blaðið - 29.06.2007, Qupperneq 24
24
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007
FISHER'S Motion, Gore-Tex
6 laga Gore-Tex vöðlur
og vöðlujakkar.
10 ára reynsla á íslandi.
Hafa reynst frábærlega
að sögn kröf uharðra
neytanda.
Toppgæði
og gott verð!
uremng:
Ueiðibúsio
Holmttfieð 4.101 Revkjevtfc
Sínai: 562 0095 - 890 4047
-f
veidikortid.is
fmmriÐj
ÆZsvatnasvæði
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Merkið sem þú treystir
—Abu
Garcia
DREIFING/ÞJÓNUSTA:VEIÐITÆKNI S:5771400 FOR UFE
LÍFSSTÍLLVEIÐI
veidi@bladid.net
Það þarf rign-
ingar og engar
smárigningar í
nokkra daga
Þurrkar í ám Álftá á Mýrum
var ekki vatnsmikil í vikunni.
Veiðimaöurinn kíkir hér í Hrafns-
hylinn en sá lítið. Mynd/G.Bender
Veiðimenn vilja rigningu
Vatnsleysi í mörgum ám
VEIÐISÖGUR
Það er ekki nóg með
að laxinn komi ekki í
árnar heldur er vatns-
leysið orðið vandamál í
mörgum veiðiám, eins
og Laxá í Kjós. Hún er að
þorna upp.
Eftir Gunnar Bender
g.bender@bladid.net
Laxveiðin gengur rólega en
straumurinn fer stækkandi og það
er fyrir mestu, veiðimenn halda í
vonina. Laxafjöldinn upp úr ánum
þessa dagana er ekki mikill.
„Ég hef séð Laxá vatnslitla en aldrei
eins og núna. Það þarf rigningar og
engar smárigningar í nokkra daga,"
sagði veiðimaður sem ætlar að veiða
í Laxá í Kjós eftir nokkra daga.
„Við eigum veiðileyfi í Álftá á
Mýrum og erum að hugsa um hvort
við eigum að fara. Ég held að við
kíkjum aðeins,” sagði Marteinn
Jónasson þegar blaðamaður spurði
hann um væntanlegan veiðitúr í
Álftá sem er vatnslítil þessa dagana.
Veiðimenn eru uggandi yfir
Það hefur varla komið deig-
ur dropi úr lofti víða um land
og það hefur haft sitt að
segja fyrir veiðimenn sem
núna reyna að veiða í ánum.
Á Mýrunum er árnar orðnar
vatnslitlar en það á ekki við
um þær allar. í Langá á Mýr-
um er gott vatn enda vatns-
miðlun uppi í Langavatni.
Það er ekkert skrítið að
veiðimenn tali sín á milli
um það hvenær þurrkurinn
hætti eiginlega og hann fari
að rigna fyrir alvöru.
þurrkinum í veiðiám og vonast
eftir að hann fari að rigna. Nú er
ekki spurt hvenær hann hætti að
rigna heldur er það þurrkurinn sem
angrar menn.
Einn lax veiddist í Leirvogsá en
hann veiddist í Brúarhylnum en
ekki er mikið af fiski í ánni. I Elliða-
ánum togast upp einn og einn lax á
hverjum degi en aðeins tveir veiði-
menn hafa fengið kvótann, sem eru
3 laxar.
Flottur fiskur Marteinn Jónas-
son með 3,2 kg nýgenginn fisk
úr Myrkhyl í Norðurá, veiddan
fyrir nokkrum dögum.
Vatnsdalsá
Frábær silungsveiði
„Það er afskaplega rólegt hérna
hjá okkur á svæðinu hvað varðar
laxveiðina og einungis 4 laxar hafa
veiðst á 6 dögum,“ sagði Pétur Pét-
ursson þegar við heyrðum í honum
við Vatnsdalsá.
„Það sem helst hefur hamlað meiri
veiði er mikill vatnshiti í Flóðinu
og þar af leiðandi í Hnausastreng
líka, hins vegar hefur silungsveiðin
gengið geysilega vel og hafa menn
og konur skemmt sér við að landa
vænum bleikjum og sjóbirtingi, allt
að 5 pundum, þannig að fólk fer sátt
frá okkur enda skilja menn að eng-
inn getur stjórnað náttúruöflunum,“
sagði Pétur ennfremur.
Víðidalsáin hefur líklega verið ró-
leg en nokkrir laxar eru komnir á
land og hann er eitthvað farinn að
togast upp úr Blöndu.
Vantar þig veiðileyfi? www.svfr.is er rnálió!
Úrval veiðileyfa - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu
Fréttir, greinar, fróðleikur og margt fleira