blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 blaðiö Áfengi bara í glerstúku Stuðningsmaður FH-inga íhugar málssókn Ónafngreindur stuðningsmaður FH kannar nú rétt sinn til máls- sóknar í kjölfar þess að honum var fylgt úr stúku Laugardalsvallar af lögreglu á leik liðsins við Val. Vallar- stjórinn, Jóhann Kristinsson, segir að lögregla hafi verið kölluð til vegna áfengisneyslu stuðningsmanna FH. „Það voru ákveðnir einstaklingar með áfengi á sér og það var tekið af þeim. Áfengisneysla stuðnings- manna hefur þó ekki verið stórt vandamál." Aðspurður um gler- stúku vallarins þar sem áfengi er drukkið meðan á leiktíma stendur segir Jóhannes að það sé ekki brot á lögum. Mannamunur gerður Annar stuðningsmannanna sem var vísaðburtsegirgreinilegan mun á því hvert nafn manna sé þegar komi að því hvort þeir mega neyta áfengis á vellinum. Annars hefur hann ekki haldbærar skýringar á málinu, sem stuðningsmanna- hópnum þykir hið undarlegasta. Hann hafi ekki verið með bjór. bjorg@bladid.net STUTT • Ermarsund Benedikt Lafleur hefur enn þurft að fresta sundi sínu yfir Ermarsund vegna veðurs. Hann reynir aftur um helgina en Lafleur hefur frest til 14. júlí til að þreyta sundið. • Ráðgjafi Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir hefur verið ráðin í tímabundna stöðu sem ráðgjafi Guðlaugs Þórs Þórð- arsonar heilbrigðisráðherra. Verkefni hennar verður stefnu- mótun í heilbrigðismálum með sérstaka áherslu á forvarnir og lýðheilsu. • Orkusala Borgarráð sam- þykkti í gær samning um orkusölu Orkuveitu Reykjavíkur til hugsanlegs álvers í Helguvík. Minnihlutinn greiddi atkvæði gegn samningnum vegna óvissu um orkusölu vegna stækkunar í Straumsvík. Veikiraf klór- gasmengun Við sundlaugina á Eskifirði Klórgasmengunin á Eskifirði Stöðvarstjóri fékk 30 daga dóm Héraðsdómur Austurlands dæmdi í gær stöðv- arstjóra hjá Olís á Reyðarfirði í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir að hafa af gáleysi valdið klórgasmengun í sundlaug Eskifjarðar á síðasta ári. Ungur sumarstarfsmaður, sem einnig var ákærður, var sýknaður. Mönnunum var gefið að sök almannahættu- brot með því að hafa afgreitt og flutt 1000 lítra af edikssýru i tanki sem merktur var Edikssýra 80% í stað 1000 lítra af 15% klórlausn sem nota átti í sundlaug Eskifjarðar. Þetta leiddi til myndunar klórgass, sem er eitruð lofttegund, í klórtanki sundlaugarinnar með þeim afleiðingum að 45 einstaklingar sem voru á svæðinu urðu fyrir eit- uráhrifum gassins. Lýstu áhrifin sér aðallega í sviða í augum, uppköstum, ertingu og verkjum í öndunarfærum og lungum sem í alvarlegustu tilvikum leiddi til mikilla öndunarerfiðleika. Flestir þurftu á læknisþjónustu að halda og voru nokkrir fluttir með sjúkraflugi til Akureyrar og Reykjavíkur. Stöðvarstjórinn þykir hafa sýnt af sér gáleysi með því að lesa ekki á merkingar tanksins áður en hann gaf meðákærða fyrirmæli um að flytja hann til Eskifjarðar og dæla innihaldi hans á klór- tank sundlaugarinnar. Sumarstarfsmaðurinn var sýknaður í málinu með hliðsjón af ungum aldri, stöðu hans hjá fyrirtækinu og því að hann hefði fengið þau fyrirmæli frá yfirmanni sínum að flytja klórtank til sundlaugarinnar. Jafnframt með hliðsjón af því að edikssýra var ekki geymd á lager og að hann hafði ekki flutt eða meðhöndlað hana í starfi sínu. Þótti hann ekki hafa haft sér- staka ástæðu til að efast um að á tankinum væri klór. ingibjorg@bladid.net Efri-Brú fínpússuð fyrir Götusmiðjuna ■ Starfsemin flytur að Efri-Brú sem mun heita Brúarholt ■ Þörfin mikil og biðtíminn 1 ár Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Mummi i Götusmiðjunni er þessa dagana önnum kafinn við að flytja starfsemina yfir að Efri-Brú þar sem Byrgið var til skamms tíma. „Hér eru kassar út um allt og við höfum verið að fram eftir nóttu. Svo þarf ég að fylgjast með því að iðnað- armennirnir, sem loksins tókst að fá til starfa, hverfi ekki,“ segir hann