blaðið - 07.06.2007, Síða 14

blaðið - 07.06.2007, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007 blaðið Össur Skarphéðinsson iðnað- arráðherra segir að hvorki verði látið undan pressu frá álfyrir- tækjum né alþjóðasamfélaginu um að fjölga álverum. „Hvað svo sem líður aukinni eftirspurn eftir áli í heiminum mun það ekki raska ró þessarar ríkisstjórnar. Þótt hægt sé að framleiða ál hér á minna mengandi hátt en ann- ars staðar þýðir það ekki að ís- lendingar verði einhver verstöð á sviði áliðnaðar. Við þurfum að vernda okkar náttúru fyrir kom- andi kynslóðir og það mun þessi ríkisstjórn gera.“ Össur segir einnig mikilvægt að íslendingar fylgist með fram- förum í álframleiðslu í heim- Fram kom í fréttum frá Sam- tökum atvinnulífsins fyrir nokkru að áætlanir Evrópusambandsins um að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda muni leiða til aukinnar eftirspurnar eftir áli frá Islandi, þar sem útstreymi koldíoxíðs á hvert framleitt áltonn hér á landi sé með því minnsta sem þekkist. Kom þar einnig fram að þar sem eftirspurn eftir áli muni aukast hafi alþjóða- samfélagið áhyggjur afþví að álfram- leiðsla færist til landa þar sem kröfur um mengunarvarnir eru minni en á íslandi og þar sem notuð er óvist- vænni orka til framleiðslunnar. Því megi reikna með þrýstingi á íslensk stjórnvöld um að leyfa aukna álfram- leiðslu hér á landi. neinar efasemdir um að eftirspurn eftir áli muni aukast. „Menn byggja fullyrðingar um það á notagildi álsins og síaukinni framleiðslu á hlutum þar sem ál er notað, sérstak- lega í vaxandi efnahagskerfum svo sem í Kína og á Indlandi." Pétur segir að almennur hag- vöxur í heiminum hafi í för með sér aukna notkun á áli. „Það kemur fram í verðvísitölum á útflutningi hjá Hagstofunni að verð á útflutn- ingsafurðum í iðnaði hefur hækkað og álverð hefur verið í sögulegu hámarki undanfarin ár. Því hefur hagur álfyrirtækjanna hér á landi vænkast og kemur til með að halda áfram að gera það, og sama gildir um orkufyrirtækin.“ Eftir Hlyn Orra Stefánsson Verndun ís- lenskrar náttúru sklptir meira máli en alþjóð- legur þrýstingur. ÖssurSkarphéðinsson iðnaðarráðherra Fréttir þess efnis að eftirspurn eftir áli hafi aukist og muni aukast mikið á næstunni hefur engin áhrif á núverandi ríkisstjórn segir iðnað- arráðherra. Sérfræðingur hjá Sam- tökum atvinnulífsins segir óum- deilt að eftirspurn eftir áli muni aukast. Telja menn þar á bæ að það muni setja aukna pressu frá alþjóða- samfélaginu um að íslensk stjórn- völd haldi áfram að fjölga álverum, þar sem álframleiðsla hér á landi er með því vistvænna sem gerist. Pétur Reimarsson, verkefnastjóri umhverfismála hjá Samtökum at- vinnulífsins, segist ekki hafa heyrt inum. „Það glittir í nýja tækni sem mun í framtíðinni leiða til þess að hægt verði að nota öðru- vísi rafskaut í álframleiðslu sem munu menga minna. Mögulega mun draga úr þrýstingi alþjóða- samfélagsins á íslendinga um álframleiðslu þegar menn verða annars staðar í heiminum farnir að geta framleitt ál á vistvænni hátt en í dag.“ HIS§80 Inga Lára Ásgeirsdóttir flutti aftur á æskuslóðirnar enda fékk hún nýtt starf hjá Alcoa og húsnæði í heimabænum „Mamma og pabbi eru líka alsæl. Nú er öll fjölskyldan sameinuð á ný eftir tuttugu ár”, segir Inga Lára. Sameining . “ ■ ‘x ■ b, f | h • t t b. f —-1 í Í X

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.