blaðið - 07.06.2007, Page 16

blaðið - 07.06.2007, Page 16
blaðið blaöi Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Ritstjórar: Ólafur Þ. Stephensen Trausti Hafliðason Fréttastjórar: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir ÞrösturEmilsson Ritstjórnarfulltrúi: Elín Albertsdóttir Þörf á nýrri hugsun Mjólkursamsalan, rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á íslandi, er í eigu ríflega 700 kúabænda. Þeim hefur því líklega brugðið nokkuð í fyrradag þegar fregnir bárust af því að Samkeppniseftirlitið hefði gert húsleit hjá Mjólkursamsölunni, Osta- og smjörsölunni og Auðhumlu. Það er ekki al- gengt að Samkeppniseftirlitið geri húsleit þó það sé reyndar sífellt að auk- ast. Áður hefur Samkeppniseftirlitið meðal annars gert húsleit hjá Baugi, olíufélögunum, kortafyrirtækjunum og Samtökum ferðaþjónustunnar. Ástæðan fyrir aðgerðunum í fyrradag er sú að Samkeppniseftirlitið hefur rökstuddan grun um að mjólkurfyrirtækin hafi gerst sek um undir- boð og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta er grafalvarlegt mál. Ef það kemur í ljós að fyrirtækin hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína hefur það fyrst og fremst bitnað á neytendum og starfsemi Mjólku ehf., sem kom eins og ferskur andblær inn á þennan markað fyrir nokkrum árum. Ólíkt Mjólkursamsölunni starfar Mjólka fyrir utan greiðslu- markskerfi landbúnaðarins. Bændur hafa fulla ástæðu til að bera ugg í brjósti því þeir eiga á hættu að fá neytendur upp á móti sér, skattborg- arana sem styðja dyggilega við íslenskan landbúnað í formi opinberra framleiðslustyrkja. Burtséð frá því hvort fyrirtækin hafa gerst brotleg þá vekja viðbrögð Magnúsar Ólafssonar, aðstoðarforstjóra Mjólkursamsölunnar, við húsleit- inni athygli. Hann segir mjólkuriðnaðinn einfaldlega ekki heyra undir samkeppnislögin. Hér enduróma orð fyrrverandi landbúnaðarráðherra sem sagði í fyrra að Samkeppniseftirlitið hefði sett upp pólitísk gleraugu þegar það ákvarðaði að Osta- og smjörsalan hefði brotið gegn samkeppn- islögum. Vonandi er þessi þankagangur horfinn úr landbúnaðarráðuneyt- inu með nýjum ráðherra. Það er líka ágætt að hafa í huga að eitt af hlut- verkum Samkeppniseftirlitsins er einmitt að vekja athygli á því þegar lög eða stjórnvaldsákvarðanir eru andstæð markmiðum samkeppnislaga. Það er alveg rétt að í búvörulögum er hagur mjólkurframleiðenda verndaður og þar er að finna undaþágur frá tilteknum ákvæðum sam- keppnislaga. En það breytir því ekki að það er alveg skýrt að mjólkuriðn- aðurinn er ekki undanþeginn 11. grein samkeppnislaga sem kveður á um að misnotkun á markaðsráðandi stöðu sé óheimil. Þetta mál ber fyrst og fremst vott um að það er þörf á nýrri hugsun í landbúnaðarmálum á Islandi. Það er ótækt að búvöruframleiðendur geti í skjóli laga viðhaft einokun á markaði, sér til heilla en neytendum til ama. Til þess að frjáls samkeppni á þessum markaði þrífist og hagur neyt- enda batni þarf að afnema opinbera verðlagningu á mjólkurvörum, sem og að afnema ofurtolla á landbúnaðarvörum. Síðast en ekki síst er brýnt að afnema þær undaþágur frá samkeppnislögum sem landbúnaðurinn býr við samkvæmt búvörulögum. Trausti Hafliðason. Gott til endurvinnslu Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík AÖalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Norm-X Heimasíðan okkar er Heitir pottar íslensk framleiösla www.normx.is Norm-X hefur frá 1982 sérhæft sigí framleiðslu heitra potta sem henta Tslenskum aðstæðum einstaklega vel. Við bjöðum einnig allan tengibúnað, nudd og Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum. Samstarfsaðili okkar á Akureyri er Tjalda- og Seglaþjónustan ehf. sími 461-5077 Grettislaug 1500 L Setlaug 2050 L Setlaug 1200 L með legubekk Snorralaug 2000 L Norm-X Auðbrekku 6 Kópavogi Sími 565-8899 www.normx.is normx@normx.is 16 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007 EiAÍHvrR.