blaðið - 07.06.2007, Page 24
24
FIMMTUDAGUR 7. JUNI 2007
matur
matur@bladid.net
f§
blaöiö
Sangría á pallinum
Ef þú ætlar að hafa partí á pallinum þegar góða veðrið kemur er
upplagt að byrja á því að búa til „velkomin“-drykk handa gestunum.
Það getur t.d. verið sangría að spænskum sið. Hægt er að kaupa
hann tilbúinn og síðan er ávöxtum og klökum bætt út í.
Gott er að skera niður snittubrauð með því að kljúfa það fyrst
í tvennt og síðan skipta því niður í 4-6 parta. Dreypið ólífuolíu
yfir sárið á brauðinu, rífið hvítlauk yfir og stráið síðan góðum
osti þar ofan á. Bakið undir heitu grilli í ofninum.
Marenfza Poulsen i Café Flóru
F
Astin blómstrar
í Grasagarðinum
Grænmeti
á grillið
Það er ekki nauðsynlegt að grilla
bara kjöt eða fisk. Grænmeti er
mjög gott að grilla og hafa jafnt
sem aðalrétt eða sem meðlæti
með öðru. Hver og einn getur
raðað sínu eftirlætisgrænmeti upp
á grillspjót en einnig má leggja
grænmetið á griliristina beint. Það
er um að gera að láta hugmynda-
flugið ráða þegar grillið er tekið
fram.
Tómatar
Það er vel hægt að grilla tómata en
best er að grilla þá heila eða hálfa.
Gott er að skera þá í helminga,
taka kjarnann úr og fylla þá með
t.d. osti, sveppum eða kartöflumús.
Þá er mjög gott að leggja tómat-
sneiðar í álpappír ásamt fersku
rósmaríni og smávegis ólífuolíu og
leggja síðan á grillið.
Paprika
Paprika er einnig frábær á grillið.
Hana er hægt að fylla eða skera
niður, pensla með olíu, krydda með
salti og pipar og setja beint á grillið.
Paprikan breytir um bragð þegar
hún hefur verið grilluð og verður
sæt og góð.
Maís
Maísstönglar eru mjög góðir
grillaðir. Hægt er að pensla þá
með olíu og setja beint á grillið en
einnig er hægt að pakka þeim inn
í álpappír með skvettu af rauðvíni.
Grillið í 20-30 mínútur.
Grillspjót
Gott grænmeti til að setja upp
á grillspjót er til dæmis: Sveppir,
paprika í bitum, laukur, kúrbítur,
agúrkur, blómkál, spergilkál en
einnig má setja sveskjur eða aðra
þurrkaða eða ferska ávexti.
Grillspjót úr tré þarf að láta liggja í
vatni í góða stund áður en þau eru
sett á heitt grill. Hægt er að útbúa
slík spjót og pakka vel inn áður
en haldið er í ferðalag. Einnig er
sniðugt að útbúa sósur og annað
heima áður en haldið er af stað
út á land en það sparar tíma við
matreiðslustörf þegar á áfangastað
er komið.
Marentza Poulsen
heldur upp á tíu
ára afmæli Café
FlóruíGrasagarð-
inumíLaugardal
á þessu sumri en
hún hefur rekið
staðinn öll árin. „Ég 'átti ekki von
á að ég myndi endast í þessu svona
lengi, gaf þessu þrjú ár. Hins vegar
hefur aðsóknin alltaf verið að auk-
ast og æ fleiri uppgötva þessa suð-
rænu perlu sem hér er,“ segir Mar-
entza og bætir við að þótt veðrið sé
ekki alltaf ákjósanlegt til útisetu sé
alltaf gott og hlýtt inni á veitinga-
húsinu og gróðurilmur í lofti.
„Ég vildi auðvitað hafa betra veð-
ur þar sem aðsóknin er enn meiri
á góðviðrisdögum en ég hef tekið
eftir því að fólk leitar eftir sumarst-
Ferskt salat með
léttmarineraðri lúðu
■ Setjið blandað ferskt salat á
disk
■ Skerið lúðu í þunnar sneiðar
og penslið með safa úr 1/2 sí-
trónu og 100 ml ólífuolíu.
B Látið standa í hálftíma eða
lengur eftir því hversu hrá lúðan
á að vera.
B Það er auðvitað smekksatriði
hvers og eins.
B Þræðið síðan lúðuna á prjóna
og berið fram með salatinu.
B Hellið smá dressingu yfir
salatið.
