blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 23

blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 23
blaöíö FÖSTUDAGUR 28. JLINÍ 2007 23 BHl vikunnar 60 Crusier Kristinn Matthías Símon- arson lumar á ansi reffi- legum LandCruiser 60 í bílskúrnum hjá sér. Eftir Einar Elí Magnússon einareli@bladid.net________ „Þetta er bíll sem ég fékk fyrir fjórum árum. Hann er árgerð 1986 og var til þess að gera óbreyttur, á gömlu fjöðrunum og 35” dekkjum. Eg fór á honum í tvær eða þrjár fjallaferðir og tók mig svo til og byrjaði að breyta honum meira,“ segir Kristinn. Fyrir utan að setja fourlink fjöðrun með loftpúðum undir bíl- á lokastigi MEÐAL BREYTINGA Afturhásing færð um 55 cm. Fjöðrun skipt út fyrir fourlink og loftpúða. Hásingar eru Dana 44 og 12 bolta. Breidd bíisins er 2,55 m. inn setti Kristinn nýjar hásingar undir hann. „Að framan er Dana 44 og að aftan 12 bolta. Þetta er bara það sem var til. Hvort það var vit- urlegt eða ekki, það er annað mál. Það eru skiptar skoðanir á því.“ Vígalegur Bíllinn er reffilegur á að líta, enda 2,55 m á breidd. 700 hestöfl, ekkert bensín Á meðan sumir bílaframleið- endur berjast enn við að fram- leiða tvinnbíla eru aðrir búnir að stroka bensíntanka alveg út af sínum teikningum. Lightning GT, breskur sportbíll sem hefur verið tvö ár í hönnun, er gott dæmi um öflugan og umhverfisvænan bíl sem er að minnsta kosti jafn þægilegur í notkun og hefðbund- inn bíll. Til dæmis tekur aðeins 10 mín- útur að hlaða hann rafmagni sem dugar til 400 km aksturs. Það er nokkuð gott miðað við að rafmót- orinn er yfir 700 hestöfl og skilar bílnum í hundrað á undir fjórum sekúndum. Lightning GT er búinn öllum helstu þægindum, t.d. leiðsögu- kerfi, er tífalt ódýrari í rekstri en sambærilegur bensínbíll og þökk sé nýrri rafhlöðutækni þarf ekki að hafa áhyggjur af rafgeym- v unum fyrstu 12 árin. ÚRBÍLSKÚRNUM • Nýr Pontiac Eftir nær enda- lausa deyfð hjá Pontiac sést loks til sólar. Á bílasýningu í Chic- ago í vikunni var frumsýndur 6 lítra, 362 hestafla G8 GT sem er, hreint út sagt, fallegri en skall- inn á Britney Spears. Ekki mun verðið heldur fæla kaupendur frá, því í Vesturheimi kemur dýrasta útgáfa til með að kosta undir 2,2 milljónum króna. • Fyrsta myndfn Bílskúrsmenn rákust á þessa mynd á vefhoppi sínu í vikunni. Þetta mun vera frumgerð af 2008 árgerðinni af Porsche 911GT2, sem fer fljótlega í framleiðslu og því er útlit bílsins líklega nokkuð endanlegt. Bíllinn verður búinn 520 hestafla 3,6 lítra boxervél með túrbínu, afturhjóla- drifi og hámarkshraða upp á rúma 320 kílómetra. • Feluleikur Þessi mynd náðist af Porsche Panamera-vinnuhesti í Kaliforníu í vikunni. Þrátt fyrir að vera hulinn allskyns hlífum og felu- búnaði fæst nokkuð góð hugmynd um endanlegt útlit bílsins af þessari mynd. Þó er erfitt að gera sér grein fyrir smáatriðum fyrir aftan B-bitana, enda markmið Porsche að halda smáatriðum leyndum eins og kostur er. • Bílstjóraleit Nennirðu ekki að hanga lengur í bílskúrnum? Langar þig út að keyra? Farðu á www.corvusexpedition.com og fylltu út umsókn um að verða annar tveggja íslenskra öku- manna til að keyra yfir Suður- skautslandið í tveggja mánaða leiðangri. Hæfnispróf verða hérlendis í ágúst en leiðangur- inn hefst í október. breytinga „Litlu“ 35” dekkjunum hefur líka verið skipt út fyrir 44” Trexus og afturhásingin færð aftur um 55 cm. Eftir breytingarnar er breidd bíls- ins orðin 2,55 metrar. Hann er með 4 lítra dísilvél og sjálfskiptingu, er ryðlaus, með heillega grind og allur í ágætis standi. Kristinn hefur líka sett í hann 300 lítra eldsneytistank og stefnir á að setja nýja túrbínu á vélina. „Svo langar mig að prófa hvort hann taki við própangasi. En ef þetta virkar allt og ég á bílinn áfram kemur vel til greina að setja eitthvað annað í húddið.“ Kristinn segist hafa eytt um 6- 700 þúsund krónum í bílinn, sem hann keypti upphaflega á hálfa milljón. Tímann segist hann ekki mæla en allar fríhelgar og flest kvöld síðustu tveggja ára hafa farið í bílinn. „Ég hef aldrei breytt jeppa áður og hefði örugglega gert margt öðruvísi í dag en í upphafi. Ég er samt búinn að ráðfæra mig við al- vöru kalla, eins og Gunnar Egils- son sem ráðlagði mér með loftpúða í fjöðrunina.“ Bíllinn er á lokastigi breytinga, að- eins er eftir að smíða framstuðara og klára smálegan frágang hér og þar. „Ég ætla að reyna að vera tilbú- inn með hann fyrir sumarhátíð 4x4 þann 20. júlí og reikna með að það hafist," segir Kristinn að lokum. RODA RESORT RODA RESORT RLSIDIiNClAL . Sumarhús á besta stað á Spáni ✓ A þremur hæðum Stutt á ströndina og í alla þjónustu Utborgun aðeins kr. 250.000.- \ ib - 7 4» Upplýsingar í síma 660 7750

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.