blaðið - 07.06.2007, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007
blaöiö
1 f ll- IP6®® » -JBBkÍK
1 A tT 1 1 1 W*-
W &T 1
Retturinn a þvi aö hlustað se
á menn jafngildir ekki því að
þeir séu teknir alvarlega.
Hubert H. Humphrey
Afmælisborn dagsms
PRINCE SÖNGVARI, 1958
JESSICATANDY LEIKKONA, 1909
PAUL GAUGUIN MÁLARI, 1848
kolbrun@bladid.net
Frumraun
Valdimars
TónXistarhátíd í Hverageróxskirkju
JPV útgáfa hefur sent frá sér
Ijóðabókina Enn sefur vatnið
eftir Valdimar
Tómasson. (
henni eru 32
Ijóð.
Valdimar er
fæddur árið
1971 og alinn
upp f Mýrdal
en hefur verið
búsettur í
Reykjavík frá
árinu 1987. Enn sefur vatnið er
fyrsta bók hans.
Metsölulistinn - erlendar bækur
2 Judge&Jury
James Patterson & Andrew Gross
2 lcepick: lcelandic Street Art
Þórdís Claessen
3 TheNamingoftheDead
lan Rankin
4 The Secret
Rhonda Byrne
Angels Fall
Nora Roberts
The Thirteenth Tale
Diane Setterfield
7 Under Orders
‘ Dick Francis
Born in Death
J.D. Robb
9 TheEarthFromTheAir
Yann Arthus-Bertrand
10 FragileThings
Neil Gaiman
Metsölulistinn - erlendar bækur
^ Lost in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson
2 Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
3 Síðasti musterisriddarinn - kilja
' Raymond Khoury
4 5. riddarinn - kilja
James Patterson
5 Tvíburarnir - kilja
Tessadetoo
6 Saffraneldhúsiö - kilja
TessadeLoo
7 fslensk orðabók - 2007 útgáfa
MörðurÁmason
8 Flugdrekahlauparinn - kiija
Khaled Hosseini
s Sér grefur gröf - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
Hugarfjötur - kilja
Paulo Coelho
Listarnir voru gerðir út frá sölu dagana 29.05.07-04.06.07 (
Pennanum Eymundsson og Bókabúö Máls og menningar.
Gunnar Kvaran „Mer finnst
verk Beethovens svo stór-
kostleg og alheimsleg og
eilif að það er alveg sama
hvað ég heyri þau oft, ég fæ
aldrei leiða á þeim.“
alheimsleg og eilíf að það er alveg
sama hvað ég heyri þau oft, ég fæ
aldrei leiða á þeim. Þau tala alltaf
jafn vel til manns og það er alltaf
jafn gott að hlusta á þau.“
Alþýðleg tónlist og fleira gott
Alþýðleg tónlist er yfirskrift ann-
arra tónleikanna, laugardaginn 9.
júní kl. 17, þar sem efnisskráin er í
senn alþýðleg og alþjóðleg. Tónleik-
arnir hefjast á flutningi Gunnars og
Peters á verki fyrir selló og píanó
eftir Frakkann Francois Couperin.
Síðan vindur sögunni fram á 20. öld-
ina í Rússlandi. Þá koma fram báðir
píanóleikararnir, Peter og Víkingur
Heiðar, og leika fjórhent nokkra
þætti úr hinu fræga verki Pétrúska
eftir Stravinsky. Síðastur fyrir hlé
er svo Sígauninn eftir Maurice Ra-
vel í flutningi Guðnýjar og Peters.
Eftir hlé munu Guðrún Jóhanna og
Víkingur Heiðar flytja margar af
fegurstu söngperlum tónskáldanna
Sigfúsar Einarssonar, Emils Thor-
oddsen, Jóns Leifs, Jórunnar Viðar,
Jóns Nordal, Ólafs Ó. Axelssonar og
Sigvalda Kaldalóns.
Lokatónleikarnir verða á sunnu-
dagskvöldið 10. júní kl. 20. og bera
yfirskriftina Um lífið og ástina.
Fyrst á efnisskránni er katalónska
þjóðlagið Söngur fuglanna eftir X.
Montsalvatge, í flutningi Guðrún-
ar Jóhönnu, Gunnars og Peters. I
kjölfarið fylgja spánskar rómöns-
ur, sem teknar eru úr svokölluðum
„zarzúelum“, óperettum þar sem
tal, söngur og dans skiptast á. Þá
kemur Mefistóvalsinn í flutningi
Peters. Eftir hlé hefst leikurinn á
píanókvintett eftir Robert Schu-
mann þar sem tónskáldið tjáir
eiginkonu sinni, Clöru Schumann,
eilífa ást sína. Við píanóið verður
Víkingur Heiðar og með honum
allir strengjaleikarar hátíðarinnar.
I lokin verða flutt tvö lög eftir tón-
skáld frá Hveragerði. Atli Heimir
Sveinsson hefur fært lögin í hátíð-
arbúning.
