blaðið - 07.06.2007, Side 2

blaðið - 07.06.2007, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007 blaðiö VEÐRIÐ Í DAG Smáskúrir sunnanlands Hæg suðlæg átt og smáskúrir, en léttskýjað norðaustanlands. Hiti breytist lítið, verður 10 til 20 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu. ÁMORGUN Frábært veður fyrir austan Austlæg átt og víða bjartviðri norðan- og austanlands, en þokubakkar við ströndina. Skýjað annars staðar og rigning með köflum. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Á FÖRNUM VEGI VÍÐA UM HEIM Algarve 24 Glasgow 19 New York 15 Amsterdam 18 Hamborg 21 Orlando 25 Barcelona 24 Helsinki 28 Osló 27 Berlín 25 Kaupmannaböfn 22 Palma 23 Chicago 3 London 17 París 25 Dublin 16 MadriO 28 Stokkhólmur 22 Frankfurt 27 Montreal 7 Þórshöfn 10 Hvernig heldur þú að reykingabannið muni ganga? Haraldur Hermannsson „Ég held að það muni ganga vel.“ Fyrirhugaö álver í Helguvík Fáar hindranir eftir ■ Orkan tryggð ■ Umhverfismat stendur yfir ■ Rekstur hefst eftir þrjú ár Viðar Ottesen „Ég vona að það muni ganga vel“ Birna Páisdóttir „Ég veit það ekki alveg en von- andi gengur það vel.“ Vilborg Benediktsdóttir „Ég vona að reykingabannið gangi vel.“ Steinunn Guðmundsdóttir „Bara alveg ágaetlega. Ég held að flestir muni taka því vel.“ Helguvík 100 þúsund tonna ál- ver mun að öllum líkindum taka til starfa í Helguvík árið 2010. Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Allt bendir til þess að hafinn verði rekstur á álveri í Helguvík eftir þrjú ár. Orka hefur verið tryggð fyrir fyrsta áfanga álversins sem gerir ráð fyrir íoo þúsund tonna framleiðslugetu. Stór skref stigin f fyrradag samþykkti stjórn Orku- veitu Reykjavíkur að sjá álverinu fyrir íoo MW en áður hafði Hitaveita Suðurnesja samþykkt að sjá því fyrir 150 MW. Auk þessa hafa orkufyrir- tækin gefið ákveðin fyrirheit um orku til hugsanlegrar stækkunar álversins. Þann 16. maí síðastliðinn var frummatsskýrsla vegna mats á umhverfisáhrifum kynnt og er hún nú í kynningu. Næstkomandi þriðju- dag verður skýrslan ásamt breyt- ingum á aðalsícipulagi í Garði og Reykjanesbæ kynnt á íbúafundum í sveitarfélögunum tveimur. Skýrslan verður í kynningu til 28. júní en þá fær framkvæmdaraðili hana til athug- unar áður en hann skilar henni inn til Skipulagsstofnunar sem síðan fær mánuð til þess gefa rökstutt álit sitt á henni. Ánægð með framvinduna „Við erum mjög ánægð með þá framvindu sem orðið hefur í málinu,“ segir Hjörtur Zakaríasson, bæjarrit- ari í Reykjanesbæ og staðgengill bæj- arstjóra. Hann vildi þó taka fram að þetta væri enn í umhverfismati og ekki hægt að segja neitt fyrir víst áður en það liggur fyrir. „Ef fram fer sem horfir ættum við að geta hafið rekstur á árinu 2010,“ segir Ragnar Guðmundsson hjáNorð- uráli. Hann tók þó fram að enn ætti eftir að skrifa undir samninginn við Orkuveitu Reykjavikur. Mörg brýnni verkefni „Þetta skýtur skökku við því að það var boðskapur Samfylkingarinnar að gera hlé á stóriðjuframkvæmdum á meðan unnið yrði að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma segir Árni Þór Sigurðsson, þing- maður Vinstri grænna, og bætir við: ,Ég hefði því haldið að umhverfisráð- Efframfersem horfirættum við að geta hafið rekstur á árinu 2010 Ragnar Guðmundsson hjá Norðuráli Álver í Helguvík erekkibrýn- asta verkefni samfélagsins Árni ÞórSigurðsson, þingmaðurVinstri grænna herra og iðnaðarráðherra myndu gera það að sínu fyrsta verki að kynna stefnu sína fyrir orkufyrirtækjunum. Nema það sé bara alls ekki ætlunin að hverfa frá stóriðjustefnunni.