blaðið - 29.06.2007, Page 38
38
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007
blaóið
FÓLK
folk@bladid.net
„Lyktin minnti bara á
gamla góða tíma og að
þjóðin er í grunninn bara
eitt lítið sjávarþorp."
Hvort fannstu skítalykt eða peningalykt í gær?
Gísli Marteinn Baldursson er einn þeirra borgarbúa sem fundu
megnan fnyk leggja yfir miðbæinn í gær, en fiskimjölsverk-
smiðjan HB Grandi í Örfirisey var að framleiða beinamjöl, sem
orsakaði lyktina. Slík lykt var löngum kölluð peningalykt því
hún minnti menn á að vel gengi í sjávarútveginum.
HEYRST HEFUR
Þór Jósepsson, fyrrum herra
ísland, hefur lítið verið í sviðs-
ljósinu undanfarið. Hann dúkk-
aði þó upp í Moggaboltanum
svokallaða
í gær, þar
sem ýmsir
blaða- og
fjölmiðla-
menn
tengdir
Morgun-
blaðinu
koma
saman til
knattspyrnuiðkunar. Skemmst
er frá því að segja að pilturinn
stóð sig með stakri prýði og stóð
uppi sem sigurvegari...
Breiðhyltingar fóru margir
hverjir óþrifnir til vinnu í
morgun, þar sem heitavatnsæð
hafði farið í sundur. Nema þá að
einhverjir hafi
látið sig
hafa kalda
sturtu, enda
vel heitt í
veðri. Búið
var að ljúka
viðgerð
um miðjan
dag og gátu
Breiðhylt-
ingar því
skolað af
sér svitann
með heitu vatni. Má því segja að
í morgun hafi Breiðhyltingum
runnið kalt vatn milli skinns og
hörunds...
Enn einn starfsmaður 365
hefur yfirgefið skútuna, sem gár-
ungar segja sökkvandi, ef miðað
er við þann fjölda fólks sem
hætt hefur störfum þar. Bryn-
hildur Ólafsdóttir, sem hlaut á
sínum tíma Blaðamannaverð-
launin, verður forstöðumaður
samskiptasviðs Saga Capital
Fjárfestingarbanka. Ekki er
óalgengt að fjölmiðlafólk ráði
sig til einkafyrir-
tækja, enda
launin þar
talin mun
„sanngjarn-
ari“...
Ólöf María Ólafsdóttir er frumlegur hönnuður
Útrás fyrir sköpunina
Ólöf María Ólafsdóttir er
nýútskrifaður vöruhönn-
uður úr Listaháskóla fs-
lands. Húnersannkölluð
uppfinningakona og eftir
hana liggja mörg stór-
sniðug verk.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Ólöf María Ólafsdóttir, eða Marý,
útskrifaðist sem vöruhönnuður frá
Listaháskóla íslands
2. júní síðastliðinn. Hún er með
eitt verka sinna til sýnis að Kjar-
valsstöðum á sýningunni Magma/
Kvika sem er ein viðamesta sýning
sem sett hefur verið upp á íslenskri
samtímahönnun. En Marý er fleira
til lista lagt.
„Ég hafði ákveðið að læra hár-
greiðslu strax við fermingu því
ég var svo óánægð með ferming-
argreiðsluna og sagðist sjálf geta
gert betur. Ég fór því í Iðnskólann
í Reykjavík og lærði fagið og útskrif-
aðist þaðan með hæstu meðalein-
kunn,“ segir Marý en fannst starfið
þó ekki nógu skapandi.
„Ég kláraði samninginn minn á
hárgreiðslustofunni Onix á Lauga-
vegi. Þetta er góð stofa og ég var
mjög ánægð þar. En ég leit fyrst og
fremst á þetta sem praktískt nám
sem gæti nýst mér alla ævi, hvar
KONAN
Ólöf María, eða Marý, kem-
urfrá Bolungarvík
Hún er 29 ára
Marý er útskrifuð hár-
greiðslukona og vöruhönn-
uður
sem er í heiminum. Mér fannst
þetta, þegar á hólminn var komið,
of staðlað og vildi fá meiri útrás
fyrir sköpunargáfuna. Ég áttaði
mig á að ég þyrfti ekki að enda í ein-
hverju praktísku og ákvað að fara
í Listaháskólann. Eg var komin á
fremsta hlunn með að velja graf-
íska hönnun þegar ég sá verk hjá
vini mínum sem var í vöruhönnun.
Þá heillaðist ég algjörlega. Mér
fannst ég líka verða að hafa það
sem ég vann við á milli handanna;
eitthvað áþreifanlegt sem ég gat
komið við, ólíkt grafískri hönnun,
sem er meiri tölvuvinna.“
Marý, sem einnig er liðtæk
myndlistarkona, hefur unnið að
ýmsum sniðugum hlutum. Þeirra
á meðal er Dyggðarteppið og Krían
(PowerNapCap).
