blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 11

blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 11
biaöið FÖSTUDAGUR 29. JtlNÍ 2007 FRÉTTIR 11 Álit umheimsins á Bush og Bandaríkjamönnum fellur vegna Íraksstríðsins Tuttugu hálshöggvin lík á árbakkanum í Bagdad 1 Tæplega þrjátíu létust og tugir særðust þegar bílsprengja sprakk við mannmarga samgöngu- miðstöð í hverfi sjítamúslíma í Bagdad, höfuðborg íraks, í gærmorgun. írösk yfirvöld tilkynntu jafnframt að tuttugu manns hefðu fundist hálshöggnir á árbakka Tígris suður af Bagdad í gær. Þá tilkynntu talsmenn breska hersins að þrír breskir her- menn hefðu látist í Basra í gær. 4i Fjölskylduharmleikur Hröpuðu í fjallaklifri Fimm Frakkar úr sömu fjölskyldunni létust við fjallaklifur í 3.400 metra hæð á fjallinu Vallon, nærri bænum La-Chapelle-en-Valgau- demar í frönsku Ölpunum á miðvikudaginn. Lögregla segir að öll hafi verið bundnir saman í reipi og hröpuðu þau á annað hundrað metra niður í stórgrýti er einn missti fótanna á ís. Hópurinn samanstóð af tveimur körlum, konu og 21 og 17 ára gömlum dætrum annars mannsins. Götubardagar í Ríó Eiturlyfjasalar drepnir Nítján eiturlyfjasalar létust í götubardögum við lögreglu í borginni Rio de Janeiro í Bras- ilíu á miðvikudaginn. Átökin blossuðu upp eftir að rúmlega þúsund lögreglumenn réðust inn í fátækrahverfið Alemao þar sem ítök eiturlyfjasala eru mikil. Borgaryfirvöld vinna nú hörðum höndum að því að gera borgina öruggari, en hún hýsir Ameríkuleikana sem hefjast þann 13. júlí næstkomandi. STUTT • Látinn Kiichi Miyazawa, fyrrum forsætisráðherra japans, lést í gærmorgun, 87 ára að aldri. Miyazawa gegndi embættinu á árunum 1991 til 1993. • Bann Evrópusambandið hefur bannað öllum indónes- ískum flugfélögum að fljúga vélum sínum um lofthelgi aðildarríkja sambandsins. Flugfélögin uppfylla ekki skil- yrði um öryggi. • Eldingar Rúmlega fjörutíu manns hafa látist af völdum eld- inga í Kína síðustu fimm daga. Flestir hinna látnu hafa verið bændur sem hafa orðið fyrir eld- ingu við störf úti á ökrum. Íraksstríðið hófst með innrás Bandaríkjamanna og banda- lagsríkja þeirra inn í Irak þann 20. mars árið 2003. Árásin var rökstudd með því að íraksstjórn var sögð búa yfir gereyðingar- vopnum og nauðsyn þess að koma íraksstjórn frá. Fjölmörg ríki hafa þegar dregið herlið sitt frá landinu, en nú eru um 170 þúsund erlendir hermenn í írak, aðallega bandarískir hermenn. 2 3 Fjöidi látinna í stríðinu er mjög á reiki, en fleiri tugir látast í árásum herliðs og andspyrnu- manna á degi hverjum. Sumir áætla að fleiri hundruð þúsund manns hafi týnt lífi frá upphafi stríðsins. Um fjórar milljónir íraka eru sagðar hafa neyðst til að flýja heimili sín. Um 3.500 bandarískir hermenn hafa látist í írak frá árinu 2003 og um 300 hermenn af öðrum þjóðernum. . '■ Álit umheimsins á Bush Banda- ríkjaforseta og Bandaríkjunum hefur fallið verulega á síðustu árum samkvæmt nýrri könnun Pew-rannsóknastofnunarinnar. Viðhorfsbreytingin er fyrst og fremst rakin til Iraksstríðsins, umdeildrar utanríkisstefnu og hugmynda Bandaríkjamanna um lýðræði. Meirihlutinn vill að Bandaríkin dragi herlið sitt til baka bæði frá írak og Afganistan. íþróttaskór sundföt sportfatnaður ’ t ’ < " * 'i. SMÁRALIND SlMI 545 1550 O GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 O KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 UTILIF

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.