blaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 23
LANGAR ÞIG
AÐ VERDA
TOLLVORÐUR
Tollstjórinn í Reykjavík
Nokkrar stöður tollvarða eru lausar til umsóknar hjá tollstjóranum í Reykjavfk. Um er að ræða fjölbreytt og
lifandi störf sem henta bæði körlum og konum. Tollvörðum er boðið upp á öflugt nám á launum í Tollskóla
ríkisins sem lýkur með útskrift. Tollskólinn veitir tollvörðum grunn- og sérmenntun f ýmsum greinum á sviði
tollheimtu og tollgæslu. Til að fá inngöngu í skólann þarf að þreyta þríþætt inntökupróf. Nánari upplýsingar
um það er að finna á www.tollur.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að
öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
nr. 70/1996. Nánari upplýsingar um starfið veita Hörður
Davíð Harðarson, aðaldeildarstjóri tolleftirlitsdeildar, í
síma 560-0380 og Harpa Hallsdóttir, sérfræðingur á
starfsmannasviði, í sfma 560-0352.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. Umsóknir merktar
„tollvörður" ásamt ferilskrá, læknisvottorði og Ijósriti af
ökuskírteini skal skila til starfsmannasviðs embættisins
Skúlagötu 17, 101 Reykjavík eða í gegnum tölvupóst:
starf@tollur.is. Umsóknirgeta gilt f sex mánuði.
Kröfur til umsækjenda:
■ Tveggja ára almennt framhaldsnám, annað
sambærilegt nám eða starfsþjálfun.
■ Gott vald á fslensku, ensku og einu
Norðurlandamáli.
■ Geta til að tjá sig f ræðu og riti.
■ Vera á aldrinum 20-35 ára.
■ Almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs.
■ Vera f góðu líkamlegu- og andlegu formi.
■ Samviskusemi, nákvæmni og örugg vinnubrögð.
■ Góð framkoma og hæfni f mannlegum samskiptum.
■ Hreint sakavottorð.
■ Hægt er að víkja frá einstökum skilyrðum ef
sérstakar ástæður mæla með því.
Fjölbreytt og lifandi starf tollvarða felur m.a í sér:
Eftirlit og skoðun tollskjala og vörusendinga.
Afgreiðsla og eftirlit með skipum, flugvélum,
farþegum og áhöfnum.
Áhættugreining m.a. út frá fíkniefnaeftirliti.
Rannsókn tollalagabrota.
Stjórn fíkniefnaleitarhunda og gegnumlýsingar-
bifreiðar.
Forvarnastarf.
Samstarf við aðrar löggæslustofnanir, innlendar
og erlendar.
Alþjóðasamstarf m.a. vegna aðildar að Alþjóða-
tollastofnuninni og norrænu tollasamstarfi.
U
Hjá töilstjóranum starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks sem hefur það að markmiði að veita góða og skilvirka þjónustu og standa
vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs. Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna, heilsueflingu oggóðan aðbúnað
r Fjöldi starfa í boði 'N
www.radning.is Zm* RAÐNINGAR ÞJÓNUSTAN Persónuleg og fagleg þjónusta
Auglýsingasíminn ei • 510 3728