-NTÍAMK ' irVR.iRSjÁAfVí--EaRi TRamtí-q VRAUMlfR. tl/EGRi-GR.ÆNK//I HETíjR R/eSr oO GjoLFVolLuR J5R KamíWN í VAHVSMÝ'R/H^ Andstaðan föst í formhliðinni Á fyrstu dögum sumarþings hefur verið athyglisvert að fylgjast með áherslum stjórnarandstöðuflokk- anna. Þeir eru greinilega ekki alveg búnir að finna rétta taktinn í mál- flutningi sínum og birtist það bæði í umræðum um stefnuræðu forsætis- ráðherra í síðustu viku og í þingstörf- unum síðustu daga. Eins og sjá mátti fyrir munu Vinstri grænir sækja að stjórnarflokkunum - og þá einkum Samfylkingunni - frá vinstri, en framsóknarmenn eru ekki búnir að gera upp við sig hvort þeir ætla að fylgja Steingrími J. Sigfússyni og fé- lögum í þeim efnum eða láta nægja að segja, eins og sumir þeirra gerðu í umræðunum um stefnuræðuna: „Þetta hefðum við hvort sem er gert ef við hefðum verið í ríkisstjórn.“ Frjáls- lyndir eru að mestu óskrifað blað, en þó ljóst að nýr þingmaður þeirra, Jón Magnússon, ætlar ótvírætt að taka frumkvæði í stefnumörkun flolcks- ins í fjölmörgum málum. Fyrsta frumvarpið á þessu kjör- tímabili varð að lögum í gær og fjallar það um breytingu á þingsköpum Al- þingis. I því felst sameining landbún- aðarnefndar og sjávarútvegsnefndar, uppskipting efnahags- og viðskipta- nefndar og nafnbreyting á félags- og heilbrigðisnefnd. Hér er í sjálfu sér um minni háttar breytingu að ræða, sem varðar í sjálfu sér ekki annað en verkaskiptingu innanhúss í þing- inu, og er með henni ætlunin að færa nefndaskipan til samræmis við fyr- irhugaðar breytingar á ráðuneytum. Engu að síður gerðu þingmenn stjórn- arandstöðunnar nokkurt veður út af þessu og þá einkum að breytingar á nefndaskipan skyldu koma til af- greiðslu á undan breytingum á stjórn- arráðinu. Það á sér þá skýringu að Klippt & skorið breytingin var í sjálfu sér einföld og krafðist ekki mikillar yfirlegu og um leið þótti mikilvægt að ljúka kjöri þingnefnda fyrir kjörtímabilið svo fljótt sem kostur væri. I þessu ljósi er andstaða stjórnar- andstöðuflokkanna við breyting- arnar á þingsköpum bara stormur í vatnsglasi. Stjórnarandstaðan vill auðvitað undirstrika að hún vilji og geti veitt stjórnarflokkunum aðhald og er ekkert nema gott um það að segja. Hins vegar eru stóryrði eins og komið hafa fram í umræðum um að í Viðhorf Birgir Ármannsson þessu máli hafi verið vegið að rótum þingræðis og lýðræðis í landinu harla innihaldslítil og gengisfella bara mál- flutning þeirra sem hafa þau uppi. Sama má segja um frumvarp um breytingu á stjórnarráðslögunum, sem nú er til meðferðar hjá allsherj- arnefnd. Meginbreytingarnar sem í því felast eru þríþaettar; landbúnaðar- ráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti verða sameinuð, Hagstofan verður ekki lengur sjálfstætt ráðuneyti og nafnbreytingar verða á heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og félags- málaráðuneyti í ljósi áforma um að flytja verkefni á sviði tryggingamáia frá fyrra ráðuneytinu til hins síðar- nefnda. í frumvarpinu er mörkuð ákveðin meginstefna í þessum efnum, en um flutning einstakra verkefna og stofnana milli ráðuneyta og skipu- lagslega útfærslu að öðru leyti verður fjallað nánar í haust. Raunverulegur efnislegur ágrein- ingur um þetta frumvarp virðist raunar ekki vera mikill ef marka má þær umræður sem þegar