blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 4
FRETTIR FÓSTUDAGUR 29. JUNÍ 2007 blaðió Refsiheimildir ekki til staðar Jón Ásgeir Jóhannesson var sýkn- aður af ákæruliðum 2-9 í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar var hann sakaður um brot gegn lögum um hlutafélög með því að láta veita lán af fjármunum Baugs til Fjárfestingarfélagsins Gaums, Fjárfars ehf. og systur sinnar. Gestur Jónsson, verjandi Jóns, fagnar dóminum. „Það er umhugsunarefni að nokkur maður þurfi að standa frammi fyrir því að mæta aftur og aftur fyrir dóm út af þessum sömu sak- argiftum. Forsendurnar byggjast á því að það eru ekki refsiheim- ildir til staðar í íslenskum lögum varðandi þann verknað sem honum er gefinn að sök.“ Líklegt að Tryggvi áfrýi Tryggvi Jónsson er dæmdur í héraði í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Hann var sakaður um að hafa látið Baug greiða fyrir persónuleg útgjöld sín á ferðum sínum til Bandaríkjanna. Þar á meðal var sláttudráttarvél, golfsett, skópar og aðgöngumiðar í Disney World í Flórída. Jakob Möller, verjandi Tryggva, segir sennilegt að úrskurði héraðs- dóms verði áfrýjað til Hæstaréttar. „Það er augljóst af ákvörðun málsvarnarlaunanna að hann er sýknaður af verulegum hluta ákæruliðanna sem felast í 19. liðn- um. Mér finnst mjög ósennilegt að hann vilji una þessum dómi og því sennilegt að hann muni áfrýja.“ Áfrýjað í öðrum hluta málsins Viðbrögð Sigurðar Tómasar Magn- ússonar, setts saksóknara í Baugs- málinu, voru blendin er dómur féll í gær. „Hvað varðar ákæruefni á hendur Jóni Ásgeiri hefur héraðs- dómur byggt sýknudóm á sömu forsendum og leiddu til frávísunar í fyrri dómum. Héraðsdómur hefur því ekki skipt um skoðun að því leytinu til að þetta séu óskýrar refsiheimildir sem ákæruvaldið reisti þá ákæru á.“ Jón Gerald og Tryggvi hafa 4 vikna áfrýjunarfrest, en ákæru- valdið hefur 8 vikur. Sigurður segir að ákæruvaldið bíði eftir ákvörðun þeirra. Fyrri dómi í málinu og var áfrýjað til Hæsta- réttar í gær. Réttarkerfið er einnota Jón Gerald Sullenberger hlaut 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa aðstoðað Jón Ásgeir og Tryggva við að rangfæra bók- hald Baugs. Jón Gerald segist ætla að áfrýja dómnum og hyggst fara með málið alla leið til Mannrétt- indadómstólsins í Strassborg, ef svo ber undir. „Þetta staðfestir að réttarkerfið á íslandi er einnota og það eru greinilega ekki allir jafnir fyrir dómi. Það er með ólíkindum að maður skuli vera dæmdur á fram- burði sínum sem vitni. Þetta er galinn dómur og maður er nánast orðlaus. Það virðist vera sem þessi fjölskylda sé búin að kaupa sig frá allri ábyrgð.“ magnus@bladid.net Innbrot við lögreglustöð Vegfarandi hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu um klukkan sex aðfaranótt fimmtudags en hann hafði séð karlmann spenna upp glugga skammt frá lögreglustöðinni. Náði lögreglan mann- inum skömmu síðar en á honum fannst duft sem talið er að sé amfet- amín. Manninum var sleppt um hádegið í gær eftir yfirheyrslu. hbv Þyrla sótti hestamann Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti karlmann á sjötugsaldri sem hafði dottið af hestbaki í Hóla- skógi nærri Stöng í Þjórsárdal. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli kenndi maðurinn til í bakinu og var því ákveðið að fá þyrluna til að flytja hann. Var farið með hann á slysadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem hann gekkst undir rannsóknir. hbv Skipta á kókaíni og hassi Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn segir verð kókaíns vera mjög lágt í Brasilíu, sem mögulega skýri þá staðreynd að íslending- arnir þrír hafi verið handteknir þar í landi vegna fíkniefnainn- flutnings. Ekki sé ólíklegt að menn flytji hass til Brasilíu í skiptum fyrir kókaín til að selja annars staðar. Sá sem síðast var tekinn var með sex kíló af kókaíni, samkvæmt Fréttablaðinu. hos y Innimálning Gljástig 3.7.20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning é frábæru verði •S Útimálning S Viðarvörn / Lakkmálning ■S Þakmálning ✓ Gólfmálning S Gluggamálning ^ÍSLANDS MÁLNING Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður Opið laugard. 10-16 Sætúni 4, S. 5171500 - Skútuvogi 13, S. 517101 við hliðina á Bónus Verjandinn og annar sakborn inga Brynjar Níelsson og Ásgeir Davíösson, eigandi Goldfinger, reyna að gefa réttinum ráö. Leituðu lyfja en fundu einkadans ■ Ákært fyrir einkadans í lokuðu rými á Goldfinger ■ Kvartanir um að karlmönnum hafi verið gefin ólyfjan Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Óeinkennisklæddir lögreglu- menn fóru í rannsóknarleiðangur á Goldfinger haustið 2005. Kvartanir höfðu borist um að á staðnum hefði karlmönnum verið gefin ólyfjan og peningar teknir út af reikningum þeirra, oft fleiri hundruð þúsund krónur. Ekkert kom út úr skoðun- inni sem sannaði að karlmönnum hefði verið gefin ólyfjan. Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger, og tvær dansmeyjar voru hins vegar ákærð í kjölfar hús- leitar 7. október 2005 fyrir að hafa staðið fyrir og sýnt einkadans í lok- uðu rými á staðnum. Er slíkt brot á lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar. Aðalmeðferð var i Héraðsdómi Reykjaness í gær. Lögreglusamþykkt höfð í huga Á Goldfinger er básunum þar sem einkadansarnir fara fram lokað með tjaldi þegar slíkur dans á sér stað. Lögreglumennirnir tveir sem báru vitni í gær sögðu að ekki væri hægt að sjá hvað færi fram á bak við tjöldin og því erfitt fyrir lögreglu að fylgjast með starfsemi staðarins. Telja þeir 28. grein lögreglusam- þykktar Kópavogsbæjar brotna. Ásgeir segir hins vegar að staður- inn hafi verið hannaður með lög- reglusamþykktina í huga og hafi fyrir húsleitina fengið samþykki fyrir einkadansi meðal annars frá lögreglu og sýslumanni. Að hans mati færu einkadansarnir ekki fram í lokuðu rými þar sem tjöldin næðu ekki alveg niður í gólf og auð- velt væri að draga þau frá til að sjá inn í rýmið. Lágmark 170 þúsund í laun Dansmærin sem bar vitni í gær er tailensk og hefur unnið með hléum í nokkur ár á Goldfinger. Sagði hún að hluti af því sem hún á að gera á staðnum sé að dansa einkadansa. Að sögn Ásgeirs fær staðurinn miklar tekjur af einkadönsunum en sér- stakt gjald er tekið fyrir slika dansa. Erfiðlega gekk að yfirheyra dans- meyna vegna tungumálaörðugleika. Dansmeyjarnar fá hlutdeild af LÖGREGLUSAMÞYKKTIN ► „ [..JSIík starfsemi skal háð sérstöku eftirliti og er lögreglunni heimilt að fara um samkomusali og önnur húsakynni sem gestir hafa aðgang að. [...]Við sýningar á nektardansi í næturklúbb- um er þeim sem dansar bannað að vera í lokuðu rými með viðskiptamanni meðan á sýningu stendur sem og að fara um meðal áhorfenda." hverjum seldum dansi en lágmarks- laun hjá þeim sem hafa atvinnuleyfi er lágmark 170 þúsund krónur á mánuði. Ákæruvaldið telur hæfilega refs- ingu fyrir Ásgeir vegna meints brots á lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar vera sekt upp á 700 þúsund krónur en hjá dansaranum 50 þúsund. Hin dansmærin sem er ákærð í þessu sama máli var ekki á landinu í gær og verður þvi mál hennar tekið fyrir síðar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.