í gamansömum tón og tekur um leið fram að héðan í frá verði heiti staðar- ins Brúarholt. Að sögn Mumma, sem heitir fullu nafni Guðmundur Týr Þórar- insson, þarf að fínpússa ýmislegt á staðnum áður en starfsemin getur hafist. „Hér er ekkert skemmt en hér var margt óhreint og slitið. Það hefur sums staðar þurft að skipta um gólfefni og það eru þegar farnir 10 gámar í ruslið og nokkrir eftir. Hér voru til dæmis bílhræ og öll úti- hús full af drasli." Yngra fólkinu komið annað Stefnt var að því að opna Götu- smiðjuna, sem hefur verið lokuð frá miðjum júní, í nýju húsakynnunum STAÐREYNDIR W Götusmiðjan er sérhæft ^ meðferðarheimili fyrir ungt fólk á aldrinum 15 til 20 ára. ► Meginvandi þeirra sem sækja meðferð í Götusmiðj- una er vímuefnaneysla, afbrot og annar neikvæður lífsstíll sem ekki er viður- kenndur í samfélaginu, að því er segir á heimasíðu heimilisins. um miðjan júlí en vegna skorts á iðn- aðarmönnum tekst það ekki fyrr en viku seinna. „Starfsemin hefur legið niðri frá 15. júní. Við hættum að taka inn skjólstæðinga á ákveðnum tímapunkti og það voru allir útskrif- aðir fyrir miðjan júní utan tveir. Það eru krakkar með gott bakland sem við þekkjum vel og við vinnum í þeirra málum úti í bæ. Barnavernd- arstofa hefur komið yngri skjólstæð- ingunum fyrir annars staðar eftir að við gerðum hlé á starfseminni Tuttugu í Brúarholti Götusmiðjan er með þjónustu- samning við Barnaverndarstofu um 13 rými fyrir unglinga á aldrinum 15 til 18 ára. „Hitt fjármögnum við sjálf. Þegar krakkar eru undir 18 ára aldri eru þeir félagslegt vandamál en daginn sem þau verða 18 ára eru þau orðin sjúklingar og heilbrigðis- vandamál sem er alveg fáránlegt.“ Að sögn Mumma greiðir Félags- þjónustan 80 þúsund krónur fyrir ungling sem er orðinn 18 ára og af þeirri upphæð fara 4 þúsund krónur á viku í vasapeninga. „Við sjáum þeim fyrir fæði og hús- næði og af því er augljóst að ekki er mikið afgangs. Þetta stendur ekki undir sér þannig og þess vegna erum við að rella í samfélaginu og selja geisladiska til að geta haldið þessu úti. Við eigum að vera með kennslu fyrir unglingana ef þeir eru í 10. bekk þegar þeir koma hingað en það er ekki hægt. Við fáum enga peninga frá kerfinu til þess.“ Mummi gerir ráð fyrir að alls verði unglingarnar að Brúarholti um 20. „Þörfin er það mikil. Bið- tíminn er 1 ár fyrir 18 ára og eldri. Ef rúm losnar fer iðuleea einhver í það.“ VILTU VITA MEIRA? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Hefurðu hugleitt hvar þú færð ódýrasta ÞAÐ MUNAR UM MINNA Léttskýjað Víða léttskýjað, en skýjað við austurströnd- ina og sums staðar þokuloft. Hiti 10 til 18 stig suðvestanlands, en 5 tii 11 stig við austurströndina. Allt að 20 stig Hæg austlæg eða breytileg átt. Súld eða þokuloft sums staðar við suður- og austur- ströndina, annars bjartviðri að mestu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum norðan- og vestanlands. VÍÐA UM HEIM Algarve 25 Amsterdam 16 Ankara 34 Barcelona 25 Berlín 16 Chicago 22 Dublin 12 Frankfurt 16 Glasgow 12 Halifax 20 Hamborg 15 Helsinki 13 Kaupmannahöfn 16 London 18 Madrid 29 Milanó 24 Montreal 22 Múnchen 15 New York 26 Nuuk 4 Orlando 26 Osló 19 Palma 23 París 18 Prag 23 Stokkhólmur 21 Þórshöfn 9 STUTT • Suðurlandsvegur Samband sveitarfélaga á Suðurlandi vill að framkvæmdir við tvöföldun Suð- urlandsvegar hefjist sem allra fyrst. Samtökin benda á, máli sínu til stuðnings, að umferð um veginn hafi aukist um fjórtán prósent á milli ára. • Umhverfismat Gróðursetn- ing 150 milljóna plantna í Þingeyjarsýslum sem mótvæg- isaðgerð vegna fyrirhugaðs álvers við Húsavík er háð umhverfismati. Fréttastofa Útvarpsins hefur þetta eftir Stefáni Thors, skipulagsstjóra ríkisins. Hann segir jafnframt að sveitarfélaginu beri að gera ráð fyrir gróðursetningunni á aðalskipulagi. Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt i blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.