blaðið - 30.06.2007, Page 35
blaóió
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007
35
MENNING
menning@bladid.net
Hér finnst mér ég hafa mikið frelsi
til að gera það sem ég vil og mér
finnst fólk gjarnan vera mjög opið
fyrir nýjum tillögum og hugmyndum.
Svcrrir Einarsson
Hcrmann Jónasson
Gcir Harðarson
Bryndís ValbjarfTardóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Qestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Lcgstaöur • Tónlist • 'nikynningar í fjölmiðla • Landsbyggöarþjónusta • Líkflutningar
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Catherine Ness opnar sína fyrstu einkasýningu í dag
Ævintýrakanína
og hraunskúlptúrar
Opnun sumar-
sýningar
Sumarsýning á verkum í eigu
Listasafns ASÍ verður opnuð
í dag, en hún spannar breitt
tímabil í íslenskri listasögu. í Ás-
mundarsal verða sýnd málverk
eftir listamennina Jóhannes •- -
Kjarval og Jón Stefánsson frá
fimmta og sjötta áratug síðustu
aldar, en þau eiga það sameigin-
legt að sýna hið dramatíska og
stórbrotna í íslenskri náttúru.
í Gryfjunni eru sýnd nýleg
verk eftir Guðrúnu Kristjáns-
dóttur, Birgi Andrésson og Olgu
Bergmann sem hvert á sinn hátt 'r
fjallar um náttúru og/eða menn-
ingu í samtímanum. í Arinstofu
er sýnt pólitískt verk eftir Önnu
Eyjólfsdóttur sem jafnframt
byggir á arkitektúr Ásmundar-
salar. Safnið er opið frá klukkan
i3 til 17 alla daga nema mánu-
daga og er aðgangur ókeypis.
Bjólfskviða og
aðrar sögur
Bókin Beowulf & Other
Stories: A New Introduction to
Old English, Old Icelandic and
Anglo-Norman Literatures eftir
Richard North og Joe Allard kom
út hjá Paperback-útgáfunni fyrr
í sumar. Um
er að ræða
fræðibók
um tengsl
fornensku
við fornís-
lensku með
ítarlegri
umfjöllun
um ís-
lenskar
fornbók-
menntir.
Richard North kennir forn-
ensku við University College í
London og er mikill áhugamaður
um íslendingasögurnar. Joe All-
ard uppgötvaði fsland á miðjum
níunda áratugnum og hefur
siðan þá aflað sér mikillar þekk-
ingar á íslenskum bókmenntum
og menningu. Hann starfar sem
þýðandi og útgefandi íslenskra
nútímabókmennta auk þess sem
hann hefur lagt stund á kennslu
og rannsóknir á íslenskum
miðaldabókmenntum.
Samræður á sunnudegi
Þorvaldur Þorsteinsson, mynd-
listarmaður og rithöfundur, verður
með leiðsögn á sýningunni Að
flytja fjöll í Listasafni Árnesinga
á morgun, sunnudaginn 1. júlí
klukkan 15. Þorvaldur ritaði grein
í sýningarskrá sýningarinnar, en
hann starfar jöfnum höndum sem
rithöfundur og myndlistarmaður.
Hann nam við Myndlistaskólann á
Akurevri og Myndlista- og handíða-
skóla íslands áður en hann hélt til
Hollands í framhaldsnám. Hann
nam einnig í eitt ár við heimspeki-
deild HÍ.
Meðal þekktustu ritverka Þor-
valds eru Skilaboðaskjóðan og bæk-
urnar um Blíðfinn sem þegar hafa
komið út í átta löndum og hlotið
margvísleg verðlaun. Þá hafa verið
sett upp eftir hann mörg leikrit,
þar á meðal And Björk, of course
en fyrir það hlaut hann Grímuna,
hin íslensku leiklistarverðlaun
árið 2003. Hann hefur haldið á
fimmta tug einkasýninga og tekið
þátt í tugum alþjóðlegra myndlist-
arviðburða og sýninga um allan
heim.
Listasafn Árnesinga er opið alla
daga milli klukkan 12 og 18 og er
aðgangur ókeypis.
Hin unga, enska listakona
Catherine Ness opnar
í dag skúlptúr- og ijós-
myndasýningu í Gallerí
Tukt við Pósthússtræti,
en um er að ræða hennar
fyrstu einkasýningu.
a-iSfa
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hiiduredda@bladid.net
Catherine útskrifaðist með skúlp-
túr sem aðalfag frá Listaháskól-
anum í Newcastle árið 2004 og hefur
unnið sehi sjálfboðaliði á vegum
Rauða kross Islands hér á landi frá
því í september.
