blaðið - 30.06.2007, Side 4
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007
blaðió
Lærbrotnaði
í miðri Hvítá
Fótbrotið það
fyrsta í Hvítá í 22 ár
„Þetta er fyrsta slysið í 22 ár,“ segir
Torfi G. Yngvason, framkvæmda-
stjóri Arctic Rafting, um mann sem
henti sér út úr bát í flúðasiglingu á
Hvítá oglærbrotnaði. 90.000 manns
hafa siglt niður ána.
„Það eru tveir staðir í ánni þar sem
hættulegt er að henda sér út í þar sem
grynningar eru. Maðurinn sem lær-
brotnaði hoppaði út í á öðrum þeirra,
lenti á steini og slasaðist. Hann klár-
aði þó ferðina niður á Drumbodds-
staði þaðan sem hann var fluttur á
Landspítala-háskólasjúkrahús."
Ekki hættulaust sport
Torfi segir að þetta sé frekar hættu-
laust sport eins og dæmin sanna og
leiðsögumenn ferðanna séu allir
sprenglærðir björgunarmenn sem
hafi séð vel um hinn slasaða.
„Ásóknin í flúðasiglingar er alltaf
nokkur og erlendir ferðamenn fara
í það í meira mæli. fslendingar hafa
þó sótt mikið í Hvítá sem er alveg
æðisleg á þar sem allir geta farið
með.“ ejg
STUTT
• Uppbyggjng Reykjavíkur-
borg hefur efnt til hugmynda-
leitar um uppbyggingu í Kvos-
inni. Markmiðar leitarinnar
er að afla tillagna um það
hvernig megi styrkja svæðið.
Sex arkitektastofur munu setja
fram tillögur.
Antíkrúm bamanna
til Götusmiðjunnar
H Þakklát Mumma fyrir starfsemi hans M Væri ekki til ef ekki bærist hjálp frá fólki
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Maður er svo þakklátur fyrir
að það skuli vera til fólk eins og
Mummi í Götusmiðjunni sem er að
gera þessa góðu hluti,“ segir Ellen
Kristjánsdóttir söngkona. Eftir að
hafa lesið í Blaðinu um flutning Götu-
smiðjunnar að Brúarholti, sem áður
hét Efri-Brú, ákvað Ellen að gefa með-
ferðarheimilinu húsgögn sem hún
segir vera meira en nóg af á heimil-
inu um þessar mundir.
„Ég missti móður mína fyrir
nokkrum árum og maðurinrr minn
var að missa afa sinn. Við erum
þess vegna komin með svo mikið af
húsgögnum. Ég á til dæmis rosalega
flott antíkrúm sem börnin mín áttu
og mig langar til að gefa Götusmiðj-
unni það auk borðs og stóla,“ greinir
Ellen frá.
Anægður með gjöfina
Mummi, sem heitir fullu nafni
Guðmundur Týr Þórarinsson, var að
vonum ánægður þegar hann frétti af
gjöfinni. „Það er gaman að fólk skuli
vilja styðja við bakið á ökkur. Götu-
smiðjan væri ekki til ef henni bærist
ekki hjálp frá fólkinu í landinu.“
Ellen undrast að yfirvöld skuli
ekki greiða fyrir kennslu 15 ára skjól-
stæðinga meðferðarheimilisins sem
ekki hafa lokið grunnskólanámi eins
og Mummi hefur greint frá. „Það er
fáránlegt að hann skuli ekki fá meiri
styrki,“ leggur Ellen áherslu á um
leið og hún greinir frá því að sjálf eigi
hún fjögur börn.
Gjöfin til Götusmiðjunnar Ellen
Kristjánsdóttir með antíkrúmið
sem börnin hennar sváfu í.
„Samfélagið mætti vera miklu barn-
vænna. Hvernig svo sem vandi barna
er virðist alls staðar ríkja sama neyð-
arástandið. Það vantar úrræði fyrir
börn í vanda og það er ekki forsvaran-
legt að þau skuli þurfa að bíða í heilt
ár eða lengur eftir úrlausn."
Árs biðtími fyrir átján ára
Mummi hefur greint frá því að
biðtíminn eftir meðferð í Götusmiðj-
unni sé 1 ár fyrir 18 ára og eldri.
