blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 27
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007 39
Uppruni hetjanna:
Raunveruleikaþáttur
fyrir ofurhetjur
NBC-sjónvarpsstöðin kynnti á dögunum haust-
dagskrána sína og sést þá greinilega að gott
gengi Heroes hefur sannfært menn á þeim
bænum um að þættir um yfirnáttúrulega
hæfileika séu málið í dag. Sjónvarpsstöðin
mun frumsýna þrjá nýja þætti sem fjalla um
þetta málefni á komandi hausti og verður
spennandi að sjá hvernig til tekst. NBC
hefur á síðustu árum gengið illa að
hitta á réttu formúluna þegar kemur
að sjónvarpsefni og hefur hver þátta-
röðin á fætur annarri misst marks
með tilheyrandi fjárhagstjóni.
Eini Ijósi punkturinn í dagskrá
NBC er hin geysivinsæla þátta-
röð Heroes sem hefur slegið í
gegn um allan heim. Til þess að
fylgja eftir vinsældum þáttanna
mun NBC í haust hefja sýningar
á annarri þáttaröð í Heroes-heim-
inum sem heitir Heroes: Origins. í
þáttunum er kíkt á uppruna hetjanna
og eru nýjar hetjur kynntar til sögunnar í
viku hverri og munu sjónvarpsáhorfendur
velja í lok þáttaraðarinnar hvaða hetjur
verða skrifaðar inn í hina raunverulegu
Heroes-seríu.
Sirkus klukkan 20.20 Stöö 2 klukkan 20.05
Grenjað í græjurnar Er ég feit i þessu?
I American Inventor er leitað
eftir nýjum uppfinningum sem
gætu slegið í gegn. Verðandi
uppfinningamenn víðsvegar
um Bandaríkin fá nú tækifæri
til að kynna uppfinningu sína
og nokkrir útvaldir fá peninga
til að þróa hana. Að lokum mun
einn heppinn uppfinningamaður
standa uppi sem sigprvegari
og fær hann eina milflón dollara
í vasann. Grátur og gnístran
tanna er aldrei langt undan
og er erfitt að finna þann sem
ekki tárast yfir sorgarsögum
þátttakenda. Þættirnir koma
frá höfundum American Idol og
sjálfum Simon Cowell.
Oprah er án nokkurs vafa vinsæl-
asta sjónvarpskona heimsbyggð-
arinnar. Henni er ekkert óviðkom-
andi, hvort sem það er að elta
uppi barnaníðinga, stuðla að
menntun fátækra barna í Afríku
eða að gefa gestum sinum glæ-
nýja bíla. i kvöld svarar uppáhalds-
læknir Opruh, dr. Oz, spurningum
um botox, tannhvíttun, appelsínu-
húð og allt annað sem brennur á
vörum áhorfenda. Missið ekki af
svörunum við öllum mikilvægu
spurningunum.
RÚV klukkan 21.35
Gott læknagrín
Skjár einn klukkan 17.30
Víti til varnaðar
Scrubs fjallar um líf og störf
lækna á Sacred Heart-spítalanum.
Ekkert frumlegt við það svo sem,
en ágætis aukapersónur gera
þennan grínþátt betri en flesta
læknaþætti. Zack Braff sem leikur
aðalpersónuna, dr. John Dorian,
skilar sínu einnig ágætlega.
Sérstaklega eru eintöl hans við
sjálfan sig skemmtileg, þótt þau
séu örlítið klisjukennd á köflum.
Sá sem ber þáttinn uppi er þó
óneitanlega John C. McGinley
í hlutverki dr. Cox, þreytts og
biturs læknis sem er lærifaðir dr.
Dorians. Húsvörður sem leggur dr.
Dorian í einelti kemur einnig með
mjög skemmtileg innslög í þáttinn,
sem og óendanlega heimskur og
suðrænn skurðlæknir.
Að horfa á Melrose Place er mjög
góð skemmtun, því verður ekki
neitað. En þó kannski ekki á sömu
forsendum og höfundar þáttanna
hugsuðu sér. Þættirnir bera ákveðnu
tímabili í menningarsögunni gott
vitni - hvar annars staðar en mögu-
lega í fyrstu Friends-þáttaröðunum
er hægt að finna jafn hryllilegt sam-
safn flíka? Og annar eins hryllingur
í leiklist hefur varla sést í sjónvarpi,
hvorki fyrr né síðar. Það er allt í lagi
að hlæja á kostnað annarra stöku
sinnum og því er tilvalið að setj-
ast niður þegar létta þarf lundina
og hlæja aðeins að einhleypum
súkkulaðigæjum og píum vestur í
Hollywood.
með hrísgrjónum og grænmeti
................. ^...
Nýju heitu og girnilegu réttirnir frá Holta
- gríptu einn í hádeginu
eða á leiðinni heim
Kjúklinga-lasagne
ásamt grænmeti
Létt og nýstárlegt.
Kjúklingabringa í sveppasósu
með hrísgrjónum og grænmeti
Sígildur, bragðgóður réttur.
Tikka masala
með hrísgrjónum og grænmeti
Tikka-kjúklingur hefur alls staðar
slegið í gegn.
Grillaður kjúklingur
- heill eða hálfur
Stendur alitaf fyrir sínu, heitur
eða kaldur, sem aðalréttur, nesti
eða í salatið.
EINFALT OG GOTT - NÝTTU TÍMANN VEL
Framleiðandi: Reykjagarður hf. Fosshálsi 1 IIOReykjavlk Sími 575 6440 www.holta.is