blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 blaöið KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@bladid.net Það er alltaf auðveldara að trúa en að afneita. iá- kvæðni er okkur eðlislæg. John Burroughs Nýtt sögurit Sagan er nýtt rit sem ætlað er bókhneigðum einstaklingum sem hafa áhuga á sögunni. í ritinu er að finna sögur um volduga keisara og konunga og ris og hrun stórra menning- arsamfé- laga. Einnig sögur umlíf almúga- manns í gengum árþús- undin -alltfrá þrælum sem strituðu í skugga píramídanna til átta ára háseta um borð í kafbát í seinni heimsstyrjöldinni. Ritið er skreytt fjölda mynda. Kvartett Jóels á Jómfrúnni Á fimmtu tónleikum sumar- tónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu, laugardaginn 30. júní, kemur fram kvartett saxófónleik- arans Jóels Pálssonar. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Eðvarð Lárusson á gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLe- more á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og standa til kl. 17. Leikið verður utandyra á Jóm- frúartorginu ef veður leyfir, en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. AFMÆLI í DAG Antoine de Saint-Exupéry rithöfundur, 1900 Giacomo Leopardi rithöfundur, 1798 Georg Guðni „Hann hefur þróað list sína af einurð og er mjög vandvirkur rannsakandi," segir Jón Proppé gagnrýnandi um listamanninn. Yfirlitssýning á verkum Georgs Guðna í Iistasafni Akureyrar Sjálfstæður rannsakandi Ein af myndum Georgs Guðna á sýningunni. í þremur sölum Listasafn- ins á Akureyri má sjá myndir Georgs Guðna en yfirlitssýning á verkum hans verður opnuð nú um helgina. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@bladid.net Á laugardag verður opnuð í Lista- safninu á Akureyri yfirlitssýning á verkum Georgs Guðna landslags- málara. í stað þess að sýna verk hans í réttri tímaröð er hver hinna þriggja sýningarsala safnsins til- einkaður ákveðnu minni sem oft bregður fyrir á ferli hans: fjöll dalir og sjóndeildarhringur. „Georg Guðni er mjög sjálfstæður listamaður og hefur náð mjög langt, ekki síst vegna vinnubragða sinna. Hann hefur þróað list sína af einurð og er mjög vandvirkur rann- sakandi," segir Jón Proppé gagnrýn- andi um þróun Georgs Guðna sem listamanns. „Hann er af þeirri kynslóð sem steig fram með nýja málverkið á níunda áratugnum og þá var allt leyfilegt. Georg Guðni skar sig að vissu leyti frá hópnum. Manni fannst að hann tæki landslagið alvarlegar en hinir. Hann var að stúdera landslagið og með tímanum þróaðist list hans út í þessi miklu málverk með áberandi litadýpt. Það er ekki hægt að segja að hann hafi gengið inn í íslenska lands- lagshefð því hann kom að henni utan SÝNINGIN ágúst. ► í tilefni sýningarinnar hefur Listasafnið á Akureyri gefið út 180 síðna bók um Georg Guðna. frá. í list sinni vann hann sig inn í landslagið og inn í nýja sýn á landið.“ Jón Proppé segir að í öllum geirum myndlistar hafi listamenn síðustu tuttugu og fimm árin eða svo verið að enduruppgötva náttúruna og leitast við að bregða upp nýrri sýn af henni í gegnum verk sín. „Segja má að Georg Guðni sé einn af stólp- unum í þessari endurnýjuðu nátt- úrusýn. Þegar listamenn endurupp- götva náttúruna þá kemur yfirleitt alltaf eitthvað skemmtilegt út úr því. Georg Guðni fann sína eigin að- ferð og þróaði list sína. Hann hefur sýnt mikið og það hefur gengið vel að koma verkum hans á framfæri. Það hefur líka mikið verið skrifað um hann, og kannski meira en um flesta samtíðarmenn hans. Staða Ge- orgs Guðna í íslenskum myndlistar- heimi er mjög sterk.“ Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabðk • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tóniist • Tilkynningar f fjölmiðla • Landsbyggðarþjðnusta • Lfk/lutningar MENNINGARMOLINN Globe brennur Á þessum degi árið 1613 brann Globe-leikhúsið í London þegar hleypt var af skoti úr fallbyssu í sýningu á leikriti Shakespeare, Hinrik VIII. Eldur kviknaði í stráþaki hússins og það brann til grunna. Leikhúsið hafði verið byggt árið 1599 á suðurbakka Thames af enska leikaranum Richard Burbage og félögum hans. Á þaki hússins var hnöttur og tilvitnun í rómverska skáldið Petronius: „Heimurinn er leiksvið." William Shakespeare átti hlut í leikhúsinu og þar voru mörg af þekktustu leikritum hans sýnd. Eftir brunann árið 1613 var leik- húsið endurbyggt en þremur ára- tugum seinna var það eyðilagt í bresku borgarastyrjöldinni. Árið 1970 hóf bandaríski leikarinn Sam Wanamaker fjársöfnun í því skyni að endurbyggja leikhúsið í sínum upphaflega stíl og það tók til starfa árið 1997.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.