Hann gerir ráð fyrir því að alls verði
unglingarnir að Brúarholti, þar sem
starfsemin hefst á ný upp úr miðjum
júlí, um 20. Götusmiðjan er með þjón-
ustusamning við Barnaverndarstofu
um 13 rými fyrir unglinga á aldr-
inum 15 til 18 ára. Félagsþjónustan
greiðir 80 þúsund krónur fyrir ung-
ling sem er orðinn 18 ára og af þeirri
upphæð fara 4 þúsund krónur á viku
i vasapeninga. „Við sjáum þeim fyrir
fæði og húsnæði og af því er augljóst
GÖTUSMIÐJAN
Götusmiðjan flytur í Brúar-
holt, þar sem Byrgið var
áðurtil húsa.
►
Biðtíminn eftir meðferð á
heimilinu er 1 ár fyrir 18 ára
og eldri.
að ekki er mikið afgangs," greindi
Mummi frá.
Súpersól til Salou
6. og 13. júlí frá kr. 34.995
Terra Nova býður ótrúlegt tilboð á síöustu sætunum til Salou og
Pineda í júlí. Fallegustu bæir Costa Dorada strandarinnar, sunnan
Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmti-
garður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litn'kt
næturlíf. .
tjur.'zrpx*
S * TP-*
9
Kr. 34.995
Netverft á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn (íbúft i viku.
Súpersólar tilboð, 6. og 13. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann.
Kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í viku. Súpersói
tílboð; 6. og 13. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann.
Terra Nova
PRIMERA EfíOUP
Skógarhlíd 18 -105 Reykjavík
Sími: 591 9000 - www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hatnarfjörður sími: 510 9500
Hættulegt starf? Raðist var a
vagnstjóra í Árbænum og hann
sleginn í andlitið.
Mislíkaði ökulag strætisvagns
Gekk í skrokk
á vagnstjóra
Reiður ökumaður réðst á stræt-
isvagnstjóra í Árbænum í fyrra-
kvöld og sló hann í andlitið. Svo
virðist sem reiði mannsins hafi
stafað af ökulagi vagnstjórans.
„Ég er stopp á rauðu ljósi þegar
ég sé hvar maður rýkur reiðilega
út úr bíl sínum, gengur upp að
strætisvagni og slær bílstjórann
í gegnum opna rúðu vagnsins,“
segir kona sem varð vitni að árás-
inni. Hún vill ekki koma fram
undir nafni öryggis síns vegna.
,Svo verða einhver orðaskipti og
maðurinn gengur reiðilega um.
Svo sé ég ekki meira.“
Hún segir að maðurinn hafi
væntanlega haft eitthvað út á öku-
lag vagnstjórans að setja. „Hann
var greinilega mjög trylltur og
hefði væntanlega gengið alvar-
lega í skrokk á vagnstjóranum ef
hann hefði ekki getað lokað sig
af. Þetta var stór og stæðilegur
maður, þannig að höggið hefur
verið þungt.“
Árásin var ekki tilkynnt til lög-
reglunnar. Lögregluþjónn á vakt
sagði árásir sökum ósættis vegna
ökulags hafa komið til kasta lög-
reglunnar. „En það er sem betur
fer ekki algengt."
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs„ neitaði að tjá sig
um málið þar sem það er enn á
rannsóknarstigi. Hann vildi ekki
heldur gefa viðkomandi vagnstjóra
tækifæri til að tjá sig um málið.
hlynur@bladid.net
Ók út af og
hljópst á brott
Bíll ók út af Kjósarskarðsvegi
skammt frá Þinvöllum á
fimmta tímanum í gær. Öku-
maðurinn slasaðist ekki meira
en svo að hann gat flúið vett-
vang á fæti. Maðurinn var því
á bak og burt þegar iögreglan
kom að. Hún hafði þó uppi
á manninum skömmu síðar
og gat staðfest að hann væri
óslasaður. ejg
Selja SÍtt í
Hitaveitunni
Forsvarsmaður Geysis Green
Energy gaf út í gær að fyrir-
tækið hefði tryggt sér hlut
allra sveitarféíaga í Hitaveitu
Suðurnesja utan hlutar Hafn-
arfjarðar og Reykjanesbæjar.
Fyrirtækið greiðir 15 milljarða
fyrir 28 prósenta hlutinn, sam-
kvæmt fréttum RÚV.
Minnihlutinn í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar ætlar hins
vegar að óska eftir aukafundi
í bæjarstjórn eftir helgi til
að ræða sölu á 15 prósenta
hlut ríkisins til Geysis Green
Energy á 7,6 milljarða. Hann
vill nýta forkaupsrétt sinn,
samkvæmt Vf.is