blaðið - 06.06.2007, Page 4

blaðið - 06.06.2007, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 blaöiö Dagar gömlu skúringarfötunnar eru taldir Skúringarfatan úr sögunni Alltaf tilbúið til notkunnar Gólfin þorna á augabragði Fljótlegt og þægilegt Magnaða moppuskaftið Sölustaðir: Húsasmiðjan - Byko Pottar og prik Akureyri - Rými Áfangar Keflavík - Eyjatölvur Vestmannaeyjum Miðstöðin Vestmannaeyjum - Fjarðarkaup - Litabúðin Ólafsvík Parket og gólf - SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupstað. Heildsöludreifmg: Ræstivörur ehf.' 2600 Itr. þriggja hólfa rotþrær fyrir sumarhús. Framleiddar samkvæmt leiöbeiningum UST um uppbyggingu rotþróa. Seldar í byggingavöruverslunum um land allt. Promens ráðleggur að ætíð sé leitað til fagaðila um niðursetningu á rotþróm. PROMENS PROMENS DALVÍK • GUNNARSBRAUT 12 • 620 DALVÍK SÍMI: 460 5000 • FAX: 460 5001 • www.promens.is 18 • SUMARIB Umdeildir garðálfar Þjóðsögur lifa góðu lífi og ganga manna á milli í margar aldir. Það eru til margar þjóðsögur um álfa og huldufólk. Það hefur lengi verið talað um að álfar hjálpi til í garðinum þegar fólk sefur og eru þeir sérstakir garðálfar. Um miðja 18. öld hóf Philipp Grie- bel að framleiða álfa úr sérstökum leir. Álfarnir voru með rauðar húfur og voru alltaf með skegg. Þjóðsögurnar voru kveikjan að framleiðslunni. Framleiðslan byrj- aði smátt eða í einni lítilli verk- smiðju í smábæ í Þýskalandi. Vin- sældirnar jukust á skömmum tíma og varð framleiðslan á álfunum mjög viðamikil í Þýskalandi. Verk- smiðjur spruttu upp úti um allt land, hver framleiðandi hafði sinn stíl, en þekktastur er stíllinn hjá frumkvöðlinum. Álfarnir urðu vinsælir um allan heim og þá sér- staklega í Bretlandi og Frakklandi. Eftir seinni heimsstyrjöldina var efnahagskerfi Þjóðverja í molum, flestir framleiðendurnir gáfust upp eða færðu framleiðsluna til Kína eða Póllands. Afkomendur Philipps Griebel héldu hins vegar framleiðslunni áfram i Þýskalandi og er verksmiðjan enn starfrækt. Garðálfar og eigendur þeirra eru oft fórnarlömb hrekkjalóma. f Frakk- landi og ftalíu eru til frelsissamtök garðálfa. Þá eru skipulagðir garðálfa- hrekkir orðnir þekktir. Þekktasti hrekkur samtakanna er ferðalag garðálfanna en þá er garðálfi stolið og farið með hann í ferðalag. Hann gengur yfirleitt manna á milli og eru teknar ljósmyndir af honum á þekktum stöðum í heiminum. Ljós- myndirnar eru síðan sendar eigand- anum. Samtökin segjaSt berjast fyrir því að frelsa álfana úr ánauð. Arið 1997 var Frakki handtekinn fyrir að vera búinn að stela 150 garðálfum í gegnum tíðina, en hann var með- limur í frelsishreyfingu garðálfanna. Álfarnir eru mjög umdeildir og eru bannaðir á mörgum þekktum garðyrkjusýningum vegna þess að þeir eru taldir draga athyglina frá garðinum sjálfum. Talsmenn garðálfanna saka hins vegar um- sjónarmenn sýninganna um snobb, því garðálfar eru mjög vinsælir meðal verkafólks og allra þeirra sem hafa lítið fé á milli handanna. Á íslandi hafa garðálfar verið til sölu í um 30 ár og hafa vinsældir þeirra farið stöðugt vaxandi. Það eru ekki skipulögð samtök fyrir garðálfa á Islandi, en það hefur borið á því að álfarnir séu skemmdir. En það er þó sjaldgæft. Elsti garðálfur i heimi býr í Englandi og var framleiddur í Þýskalandi en hann er 160 ára. Eigandi hans kom með 22 Griebel-álfa frá Þýsklandi árið 1847 og skreytti garðinn sinn með þeim. Einn er enn þá til. Hann ber nafnið Lampy og er tryggður fyrir 1 milljón punda. Viöarbrennsluofnar - Fjölbrunaofnar - Kústasett - Hreinsikubbnr - Reykrör - Sérsmíði Krókhálsi 10 - Sími 898 1931 - www.arinvorur.is Viðarbrennsluofnar Kústasett Hreinsikubbar Reykrör Reykrörin eru CE gæðavottuð og samþykkt af Brunamálastofnun Ríkisins Einangruð reykrör á allar gerðir ofna. Einföld í uppsetningu fARINVÖRUR

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.