Dressing:
50 g salthnetur fínt saxaðar
80 g bananar, vel stappaðir
4 msk. balsamedik
4 msk. ólífuolía
1/4 rauður chili, fínt saxaður
4 msk. sítrónusafi
smá salt og pipar
Öllu blandað vel saman
B Ef dressingin er of þykk má
þynna hana með vatni.
I Þetta þolir alveg að standa
í nokkra daga - verður reyndar
bara betra.
þriöjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
Sumarstemning Marentza
Poulsen heldur upp á tíu ára
afmæli Café Flóru í Grasá-
garöinum í sumar.
Mynd/Ásdlí Ásgeirsdóttirl
„Vertu ekki dapurþótt veðr-
ið sé slæmtþví sólarstemn-
ingin erhérhjá mér, segi
ég oft við fólk og margir
hugsa einmitt þannig."
emningu hérna. Vertu ekki dapur
þótt veðrið sé slæmt því sólarstemn-
ingin er hér hjá mér, segi ég oft við
fólk og margir hugsa einmitt þann-
ig. Einnig hef ég tekið eftir því að
töluverð aukning er í því að pör eða
hjón fái sér göngutúr hér um garð-
inn á kvöldin og setjast svo inn til
mín og fá sér eitthvað létt að borða
og rauðvínsglas. Ástin blómstrar
hér í garðinum. Það er svo fallegt
að sjá það,“ segir Marentza.
Café Flóra er opin til kl. tíu á
kvöldin og Marentza segir að þótt
mesta traffíkin sé í hádeginu þá sé
hún alltaf að aukast á kvöldin. „Við
opnum staðinn í kringum miðjan
maí og höfum opið fram í septemb-
er. Ég breyti matseðlinum eitthvað
á hverju sumri en þó verð ég alltaf
að hafa kjúklingasalatið mitt í boði
því það eru svo margir sem koma
eingöngu til að fá sér það og þeir
koma aftur og aftur. Súpurnar eru
einnig vinsælar en þær eru mat-
armiklar og búnar til hér, eins og
reyndar brauðin og allt annað.“
Marentza er fræg fyrir danska
smurbrauðið sitt og það er auðvit-
að líka í boði fyrir gesti Café Flóru.
Margir koma til hennar til að fá
sér smurbrauð, öl og snafs, eins og
hún útskýrir sjálf. Eins og þeir vita
sem hafa gengið um Grasagarðinn
í Laugardal þá er umhverfið gríð-
arlega fallegt og Marentza hefur
hug á að hafa lifandi tónlist í sum-
ar í tilefni afmælisins. Páll Óskar
og Monika eru líka alltaf með sól-
stöðutónleika. „Hljómburðinn er
frábær hérna og þess vegna væri
mjög gaman að hafa fleiri tónlistar-
viðburði hér.“
Marentza er með tíu manns í
vinnu en starfsmenn voru einungis
þrír fyrsta árið. „Við viljum sinna
kúnnanum vel,“ segir hún.
Á veturna er hún með smur-
brauðsnámskeið bæði í höfuðborg-
inni og víða um landið auk þess
sem hún sér um jólahlaðborð í nóv-
ember og desember. „Ég tek mitt
sumarfrí í janúar eða febrúar," seg-
ir Marentza sem gefur hér lesend-
um Blaðsins ljúffenga uppskrift.
Austurlenskt grillspjót
Grillspjótin eru vinsæl og hér
kemur mjög góð uppskrift sem er
einfalt að gera. Þeir sem eru á leið í
ferðalag ættu að marinera kjötið og
þræða upp á spjótið áður en lagt er
af stað því kjötið er betra eftir því
sem það er lengur í kryddleginum.
Uppskriftin er miðuð við fjóra.
• 8oo g beinlaust lambakjöt, skorið
í bita
• 16 hvítlauksrif, gott er að grilla
hvítlaukinn eða baka áður
• í límóna, skorin í báta
• safi úr einni límónu
• 2 msk. fínt saxaður, ferskur
kóríander
• Teriyaki-sósa
Leggið kjötið í Teriyaki-sósuna.
Þræðið bitana upp á spjót og legg-
ið límónubáta og heil hvítlauksrif
á milli. Kreistið límónusafa yfir og
stráið ferskum kóríander yfir.
Grillið í 4-5 mínútur á hvorri hlið.
Berið fram með hrísgrjónum og
súrsætri sósu. Hægt er að kaupa til-
búna sósu.