hafa farið fram. Enginn virðist draga í efa að tilefni sé til einhverra breytinga og af máli margra þingmanna stjórnarand- stöðunnar má helst ráða að þeir vilji ganga heldur lengra en frumvarpið gerir ráð fyrir. Meira hefur verið talað um formhlið málsins og vinnu- lag. Stjórnarandstaðan gagnrýnir helst að ekki sé beðið með breytingar á ráðuneytunum þangað til útfærðar tillögur um verkaskiptingu liggi fyrir en á móti má segja að eðlilegt sé að meginlínurnar séu ákveðnar í upphafi og síðan fyllt inn í rammann á þeim grundvelli. Tími mun vinnast til þess á haustþingi þar sem brey ting- arnar á ráðuneytunum eiga ekki að taka gildi fyrr en um áramót. I báðum þessum málum kjósa stjórnarandstöðuflokkarnir að gagn- rýna ríkisstjórnina fýrir formið. Ekki hefur hins vegar mikið farið fyrir efn- islegri andstöðu við stefnumörkun ríkisstjórnarflokkanna að öðru leyti og má kannski segja að í þeim efnum séu hveitibrauðsdagar stjórn- arinnar rétt að hefjast. Þegar þeim lýkur kemur væntanlega í ljós hvort stjórnarandstaðan nær að skapa sér einhverja málefnalega vígstöðu gagn- vart ríkisstjórninni eða hvort hún festist til frambúðar í umræðum um formhlið mála. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavfk. Klippari las um það hjá Pétri Gunnars- syni á síðunni hux.blog.is að Egill hefði sagt upp samningnum sem hann vissi ekki að hann hefði gert. „Það undarlega í mál- inu er að staða Egils gagnvart Stöð 2 er alveg óbreytt eftir þessi tíðindi.í Sá samningur sem 365 telur | sig hafa haft í höndum gerði ráð fyrir Egill væri bæði I launalaus og verkefnalaus; fram á haust og nú er hann sem sagt kominn á uppsagnarfrest og allan þann uppsagnarfrest hefur hann - samkvæmt þelm samningi sem Ari segist sjálfur hafa gert - hvorki skyldu til þess að mæta í vinnu né gera nokkurn skapaðan hlut í þágu Stöðvar 2 og þiggur engin laun frá vinnuveitandanum á tíma- bilinu. Ætli stjórnendur Stöðvar 2 telji sig hafa unnið frækinn sigur í málinu?" Góð spurning! Sæll Pétur," ritar Ari sem athugasemd á síðu Péturs. „Ég verð að líta svo á að Egiil kalli eftir því með þessari yfirlýs- ingu að tölvuskeyti okkar á milli um starfskjör verði gert opinbert. llmsamin laun voru 1 m.kr. á mánuði, frá i. sept. til 30. júní." Þar með rýfur Ari, sem erforstjóri stærsta fjölmiðlafyrirtækis landsins, launaleyndina sem hefur ríkt innan 365-samsteypunnar. Hann vill benda netheim- inum á að launaleysi Egils á sumarmánuðum sé ekki mann- vonska heldur sé Egill erlendis v.-vf* þessa mánuðina. Og að póst- inum til Egils sem Ari birtir án timasetningar: „Staðfesti að ‘ eins og við töluðum um i símanum áðan, þá er kominn á samningur milli okkar til a.m.k. 2ja ára, með einum greiddum mánuði vegna sum- arleyfis. Launagreiðsla til EH im.kr/mán." einr J Og fjölmiðlamaðurinn ión Axel Óiafsson greinir frá enn einu meiðyrðamálinu á 365 á síðu sinni jax.blog.is. „Litla ffjálsa fréttastofan hefur það eftir áreiðanlegum heim ildum að Sigriður Rut Júlíus- # dóttirlögmaður hafi fyrirhönd Magnúsar Ragnarssonar, |L|1V ' fv. sjónvarpsstjóra Skjás eins, ll afhent Ara Edwald, forstjóra 365, stefnu fyrir ærumeiðingar og meiðyrði ásamt fleiru. Um erað ræða a.m.k. þrjú óskyld mál sem Magnús stefnir 365 fyrir og eru það ummæli sem hafa verið birt i Sirkus-blaðinu, DV og Fréttablað- inu sem m.a. ku hafa kallað Magnús Ragnarsson; Magga glæp! Kæran mun vera fyrir vafasamar fullyrðingar og fleira sem Magnús var búinn að fá sig fúllsaddan af." Greinilega nóg að gera hjá Ara Edwald en vísissíðu Egils hefur verið lokað. gag@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.