blaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 15

blaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 15
o <> <> blaöió FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007 15 íslensk álframleiðsla ÁIframleiðsla á Islandi mengar minna en víöa annars staðar, sem mun auka þrýsting á meiri álframleiðslu hér á landi með vaxandi eftirspurn eftir áli. Ekki nauðsynlegt að framleiða meira ál: Einfaldar aðgerðir hvetja til endurvinnslu Andri Snær Magnason rithöf- undur setur spurningarmerki við fréttir af aukinni eftirspurn eftir áli og pressu á íslensk stjórnvöld um að leyfa aukna álframleiðslu. Bendir hann á að ef orka til álfram- leiðslu væri ekki niðurgreidd væri meira endurunnið af áli og segir að kol verði brennd annars staðar sama þótt við fórnum okkar landi undir vatnsaflsvirkjanir. „Á1 verður eflaust notað áfram enda hentar það vel til margra hluta,“ segir Andri. „Hins vegar hafa margir bent á að stórfelldar niðurgreiðslur á orku til áliðnaðar í heiminum, til dæmis á Islandi og í Kanada, lækki álverð og skekki þar með samningsstöðuna. Hvat- inn er því lítill til að endurvinna ál eða nota önnur efni í staðinn." Andri segir að í Bandaríkjunum einum sé hent áldósum sem gætu dugað til að endurnýja allan flug- flotann þar fjórum sinnum á ári. „Ef sett væri skilagjald á dósir í Bandaríkjunum mætti spara fjórar Kárahnjúkavirkjanir. En bjór- og gosframleiðendur vinna gegn skilagjaldi á dósum þar sem þeir vilja ekki hækka verð dósanna af hræðslu við að missa viðskiptavini.“ Þá segir Andri að rökin um að framleitt verði ál með kolabrennslu ef íslendingar auki ekki framleiðsl- una standist ekki skoðun. „Heimur- inn er ekki skipulagður á þennan hátt. Menn raða ekki niður verk- smiðjum eftir því hvar þær menga minnst, heldur reyna verksmiðju- eigendur að framleiða með eins litlum tilkostnaði og þeir geta og eigendur orkuauðlinda reyna að koma þeim í verð, sama hversu mikið þær menga. Ef við íslend- ingar fyndum olíu, myndum við þá ákveða að pumpa henni ekki upp?“ Fjörið verður á Reyðarfirði laugardaginn 9. júní! Dagskrá: 10:00 Formleg opnunarathöfn í Fjarðabyggðarhöllinni. 13:00 Opnunarhátíð og karnivalstemmning um allan bæ. Meðal þeirra sem koma fram eru: Karíus og Baktus, gospelkór, Nylon, Bjarni Tryggva, Hnakkarnir, Þorsteinn Helgi, Skoppa og Skrýtla, frú Norma, SúEllen og margir, margir fleiri. álvers í Reyðarfirði á laugardaginn kemur. Bærinn skrýðist hátíðarbúningi og karnival- stemmning með fjölbreyttum skemmtiatriðum verður um allan bæ frá kl. 1 3 og fram á kvöld. 19:00 Stórtónleikar í Fjarðabyggðarhöllinni. Björgvin Halldórsson Andrea Gylfadóttir Birgitta Haukdal Eivör Pálsdóttir Popp, rokk, jass, einsöngvarar, barna- skemmtun, götuleikhús, töframenn, trúðar, útimarkaður, trúbadorar, leiktæki, kórar, harmonikkutónleikar og skoðunarferðir um álverslóðina. Felix Bergsson Helgi Björnsson Stefán Hilmarsson The Queen Show 22:00 Listflug og fallhlífarstökk í dagskrárlok. www.alcoa.is Alcoa Fjarðaál s ALCOA I

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.