blaðið - 07.06.2007, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007
blaAiö
UTAN ÚR HEIMI
Fundi Olmerts og Abbas frestað
Fyrirhuguðum fundi Palestínuforseta og forsætisráð-
herra Israels var frestað um óákveðinn tíma í gær að
beiðni palestínskra stjórnvalda. Palestínumenn segja
að ekki hafi tekist að að fá ísraela til að greiða Palest-
ínumönnum skattfé sem þeir eigi inni hjá Israelum.
Povel Ramel látinn
Sænski listamaðurinn Povel Ramel lést úr hjart-
veiki á heimili sínu á þriðjudagskvöld, 85 ára
gamall. Ramel starfaði sem rithöfundur, leikari,
söngvari og píanóleikari og var einn ástkærasti
listamaður Svía um margra áratuga skeið.
VATÍKANIÐ
Páfi notast við sólarorku
Til stendur að skipta um þak á einni byggingu Vatíkansins
og hyggjast menn koma þar fyrir sólarrafhlöðum til að
knýja lýsingu, hitun og kælingu hússins. Benedikt þáfi
sextándi hefur áður hvatt kristna menn til að fara sparlega
með auðlindir jarðar og vill með þessu sýna gott fordæmi.
Spánn:
Binda enda
á vopnahlé
Aðskilnaðarhreyfing Baska,
ETA, tilkynnti í gær að endi
hefði verið bundinn á rúmlega
eins árs langt vopnahlé frá
og með miðnætti. José Luis
Rodriguez Zapatero, forsæt-
isráðherra Spánar, fordæmdi
tilkynningu ETA og sagði hana
ganga þvert á friðarvilja allra
Spánverja, þar á meðal Baska.
Tilkynning ETA birtist í bask-
neska dagblaðinu Berria, þar sem
fram kom að lágmarksskilyrði
fyrir áframhaldandi friðarviðræð-
um við spænsk stjórnvöld væru
ekki lengur fyrir hendi. Spænskir
fjölmiðlar telja ekki ólíklegt að
ETA muni láta til skarar skríða
með hryðjuverkaárás á næstunni.
Yfirtaka á Alcan
Óbreytt staða
að mestu
Fátt hefur hefur enn skýrst
í kapphlaupinu um kanad-
íska álfyrirtækið Alcan.
í vefútgáfu kanadíska dagblaðs-
ins Globe and Mail er talað um
að námafyrirtækin Rio Tinton
og BHP Billiton muni gera tilboð
og þá líklega í samstarfi við fyrir-
tæki sem stunda fullvinnslu úr áli.
Eins og kunnug er þá gerði
Alcoa fjandsamlegt yfirtökutilboð
í Alcan í byrjun maí. Það tilboð
er töluvert undir markaðsvirði
og rennur út þann to. júlí næst-
komandi. Fréttir herma einnig
að yfirtaka á Alcoa sé hugsanleg.
Fundur átta helstu iðnríkja heims í Þýskalandi:
Kalt stríð leiðtoganna
■ Bandaríkjamenn hafna loftslagssamningi ■ Tortryggni milli Bush og Pútíns ■ Mikil öryggisgæsla
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Bandaríkjastjórn hafnaði tillögum
þýskra stjórnvalda um að helstu iðn-
ríki heims skuldbindi sig til að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda
á fundi átta helstu iðnríkja heims
sem hófst í Heiligendamm, nærri
borginni Rostock í Þýskalandi í gær.
Búist er við að deilur Bandaríkja-
manna og Rússa um uppsetningu
Bandaríkjahers á eldflaugavarnar-
kerfi í austurhluta Evrópu muni
setja sterkan svip á fundinn sem
lýkur á morgun. Átta mótmælendur
og einn lögreglumaður slösuðust
þegar til átaka kom milli lögreglu
og mótmælenda fyrir utan fundar-
staðinn, en öryggisgæsla er gríðar-
leg á staðnum og hefur lögregla not-
ast við vatnsbyssur og táragas til að
dreifa mannfjöldanum.
