blaðið - 06.06.2007, Qupperneq 5
blaðíA MIÐVIKUDAGUR 6. IÚNÍ 2007
SUMARIÐ * 19
Fallegir arinofnar
Islendingar eru í miklum mæli
farnir að gera ráð fyrir arni í húsum
sínum, enda er fátt jafn rómantískt
og hlýlegt og arineldur. Verslunin
Arinvörur er sú eina á íslandi sem
sérhæfir sig í arinvörum.
Arinvörur eru með mikið úrval
af viðarbrennslu-, fjölbruna- og raf-
magnsofnum frá hinu heimsþekkta
fyrirtæki Stovax og Gazco. Ofnarnir
eru fáanlegir í ýmsum stærðum og
gerðum. Einnig er verslunin með
mikið úrval af sérsmíðuðum vörum
fyrir arna. Það er mikið úrval af
kamínum, arinofnum, skorsteinum
og einangruðum rústfríum reyk-
rörum. Allir arinofnarnir sem seldir
eru í versluninni eru samþykktir af
Brunamálastofnun.
Bjarni Bjarnason, eigandi fyrir-
tækisins, segir að frá upphafi bafi
hann lagt mikla áherslu á sérsmíði
fyrir allar gerðir arna. „Þetta gerum
við til að koma til móts við óskir við-
skiptavina okkar.Við bjóðum upp á
sérsmíði á trekkspjaldastillingum,
neistagrindum, kubbagrindum og
öskuskúffum svo dæmi séu nefnd.
Auk þess erum við í góðu sambandi
við færustu múrara landsins sem sjá
um að hlaða og setja upp fallega arna
umhverfis landið,” segir Bjarni.
Verslunin starfrækir verkstæði
sem smíðar trekkspjöld, trekk-
spjaldastillingar, öskuskúffur,
neistanet og ýmislegt fleira fyrir fag-
menn í arinsmíði.
„Við erum einnig með mikið úr-
val af hreinsi- og viðhaldsefnum
ásamt aukahlutum fyrir allar
gerðir ofna. Einnig er mikið úrval
af fallegum kústasettum á frábæru
verði.”
Bjarni bendir á að verslunin
sé opin eftir samkomulagi. „Við
segjum fólki að hafa samband og
þá opnum við en með því móti er
hægt að halda verðinu í lágmarki.”
Verslunin er til húsa að Krókhálsi
ío, no Reykjavík. Áhugasamir geta
skoðað vöruúrvalið á www.arin-
vorur.is. Einnig er hægt að hafa sam-
band í síma 8981931 eða á netfang-
inu arinvorur@mmedia.is.
Algjör bylting í
öryggismálum
Árið 2002 var kynnt öryggis-
kerfi fyrir sumarhús á íslandi.
Neyðarlínan, Fasteignamat
ríkisins, Vegagerðin, Landmæl-
ingar íslands og Landssamband
sumarhúsaeigenda unnu saman
að þessu verkefni. Sveinn Guð-
mundsson, talsmaður Lands-
sambands sumarhúsaeigenda,
segir að þetta kerfi hafi breytt
gríðarlega miklu og það tryggir
öryggi fólks í sumarhúsum
mun betur en áður var.
„Þetta kerfi virkar þannig
að nú er búið að hnitsetja sum-
arhús á landinu og öryggisnúm-
erum í sumhúsum hefur verið
komið fyrir. Ef neyðartilvik
kemur upp og hringt er í Neyð-
arlínuna þá er þetta númer
gefið upp og þá sést staðsetn-
ingin á húsinu strax og hægt
er að gera ráðstafanir. Áður en
þetta kerfi var tekið í notkun
átti björgunarlið oft í erfið-
leikum með að finna tiltekin
sumarhús og hjálpin barst oft
seint og illa. En með tilkomu
þessa kerfis kemst björgunar-
lið mun fyrr á staðinn og það
getur skipt sköpum. Þetta neyð-
arkerfi hefur nú þegar sannað
gildi sitt og það hefur bjargað
mannslífum."
Sveini finnst miður að ekki
séu allir sumarhúsaeigendur
með öryggisnúmer. „Vinna
okkar skilar ekki nógu miklum
árangri ef það er ekki haldið
utan um þetta verkefni. Því í
dag eru nokkur þúsund hús
sem eru ekki með þessi örygg-
isnúmer. Okkar von er að í
framtíðinni verði þetta komið
í öll sumarhús í landinu og ný
hús sem eru byggð fái sjálkrafa
öryggisnúmer. Ég hef fulla trú
á að það muni gerast með tím-
anum. En með því er öryggi
fólks tryggt eins og hægt er.“
Sveinn segir að mikil ánægja
sé með þetta kerfi. „Það eru
lönd í kringum okkur sem
eru farin að sýna þessu örygg-
iskerfi mikinn áhuga. Það er
mjög ánægjulegt ef þetta kerfi
verður tekið upp sem víðast."
Opnunartími: Mán. - fös. kl. 8-18.
Norðlingabraut 12, Norðlingaholti, Reykjavík
Bæjarhrauni 8, Hafnarfirði / Hringhellu 2, Hafnarfirði
Hnsmýri 5, Selfossi / Leiruvogi 8, Reyðarfirði
Sími 4 400 100 / Fax 4 400 111 / mest@mest.is / www.mest.is
- allt til bygginga
Hjá Mest gelur þú fengið aðstoð frá landslagsarkiteki
við hönnun garðsins. Þú getur pantáð tíma í síma
4 400 400 eða sent tölvupóst á mest@mest.is.
■- 1- '1
firr I l.i,