“ Árni sagði að lokum að álver í Helguvík með öllum sínum áhrifum væri langt frá því að vera brýnasta verkið í samfélaginu. Hvorki náðist í Þórunni Sveinbjarn- ardóttur umhverfisráðherra, né Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir. Eldsneytisverð: Skeljungur og N1 hækka Bæði Skeljungur og Ni hækk- uðu verð á eldsheyti í gær. Bæði félög hækkuðu bensínlítrann um eina krónu og sjötíu aura og lítrann af dísilolíu um eina krónu og fimmtíu aura. Hækk- anirnarmá að sögn talsmanna olíufyriitækjanna rekja til hækkuitar á heimsmarkaðsverði og lakrar stöðu krónunnar. Skilorð fyrir fjárdrátt: Stal hundruð- urní þúsunda Héraðsdómur Reykjaness hef- ur dæmt konu í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða Landssíma íslands um 400 þúsund krónur fyrir að draga sér fé er hún var starfsmaður Lands- símans á árunum 2004 og 2005. Þarf hún auk þess að greiða lög- mannskostnað upp á 250 þúsund krónur. Fyrirtækið sakaði kon- una um að draga sér um hálfa milljón með því að færa greiðslur vegna 7 viðskiptafærslna inn á eigin reikning. Játaði konan öllum ákæruliðum nema einum. Innifalið f verðí: Flug, flugvallarskattar, gisting. Bókaðu strax á www.plusferdir.is www.plusferdir. is PIÚSFERÐIR - Lágmúla 4-105 Reykjavik - Simi 535 2100 Netverð 25. ágúst og 7. september 43.969 kr. á mann miðað við að 2 að fuliorðnir og 2 börn, 2ja-1lára, ferðisf saman Innifaiid er flug. gisting í 7 nætur á Skala og flugvallarskattar. Verð á mann miðað við 2 í íbúð á Skala 49.395 kr SGS um launahækkun seðlabankastjóra Það er til fullt af peningum Launahaskkanir hjá seðla- _ bankastjórum víta á gott fyrir komandi kjarasamninga segir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins. \ „Þetta er ágætis hækkun,“ segir Skúli Thoroddsen, framkvæmda- stjóri Starfsgreinasambandsins, að- spurður um sitt álit á þessum hækk- unum. „Þetta segir okkur að það er til fullt af peningum í samfélaginu og veit á gott fyrir komandi kjara- samninga,“ bætti hann við en kjara- samningar verða lausir um næstu áramót. Laun seðlabankastjóra munu hækka um 200 þúsund krónur í tveimur áföngum á þessu ári. Bankaráð Seðlabankans sam- þykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að hækka laun banka- stjóra bankans um 200 þúsund krónur. Ragnar Arnalds var eini stjórnarmaðurinn sem greiddi at- kvæði gegn tillögunni. „Eg taldi að miklar hækkanir á launum seðla- bankastjóra myndu kollvarpa ríkis- kerfinu," segir Ragnar. Hann sagði tillögu formannsins hafa verið rök- studda með því að starfsmenn sem eru næstir bankastjórunum í launum hefðu hækkað vegna samkeppni við einkabankana um starfsfólk. „Það er mjög vonlítið að ætla að elta ólar við þessar risahækkanir sem eiga sér stað hjá einkabönkunum,“ sagði Ragnar.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.