blaðið - 30.06.2007, Page 10
10 FRETTIR
LAUGARDAGUR 30. JUNI 2007
blaðiö
Bandaríkin
Mál fanga fyrir
hæstarétt
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur
samþykkt að taka fyrir mál fanga
sem haldið er í Guantanamo-
fangabúðunum á Kúbu um hvort
þeir fá að taka mál sín upp fyrir
alríkisdómstóli. Hæstiréttur
sneri þar með ákvörðun sinni frá
því í apríl, þegar hann hafnaði
því að taka málið fyrir.
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
STUTT
• Svikahrappar ftölsk yfirvöld
segja að ítalski maðurinn og
portúgalska konan, sem voru
handtekin í tengslum við hvarf
Madeleine McCann, hafi reynt
að kúga fé út úr foreldrum stúlk-
unnar. Líklega hafi verið um
svikahrappa að ræða.
• Hátíðahöld Þriggja daga
hátíðahöld hófust í Hong
Kong í gær, til að minnast þess
að tíu ár eru liðin frá því að
Kínverjar tóku við yfirráðum í
héraðinu eftir 156 ára nýlendu-
stjórn Breta.
• Afsögn Moshe Katsav fsraels-
forseti sagði af sér embætti í gær,
degi eftir að hann viðurkenndi
kynferðisbrot gegn kvenkyns
starfsmönnum innan stjórnkerf-
isins. Shimon Peres tekur við
embættinu 15. júlí.
• Mannréttindabrot Rauði
krossinn hefur fordæmt
herstjórnina í Búrma fyrir að
brjóta á mannréttindum mörg
þúsund íbúa landsins. Síðustu
ár hafa stjórnvöld í Búrma,
sem nú nefnist Mjanmar verið
harkalega gagnrýnd fyrir
mannréttindabrot.
-----------------------------------
HjÆ ofefeurfáíð flð wiífeíð
utrvaL af ban^flbílstóiuiM,
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
______www.babysam.is
Bensín, gas og
naglar í sprengju
S Hyde Park, Park Lane, Fleet Street og fleiri götum í London lokað
E1 Snarræði lögreglumanns hindraði blóðbað
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Lögreglu í Lundúnum tókst að
koma í veg fyrir hryðjuverkaárás
þegar hún náði að aftengja öfluga
sprengju sem hafði verið komið fyrir
í grænum Mercedes-bíl aðfaranótt
föstudagsins við Haymarket, nærri
Piccadilly Circus. Neðanjarðarlest
arstöðinni og götum við Piccadilly
Circus var lokað fram eftir degi, en
fleiri götum var lokað seinna um
daginn eftir að vísbendingar bárust
um fleiri bíla, hugsanlega fulla af
sprengiefni.
Lögreglu barst tilkynning um að
reyk legði frá bíl um hálftvö eftir
miðnætti. Talsmaður Scotland Yard
segir að rúmlega sextiu lítrar af
bensini, gaskútar og ótal naglar hafi
fundist í bílnum við skemmtistaðinn
Tiger Tiger við Haymarket og að
sprengjan hafi minnt á þær sem
andspyrnumenn í írak nota i árásum
sínum.
Ljóst þykir að fjöldi manna hefði
látið lífið og særst ef sprengjan hefði
sprungið, en áætlað er að um 1.700
manns hafi verið inni á Tiger Tiger
um nóttina. Dyraverðir við nálæga
skemmtistaði sögðust hafa tekið
eftir manni sem ók umræddum
bíl einkennilega og keyrði loks á
öskutunnur við Tiger Tiger, áður en
hann yfirgaf bílinn og tók til fótanna.
Talið er að lögreglumaður sem mætti
snemma á vettvang hafi komið í veg
fyrir mikið mannfall, þegar hann
fjarlægði farsíma úr bílnum, sem að
öllum líkindum hafi átt að nota til að
sprengja sprengjuna.
Mercedes-bíllinn Bílnum
var ekið nærri inngangi Tiger
Tiger-skemmistaðarins áður en
ökumaðurinn tók til fótanna.
Park Lane, Fleet Street og
fleiri götum var svo lokað um
hádegisbil á meðan lögregla
rannsakaði vísbendingar um annan
grunsamlegan bíl í vegarkantinum
við austurenda Hyde Park. Lögregla
rýmdi jafnframt Hyde Park og efldi
öryggisgæslu í borginni allri til
muna.
Sigurður Haraldsson, starfsmaður
Landsbankans í Lundúnum, segir
að tilkynnt hafi verið í hátalarakerfi
neðanjarðarlestarinnar um
morguninn, þegar hann var á leið til
vinnu, að lestin myndi ekki stansa á
Piccadilly Circus-stöðinni. „Lestin
keyrði bara í gegn og það var sagt
vera vegna sprengjuhættu. Fólkið í
lestinni virtist þó ekki kippa sér neitt
sérlega mikið upp við það.“
HRYÐJUVERKAHÆTTA
► Rúmlega 1.700 manns voru
staddir á Tiger Tiger-skem-
mtistaðnum, þar sem
bílnum var lagt.
► Piccadilly Circus-neðan-
jarðarlestarstöðinni lokað
vegna sprengihættu fram
eftir degi.
►
52 létust og fjöldi særðist
í hryðjuverkaárásunum í
Lundúnum þann 7. júlí 2005.
Jacqui Smith, nýr innanríkis-
ráðherra Bretlands, hvatti almenning
til að vera á verði og tilkynna lögreglu
ef einhverjir yrðu varir við eitthvað
grunsamlegt.
Samkomulag um brú
Dönsk og þýsk stjórn-
völd hafa tilkynnt að
samkomulag hafi náðst
um byggingu nítján
kílómetra langrar brúar
milli Rodby á Lálandi i
Danmörku og Puttgar-
den á eyjunni Femern í
Þýskalandi.
Áætlað er að brúin verði um tíu ár í byggingu og
muni kosta andvirði rúmlega 500 milljarða króna.
Brúin mun stytta leiðina milli Kaupmannahafnar
og Hamborgar um 160 kílómetra.
Samkomulagið náðist eftir þriggja klukkustunda
harðar samningaviðræður milli samgönguráð-
herra landanna í Berlín i gær. aí
Vilja semja á nýjan leik
Jaroslaw Kaczynski, for-
sætisráðherra Póllands,
segist aftur vilja taka upp
viðræður við Evrópusam-
bandið um atkvæðavægi
Póllands í fyrirhuguðum
stjórnskipunarsáttmála
sambandsins.
Pólverjar voru tregir til að samþykkja málamiðlun-
artillögu Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, um
atkvæðavægi einstakra rikja á leiðtogafundi ESB í
Brussel i síðustu viku.
José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar
ESB, er andvígur hugmyndum Kaczynskis og
hvetur stjórnvöld í öllum aðildarríkjum til að virða
samkomulagið sem náðist. aí