Mörg hundruð mótmælendur
söfnuðust saman í grennd við stað-
inn þar sem leiðtogar ríkjanna átta
funduðu. Mótmælendur reyndu
jafnframt að setja upp vegatálma
á vegunum að flugvöllum og víðar
til að reyna að koma í veg fyrir að
fréttamenn, sendinefndir og leið-
togar kæmust leiðar sinnar. Um
sextán þúsund lögreglumenn gæta
staðarins, en í gær var talið að mót-
mælendur væru á sjöunda þúsund
talsins. Mikil ólæti voru í Rostock
um síðustu helgi vegna væntanlegs
ÁTTA HELSTU IÐNRÍKI HEIMS
Þýskaland
■É Bandarikin
m Bretland
11 Frakkland
11 ftalia
• Japan
1*1 Kanada
fiSGHam ■■1 Rússland
fundar þar sem um þúsund manns
slösuðust.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, hefur lagt mikla áherslu á
nauðsyn þess að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda og hvatt
iðnríki heims til að skuldbinda sig
til að draga úr losun um fimmtíu
prósent fram til ársins 2050. James
Connaughton, helsti loftslagsráð-
gjafi Bandaríkjaforseta, sagði hins
vegar að fjöldi ríkja, þar á meðal
Bandaríkin, muni ekki gangast
undir slík langtímamarkmið. Conn-
aughton sagði að stór skref hefðu
verið stigin í baráttunni við hlýnun
jarðar. Hins vegar sagði hann það
vera skoðun Bandaríkjastjórnar
að fundur G8-ríkjanna væri ekki
rétti vettvangurinn til að setja
markmið um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Fastlega er búist er við að George
Bush Bandaríkjaforseti og Vladimir
Pútín Rússlandsforseti muni funda
saman í Heiligendamm, en sam-
band ríkjanna hefur verið sérstak-
lega stirt á undanförnum dögum og
vikum. Fyrirhuguð uppsetning rat-
sjár- og eldflaugastöðva Bandaríkja-
hers í Tékklandi og Póllandi hefur
vakið mikla óánægju Rússlands-
stjórnar. í ræðu sem Bush flutti í
Tékklandi fyrr í vikunni sagði hann
að kalda stríðinu væri lokið, að Rúss-
land væri ekki óvinaþjóð Bandaríkj-
anna og að
inu væri ekki
beint að Rúss-
landi. Bush
gagnrýndi
hins vegar
þróun
isins
Rússlandi og sagði að Rússlands-
stjórn hefði ekki staðið við loforð
um lýðræðisumbætur.
Pútín hefur hafnað því að eld-
flaugavarnarkerfi Bandaríkjahers
væri beint að ríkjum eins og Norður-
Kóreu og íran og segir að því sé fyrst
og fremst beint að Rússlandi. Þá hót-
aði hann því að vopnum Rússlands-
hers yrði beint að Evrópuríkjum,
ákveði Banda-
ríkjaher
að ljúka
uppsetn-
i n g u
kerfis-
ins.
Innritun nýnema fyrir skólaárið 2007-2008 stendur til 11. júní.
Innritunin er rafræn og fer fram í gegnum www.menntagatt.is.
Kvennaskólinn í Reýkjavík býður bóknám
til stúdentsprófs á þremur brautum:
Félagsfræðabraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
f skólanum er bekkjakerfi en þó er mikið val á 3. og 4. námsári.
Inntökuskilyrði eru samkvæmt reglugerð menntamálaráðuneytisins.
Þau eru háð brautarvali nemandans.
Námsráðgjafar verða til viðtals innritunardagana frá
klukkan 9-17 í aðalbyggingu skólans að Fríkirkjuvegi 9.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans www.kvenno.is.
ífpf. '
Oddatá kaupir fasteignir Kambs:
Vilja tryggja öllum
Flateyringum vinnu
Oddatá efh. og Fiskvinnslan
Kambur ehf. hafa gert með sér
samning um að Oddatá kaupi allar
fasteignir og tæki Kambs á Flateyri.
Oddatá er eignarhaldsfélag sem
stofnað var sérstaklega í tengslum
við kaupin, með það að markmiði
að allir íbúar Flateyrar geti haldið
störfum sínum þrátt fyrir að
Kambur hætti vinnslu.
Þegar hafa þó allar aflaheim-
ildir verið seldar frá Flateyri. Hins
vegar byggði mikið af starfsemi
Kambs á kaupum á fiskmörkuðum
og vonast Oddatá til að geta haldið
uppi álíka umfangsmikilli starf-
semi og Kambur með því að kaupa
fisk af sjómönnum á staðnum og á
mörkuðum.
„Ég ætla ekki að reyna að halda því
fram að þetta verði auðvelt,“ segir
Kristján Erlingsson, stjórnarmaður
Kambur á Flateyri Stofnað hefur verið
j eignarhaldsfélag sem kaupir fasteignir
og tæki Kambs. Vonast er til að allir
starfsmenn Kambs haldi vinnu sinni.
Mynd/HalldórSveinbjörnsson j
í Oddatá. Félagið er í eigu fjölskyldu
Kristjáns, en þau eru öll rótgrónir
Flateyringar. „Við hefðum þó ekki
farið út í þetta nema við teldum
möguleika á að markmið okkar ná-
ist. En það byggir að miklu leyti á
því að við finnum samstarfsaðila
um nýtingu á eignunum."