„Dyggðarteppið er í raun byggt á
mjög gamalli hugmynd, eða frá því
um 17. öld. Slíkt teppi er til á Þjóð-
minjasafninu og er talið hafa verið
í eigu fjögurra systra séra Hjalta í
Vatnsfirði, sem einnig saumuðu
það, nema sú yngsta. Enda kom það
á daginn að hennar hjónaband ent-
ist ekki lengi. Hún hélt fram hjá, átti
barn utan hjónabands og það var
allskyns vesen á henni. Hinar syst-
urnar voru heppnari og fer engum
sögum af erfiðleikum í þeirra hjóna-
böndum. Er sú gæfa síðan auðvitað
rakin til Dyggðarteppisins. Teppið
mitt er unnið úr íslenskri gæðaull
og til hliðsjónar hafði ég niður-
stöður Gallup-könnunar sem sýnir
hvað íslendingar telja sem dyggðir
nútímans. Þetta er því einskonar
nútímadyggðarteppi, sem minnir
mann á að ástunda dyggðir. Því er
óþarfi að sauma í það sjálfur, nóg
er að hafa það í kringum sig. Krían
er síðan verkefni sem ég vann út frá
orkublundi. Þetta fyrirbæri þekk-
ist helst í Tókýó og New York, þar
sem stórborgarlífið getur verið lýj-
andi. Því hafa vinnuveitendur leyft
starfsfólki sínu að taka 15-30 mín-
útna blund yfir daginn, sem skilar
viðkomandi auknum krafti, að því
gefnu að hann nái ekki djúpsvefni.
Orkublundshettuna er því hægt að
nota hvar og hvenær sem er, inni
sem úti. Hún er fyllt af lofti, sem
gefur stuðning við háls og gott jafn-
vægi. Einnig dempar hún vel hljóð
og hægt er að loka fyrir augun,“
sagði Mary að lokum.
Hægt er sjá verk Marý á slóðinni
www.omo.is.
BLOGGARINN...
Samviskan
friöuð
„Jæja, þá er ég búin að kolefnisjafna bílinn
minn fyrír þetta ár. Komin með sérstaka
kvittun upp á það. Samviskan friðuð í bili
- eða hvað? Er lausnin fundin með töfra-
orðinu „kolefnisjöfnun"? Til að kolefnis-
jafna bflinn minn þurfti ég að borga 6916
krónur til að vega upp á móti 4,9 tonna
losun koldíoxiðs. Ég á fremur sparneytinn
bíl, Susuki Ignis, sem fær einkunnina C
f eyðslueinkunn á vef Orkusetursins. Á
móti kemurað ég keyri frekarmikið. j...]Er
ég núna kvitt? Er ég búin að bæta fyrir
allar minar syndir með aflátsbréfinu?"
Auður H. Ingólfsdóttir
aingolfs.blog.is
Níðingar
„Formaður Sniglanna kvartar sáran
vegna fordóma ígarð mótorhjólamanna
og segir að örfá rotin epli skemmi fyrir
heildinni, þ.e. aðeins fáir hjóli of hratt og
brjóti allar reglur. Og svo tali fólk bara
eins og allir mótorhjólamenn séu slæmir.
Ég kannast við þetta og líð fyrírsvona
fordóma á hverjum degi. Ég keyri bílinn
minn meira eða minna löglega, en alltafer
verið að tala um að ökumenn sé glannar,
stórhættulegir í umferðinni, stefni sjálfum
sér og öðrum i voða. Bú-hú, en hrikalega
óréttlátt fyrir ökumenn. “
Ragnhildur Sverrisdóttir
ragnhildur.blog.is/blog
Afrekalaus
„Konur eru ekki konum verstar... en
kynjakerfið er ansi slæmt fyrir bæði
konur og karía. Kynjakerfi sem er á hendi
jafnréttis- og félagsmálaráðherra að upp-
ræta. Jafnréttisráðherra sem er afsprengi
kynjakerfisins. Jafnréttisráðherra úr flokki
sem boðar kynjakvóta en ræður svo karl
sem hefur ekkert sérstakt afrekað íjafnrétt-
ismálum sem aðstoðarmann sinn. Ég er
illa vonsvikin. “
Sóley Tómasdóttir
soley.blog.is
Við hjá Tómstundahúsinu viljum þakka þeim sem fóru Hringferð til styrktar
Rjóðrinu hvíldarheimili langveikra barna með fjarstýrðan bíl. Bíllinn HPI Baja
5b fór hringinn 1.384 km á þremur dögum með minniháttar viðhaldi með
bensíneyðslu2Lá100km.
Söfnunin fyrir Rjóðrið stendur enn yfir í síma 901 -5000 og verður til 1. júlí.
Ljósmyndir frá Guðfinninni Eiríkssyni er að finna á slóð
www.flickr.com/photos/gudfinnur/
Su doku
3 1 9 8
1 8 4 3 6 5 9
9
1 3 2
3 9 7 6
6 8 4
6 2 1
9 5 8
2 7 5 3
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin
heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar.
8-28
© LaughingStock irrtamational Incydist. by United Media, 2004
HERMAN
eftir Jim Unger
Læknirinn segir að þú megir koma heim
á mánudag ef ég losa mig við köttinn.