blaðið - 30.06.2007, Qupperneq 37
blaöið
Shellmótið í Vestmannaeyjum:
Stjörnur framtíð-
arinnar etja kappi
Um tvö þúsund keppendur úr 20
liðum taka þátt í Shellmótinu í Vest-
mannaeyjum um helgina. Gott gæti
verið að leggja nöfn frambærileg-
ustu leikmannanna á minnið og jafn-
vel að tryggja sér eiginhandaráritun
þeirra, því á listanum yfir þá sem
hafa verið útnefndir bestu leikmenn
mótsins eða orðið markahæstir er
að finna mörg kunnugleg nöfn.
Meðal þeirra sem hafa verið út-
nefndir bestir á mótinu eru Arnar
Þór Viðarsson, Bjarni Guðjóns-
son, Baldur Aðalsteinsson, Andri
Fannar Ottósson, Sigmundur Krist-
jánsson, Eyjólfur Héðinsson, Albert
Brynjar Ingason, Theodór Elmar
Bjarnason, Arnór Smárason og Kol-
beinn Sigþórsson. Þeir Kolbeinn og
Andri Sigþórssynir eru bræður, en
sá fyrrnefndi skrifaði undir atvinnu-
mannasamning hjá AZ Alkmaar á
dögunum.
Meðal markakónga undanfar-
inna ára má finna títtnefnda Andra
og Kolbein Sigþórssyni, Eið Smára
Guðjohnsen, Guðmund Steinars-
son, Theodór Óskarsson, Ólaf Inga
Skúlason, Björn Jónsson og Snorra
Stein Guðjónsson, sem reyndar
er betur þekktur fyrir afrek sín á
handboltavellinum.