blaðið - 16.05.2007, Page 16
menning@bladid.net
blaðið
Hinn margverðlaunaði leikhópur Cheek by Jowl er nú
staddur hér á landi og sýnir verkið Cymbeline á Listahátíð.
Sýningar fara fram í Þjóðleikhúsinu og eru þrjár sýningar
eftir, í kvöld, annað kvöld og föstudagskvöld klukkan 20.
Les Kunz í
Valaskjálf
Kunz-fjölskyldan svokallaða
ætlar að skemmta börnum og
fullorðnum í Valaskjálf á Egils-
stöðum í kvöld klukkan 20 og á
morgun klukkan 14. Meðlimirfjöl-
skyldunnar eru sérkennilegt fólk
sem er eilítið utangarðs; fólk sem
ferðast um og skemmtir öðrum
rétt eins og gert var í eina tíð á
furðufuglaskemmtunum þar sem
gert var grín og sýndar sjónhverf-
ingar. Kunzararnir gera slíkt hið
sama hér á landi og sýna listir
sínar í tilefni af Listahátíð.
List án
landamæra
í Norræna húsinu stendur nú yfir
sýning 15 ólíkra listamanna sem
ýmist eru fatlaðir eða ófatlaðir,
en sýningin er haldin á vegum
hátíðarinnar „List án landa-
mæra“. Um er að ræða blöndu af
einstaklingsverkum og samstarfs-
verkefnum allra listamannanna.
Meðal listamanna eru Pétur
Thomsen og Trausti sem sýna
Ijósmyndir frá Sæbóli á Ingjaldss-
andi þar sem þeir bræða saman
tvö sjónarhorn á sömu hluti.
Kraumandi
sköpunarkraftur
Rúmlega 80 af fremstu og fram-
sæknustu hönnuðum á íslandi
taka þátt í sýningunni Magma/
Kvika sem verður opnuð á Kjar-
valsstöðum næstkomandi laug-
ardag. Sýningunni er ætlað að
varpa Ijósi á mikilvægi hönnunar
og vekja fólk til meðvitundar um
margslungnar birtingarmyndir
hennar. Hönnun snertir okkur
öll á ólíkan máta án þess að við
gerum okkur alltaf grein fyrir
því. Heiti sýningarinnar, Magma/
Kvika, vísar til þess kraumandi
sköpunarkrafts sem einkennir
stöðu íslenskrar hönnunar út frá
hugmyndafræðilegu og efnislegu
sjónarhorni.
Rautt hár í
alls kyns litbrigðum
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Frá árinu 1988 hefur myndlistar-
konan Nína Gautadóttir safnað
teiknuðum myndum og málverk-
um af rauðhærðum konum. Þessar
myndir sýnir hún í tómri íbúð við
Ásvallagötu 59 og er sýningin opin al-
menningi þriðjudaga til sunnudaga
frá klukkan 14 til 18. Sérstök opnun-
arhátíð var haldin fyrir helgi en þá
var rúmlega 50 rauðhærðum konum
boðið að mæta.
„Þetta var mjög skrautlegt, þarna
var staddur hópur kvenna sem all-
ar áttu það sameiginlegt að vera
með rautt hár í alls kyns litbrigðum.
Þetta var ofsalega skemmtileg og
litrík opnun,“ segir Nína. „En þessi
sýning á sér langa forsögu. Þannig
var mál með vexti að ég var búsett
í Frakklandi um margra ára skeið
og þar var stofnað félag rauðhærðra
kvenna, sem ég og tvær aðrar ís-
lenskar konur í París áttum aðild að.
I kjölfarið fór ég að taka eftir því að
rauðhærðar konur eru mjög algeng-
ar í myndlist og auglýsingum. Ég
byrjaði að safna svona myndum þó
svo að ég hafi ekki verið að leita sér-
staklega að þeim og hafi ekki ákveð-
ið strax að setja þær á sýningu. En
þegar ég var að flytja fyrir tveimur
árum sá ég að ég var komin með hátt
i 3000 myndir og ákvað þá að ég yrði
að gera eitthvað við þetta. Því fór ég
á námskeið í photoshop og skannaði
myndirnar inn á tölvu til þess að
geta sýnt þær á myndvarpa. Svo tók
ég sumar myndirnar og bróderaði
með koparvír í hárið á þeim til þess
að draga rauða litinn fram, og þess-
ar myndir eru uppi á vegg.“
Á miðöldum voru um 20.000 kon-
ur í Evrópu brenndar á báli fyrir
galdra, enda voru þær gjarnan tald-
ar vera í tygjum við Satan og áttu log-
ar vítis að hafa litað hár þeirra. Slíkt
má gjarnan sjá á málverkum frá
miðöldum, en það er þó ekki þemað
í sýningu Nínu.
„Myndirnar eru allar teiknaðar eða
málaðar og koma úr öllum áttum og
frá öllum tímabilum. Þetta eru alls
konar konur og líka litlar stelpur.
Nína Gautadóttir „Þetta eru
myndir af konum með rautt
hár i alls kyns litbrigðum."
Þetta eru hins vegar ekki myndir af
vondum kerlingum eða galdrakerl-
ingum, heldur einfaldlega konur
með rautt hár í alls kyns litbrigðum,“
útskýrir Nína og bætir því við að
vissulega megi rauðhært fólk teljast
til minnihlutahóps. „Rautt hár er
náttúrlega víkjandi og ætli það megi
ekki bara segja að rauðhærðir séu í
útrýmingarhættu."
Þó svo að á þessari sýningu hangi
ekki málverk eftir Nínu hefur hún
fyrst og fremst verið að mála í gegn-
um árin. „Svo áskotnaðist mér þessi
koparvír á sínum tíma og óf til að
byrja með myndir úr honum, en
ekki af fólki. Svo þegar hugmyndin
að þessari sýningu kom upp fannst
mér kjörið að nota hann áfram í
rauða hárið.“
Sýningin stendur til 27. maí.
Félag SkrúðgarSyrkjumeistara
www.gardyrkjan.is
f ,;. .. TS-
Verkum Péturs gerö skil
Hugvísindastofnun Háskóla Is-
lands, Bókmenntafræðistofnun og
Edda útgáfa standa fyrir málþingi
um Pétur Gunnarsson og verk hans
á morgun, uppstigningardag. Pétur
er einn af virtustu og vinsælustu
rithöfundum íslendinga. Fyrsta
skáldsaga hans, „Punktur, punktur,
komma strik“, kom út árið 1976 og
skipaði honum strax á bekk með
fremstu höfundum þjóðarinnar,
þar sem hann túlkaði á nýstárlegan
hátt sýn og reynslu nýrrar kynslóð-
ar íslendinga sem höfðu alist upp á
mölinni eftir seinni heimsstyrjöld.
Ríflega þremur áratugum síðar eru
skáldsögur hans orðnar tíu en auk
þess hefur hann gefið út ljóðabæk-
ur, ritgerðasöfn og söfn styttri texta
ásamt því sem hann hefur þýtt önd-
vegisverk franskra bókmennta á
íslensku.
Pétur verður sextugur í næsta
mánuði og gefur það tilefni til að
líta yfir höfundarverk hans, velta
einstökum verkum fyrir sér og ræða
inntak og stöðu skáldverka Péturs í
íslenskum samtímabókmenntum.
Þingið fer fram í stofu 101 í Odda
og hefst klukkan 10 á morgun, 17.
maí, og stendur til klukkan 17. Að-
gangur er ókeypis og öllum opinn.