Gunnar Kvaran segir undirbún-
ing tónlistarhátíðarinnar hafa tek-
ið langan tíma en bætir við: „Þetta
hefur verið ákaflega skemmtilegt
og við Guðný kona mín, sem er list-
rænn stjórnandi ásamt mér, höfum
verið ákaflega heppin því það er svo
mikið af góðu og yndislegu fólki hér
í Hveragerði sem hefur lagt mikla
vinnu og metnað í að gera þessa há-
tíð að raunveruleika.“
ónlistarhátíðin Bjartar sum-
arnætur verður haldin í
sjöunda sinn í Hveragerð-
iskirkju dagana 8.-10. júní.
Listrænir stjórnendur eru
hjónin Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari og Gunnar Kvaran sel-
lóleikari. Þau skipa ásamt Peter
Máté píanóleikara Tríó Reykjavík-
ur sem með öðrum tónlistarmönn-
um stendur að flutningi á hátíðinni.
Auk tríósins koma fram messósópr-
ansöngkonan Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir, píanóleikarinn Víking-
ur Heiðar Olafsson, Greta Guðna-
dóttir fiðluleikari og Guðmundur
Kristmundsson víóluleikari, en tvö
þau síðastnefndu eru búsett í Hvera-
gerði.
„Tilgangur svona hátíðar er fyrst
og fremst sá að koma góðri tónlist
til áheyrenda en það er ákaflega
ánægjulegt og rós i hnappagatið fyr-
ir bæjarfélag eins og Hveragerði að
geta haft sína eigin tónlistarhátíð
þar sem boðið er bæði alþjóðlegum
listamönnum og bestu listamönn-
um sem völ er á hér á landi og þótt
víðar væri leitað," segir Gunnar
Kvaran.
Hinn eilífi Beethoven
Efnisskrá tónlistarhátíðarinnar
er fjölbreytt og skiptist í þrennt. Be-
ethoven-veisla er yfirskrift fyrstu
tónleikanna, föstudagskvöldið 8.
júní kl. 20. Þá verða eingöngu flutt
verk eftir Ludwig van Beethoven en
á þessu ári eru 180 ár liðin frá and-
láti hans. „Við bjóðum þarna upp á
mjög glæsileg verk,“ segir Gunnar.
„Víkingur Heiðar spilar fyrst lítið pí-
anólag, til Elísu, sem mjög margir
píanónemendur hafa spreytt sig á
gegnum lífið en það er líklega eitt
þekktasta píanólag sem Beethoven
samdi. Síðan flytur hann Apassion-
ata-sónötuna sem er stórkostlegt
verk og eftir hlé er flutt síðasta pí-
anótríóið sem Beethoven samdi
sem hefur verið kennt við Rudolph
erkihertoga og nefnt Erkihertogatr-
íóið.
Öll þrjú verkin eru mjög ólík en
okkur finnst gaman að geta minnst
Beethovens með þessum hætti á
þesum tímamótum. Mér finnst
verk Beethovens svo stórkostleg og
Eilíf og alþýðleg tónlist
2007 BMW X5 4,8 I Sport
Til afhendingar strax með nánast öllum
fáanlegum búnaái.
Verö: 9,600 þús.
Getum einnig pantað 3,0 L og val um lit og búnað.
Verð frá 7 milljónum.
www.sparibill.is
Slcúlagötu 17
Sími: 577 3344
menningarmolinn
Gandhi gerist
óhlýöinn
Árið 1893 var ungur maður, Mo-
handas Gandhi, við nám í lögfræði í
Suður-Afríku. Áþessum degi, 7. júní,
hafði hann keypt sér lestarfarmiða
á fyrsta farrými. Þegar starfsmenn
lestarinnar sáu að hann var Indverji
skipuðu þeir honum að fly tja sig y fir
á þriðja farrými. Hann neitaði. Fyr-
ir vikið var honum vísað úr lestinni
á næsta viðkomustað hennar. Þá
hét hann því að helga líf sitt baráttu
gegn óréttlæti og verja rétt sinn sem
Indverji og manneskja. Hann dvaldi
lengur í Suður-Afríku en hann
hafði upphaflega ætlað og stofnaði
samtök sem börðust fyrir mannrétt-
indum Indverja þar í landi en suð-
urafrísk stjórnvöld unnu markvisst
að því að takmarka og skerða þau.
Gandhi skipulagði aðgerðir sem
byggðu á borgaralegri óhlýðni og
eftir sjö ár sá hann árangur erfiðis
síns þegar stjórnvöld komu til móts
við liröfur hans. Gandhi sneri aft-
ur til Indlands árið 1914 og gerðist
baráttumaður fyrir sjálfstæði lands
síns. Hann öðlaðist aðdáun og virð-
ingu heimsbyggðarinnar og var sárt
syrgður þegar hann var myrtur árið
1948.