá einu hvort um er
að ræða trampólín, reiðhjól eða eitt-
hvað annað. Athuga skal hvort allt
virkar eins og það á að gera, ekki
síst öryggisbúnaður eins og heml-
ar. Ef fólk verður vart við slit eða
bilanir á að kippa því í liðinn áður
en tækið er tekið í notkun. Síðan er
mikilvægt að fylgjast reglulega með
ástandi tækisins eftir því sem líður
á sumarið.
Ástand tækjanna helgast oftar
en ekki af notkun þeirra. „Það er
til dæmis ekki sama hvar þú ert á
línuskautum. Ef maður er mikið á
þeim þar sem er sandur eyðilegg-
ur það legurnar. Hvernig er ástand
dekkjanna? Maður sér það til dæm-
is stundum á línuskautum og hjóla-
brettum að dekkin eru orðin svo
eydd að þau eru næstum orðin kant-
ótt,“ segir Sigrún.
Ábyrgðin foreldranna
Mismunandi er eftir árum hvaða
leiktæki njóta mestra vinsælda
meðal barna, eitt sumarið var það
hlaupahjól, annað sumarið tramp-
ólín og nú virðast hinir svo kölluðu
stökkskór ætla að verða vinsælir.
„Þessir stökkskór geta náttúrlega
valdið mjög ljótum slysum, sérstak-
lega þegar krakkar eru orðnir það
þungir að þeir eru komnir upp í
fullorðinsstærðina þvi að þá eru
þeir farnir að ná svo svakalegri hæð,“
segir Sigrún og bendir á að afar mik-
ilvægt sé að viðeigandi öryggisbún-
aður sé notaður, það er hjálmur, hlíf-
ar á olnboga, úlnlið og hné. Sigrún
leggur áherslu á að ábyrgðin á því að
krakkar noti viðeigandi öryggisbún-
að á stökkskóm, hjólum eða öðrum
tækjum liggi fyrst og fremst hjá for-
eldrum þeirra. Enn fremur þarf að
gæta þess að börnin noti öryggisbún-
aðinn á réttan hátt. „Við sjáum það
aðallega varðandi hjálmana að þeir
eru rangt stilltir og sitja aftarlega á
hnakkanum í stað þess að sitja beint
ofan á höfðinu. Stundum sér maður
líka krakka með handónýta hjálma
en það er samt kannski minna um
það núna en áður því að hjálmar
hafa lækkað í verði," segir Sigrún
sem mælir jafnframt með því að for-
eldrar fylgist með stillingu hjálms-
ins öðru hverju.
Lagfæringar taka of langan tíma
Slysagildrur geta einnig leynst á
opinberum leiksvæðum til dæmis
á vegum sveitarfélaga. Fulltrúar
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
eru með reglulegt eftirlit með slík-
um svæðum og senda bæjarfélög-
um ábendingar ef þeim finnst ein-
hverju ábótavant. Ekki er þó alltaf
víst að bragarbót verði gerð þar á
að sögn Sigrúnar.
„Það er mjög mismunandi hvort
það er gert og eftir hve langan
tima. Auðvitað fer það líka eftir því
hversu mikið þarf að gera. Það er
sama hvort um er að ræða umferðar-
málin eða svona lagfæringar, okkur
finnst það taka alltof langan tíma að
laga þetta,“ segir Sigrún og bendir á
að oft séu gerðar athugasemdir við
svipuð atriði. Oft er undirlag leik-
tækja ekki nógu mjúkt, tækin sjálf
geta verið gömul og úr sér gengin
og samræmast ekki nútímastöðlum.
Þá standa oft hlutir upp úr jörðinni
sem geta reynst hættulegir svo sem
staurar, spýtur og naglar.
„Þegar almenningur sér hluti sem
honum finnst vera eitthvað bogið
við og geta valdið slysum hjá krökk-
um þarf hann að vera meðvitaður
um að láta vita af því og fara fram
á að það sé lagfært. Eftir því sem
fleiri leggjast á plóginn þeim mun
meiri líkur eru á því að hlutirnir séu
í lagi,“ segir Sigrún A. Þorsteinsdótt-
ir að lokum.
Ji
Bygginga félag
Smiðir
Óskum eftir smiðum í mælingu eða tímavinnu
næg verkefni framundan
Leggjum áheyrslu á skemmtilegt starfsumhverfi, öflugt
starfsmannafélag og ferðasjóð. Sterkt og gott fyrirtæki
Upplýsingar gefur Kári Bessason í síma
693-7004 en einnig er hægt að sækja um á www.jbb.is.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s: 544-5333
Kolefnisjöfnun
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, kolefnisjafnaði fyrsta einka-
bílinn hér á landi við hátíðlega at-
höfn í Grasagarði Reykjavíkur i gær.
Athöfnin var jafnframt táknrænt
skref um víðtækar aðgerðir til að
sporna við loftslagsbreytingum. Við
sama tækifæri var vefsíða Kolviðar,
kolvidur.is, opnuð en þar geta ein-
staklingar og fyrirtæki jafnað kol-
efnislosun sína vegna samgangna.
Kolviður er sjóður sem miðar
að því að binda kolefni í gróðri og
jarðvegi í þeim tilgangi að draga úr
styrk koldíoxíðs (CO2) i andrúms-
lofti. Hlutverk sjóðsins er að gera
landsmönnum kleift að jafna kolefn-
islosun sína vegna samgangna með
skógrækt.
Einnig var undirritaður samn-
ingur við Landgræðslu ríkisins
um landið Geitasand á Suðurlandi
sem verður fyrsta uppgræðslu- inn stuðla að bindingu kolefnis
svæði Kolviðar. Á því mun sjóður- með markvissri skógrækt.