„Ég hef unnið á Læk, sem er dag-
vistun í Hafnarfirði, og meðal
annars verið þar með kennslu í list-
greinum. Meðfram þvi hef ég unnið
að minni eigin list og nú er komið að
því að opna þessa sýningu," segir Cat-
herine. „Ég hef verið með í nokkrum
samsýningum áður, en aldrei áður
verið með einkasýningu, hvorki
í Englandi né á Islandi þannig að
þetta eru nokkuð stór tímamót.“
Skúlptúrar úr hrauni
Á sýningunni eru skúlptúrar
úr hrauni og leir auk ljósmynda
af kanínum. „Skúlptúrarnir eru
unnir þannig að ég tek hraunmola
og skreyti þá með leir og bý þannig
til alls konar furðuverur. Fyrir
nokkrum vikum fór ég til Englands
að sækja bílinn minn og keyrði þá
til Skotlands og tók Norrænu til
Færeyja og Hjaltlandseyja og svo
Seyðisfjarðar. Með í för var leir-
kanína sem ég myndaði hér og þar
á þessum stöðum og bjó þannig til
myndasögu af kanínu sem skríður
upp úr holunni sinni, lendir í alls
kyns ævintýrum og dúkkar upp á
íslandi," útskýrir Catherine.
Álfar og tröll
Aðspurð segir hún hraunskúlptúr-
ana vissulega minna um margt á ís-
lenskar þjóðsögur af álfum, tröllum
og huldufólki, en að hún vilji ekki
gefa þeim neina eina ákveðna merk-
ingu. „Það er misjafnt hvað fólk sér
út úr þessu og þannig vil ég líka
hafa það. Sumir hafa litið á þetta
sem barnaleikföng, aðrir sem huldu-
fólk og svo framvegis. Mér finnst
mjög mikilvægt að hver og einn geti
lagt sinn eigin skilning í verkin út
frá sinni upplifun.“
Catherine segir afar gott að vinna
við listsköpun á íslandi. „Hér finnst
mér ég hafa mikið frelsi til að gera
það sem ég vil og mér finnst fólk
gjarnan vera mjög opið fyrir nýjum
tillögum og hugmyndum. Svo
hefur komið mér skemmtilega á
óvart hvað margir hér eru skapandi
og hika ekki við að mála myndir,
skrifa eða hvað sem er. Það er líka
góð mæting á listasýningar hér og
það er auðvitað mjög jákvætt.“
Á ferðinni
Hefurðu ferðast mikið um
landið?
„Upp á síðkastið, síðan ég fékk bíl-
inn minn, hef ég reynt að gera það.
Á veturna er ekki mjög auðvelt að
KONAN
fe*. Catherine Ness er 25 ára
~ gömul listakona frá Eng-
landi.
W. Hún hefur verið sjálfboða-
^ liði á íslandi frá síðasta
hausti
W. Er afar ánægð með mikinn
^ listaáhuga landsmanna.
ferðast um landið ef maður á ekki
bíl, enda ekki mjög freistandi að
ferðast um á puttanum í 10 stiga
frosti. En nú hef ég náttúrlega
meðal annars keyrt alla leið frá Seyð-
isfirði til Reykjavíkur og stefni á að
ferðast um Norður- og Norðvestur-
land áður en ég fer aftur heim í sept-
ember, enda á ég þá landshluta alveg
eftir,“ segir Catherine.
Hvernig hefur gengið að læra
íslensku?
Catherine Ness. „Fólk leggur
mismunandi skilning í verkin
og þannig vil ég hafa það.“
Blaðið/Frikki j
„Ég tala smá íslensku,“ svarar
hún á nánast fullkominni íslensku.
„Það háir mér reyndar að ég hef ekki
farið á neitt eiginlegt tungumála-
námskeið aukþess sem enskukunn-
átta hér er almennt mjög mikil.
Þannig að ef ég er að reyna að segja
eitthvað á íslensku freistast ég oft
til þess að skipta yfir í enskuna
enda skilja hana allir. Svo er þetta
ekki beinlínis tungumál sem er
auðvelt að „pikka upp“ ef svo má
segja. Engu að síður er ég farin að
skiíja það ágætlega, bæði talað mál
og ritað, og er ákveðin í að halda
mér við og jafnvel læra meira eftir
að ég er komin aftur heim til Eng-
lands í haust, enda er ég ákveðin í
því að koma aftur hingað til lands
í nánustu framtíð," segir Catherine
að lokum.
Sýningin verður opnuð klukkan
16 í dag og stendur til 13. júlí.