blaðið - 30.06.2007, Side 38
38
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007
blaðið
ordlaus@bladid.net
LAUGARDAGUR
Það verða einn til tveir leikarar í fyrstu
myndinni, hugsanlega ein stelpa eða
par. Ég ætla að birta þetta á mánudag
eða þriðjudag í þarnæstu viku.
36 hafa sótt um að leika í íslenskum klámmyndum
Vérkstæði sögusvið klámmyndar
„Fyrsta myndin gerist á verkstæði,“ segir
Sigurður Valdimar Steinþórsson, eigandi vefsíð-
unnar Klám.is, en á miðvikudag í næstu viku
hyggst hann hefja framleiðslu á íslensku klámi.
„Það verða einn til tveir leikarar í fyrstu mynd-
inni, hugsanlega ein stelpa eða par. Ég ætla að
birta þetta á mánudag eða þriðjudag í þarnæstu
viku.“
Sigurður segir að 36 hafi sótt um að vera með
í framleiðslunni, en þegar Blaðið talaði við hann
í síðustu viku höfðu tólf umsóknir borist. „Þegar
þetta kom á Stöð 2 hrúguðust inn umsóknir,"
segir hann og vísar í umfjöllun íslands í dag um
málið. Hann bætir við að vinsældir vefsíðunnar
Klám.is hafi aukist mikið. „Fólk er mjög spennt
fyrir þessu.“
Lögregla hefur ekki samband
Lögreglan hefur ekki haft samband við Sig-
urð. „Ég er kominn með lögfræðing í að skoða
lagalegu hliðina," segir hann. „Ég er nokkurn
veginn kominn með á hreint hvað er löglegt og
hvað ekki. Ég ætla að gera þetta innan ramma
laganna.“
Aðspurður hvort klámframleiðsla sé ekki dýr
segir Sigurður trúnaðarmál hv'að leikarnir fá í
laun. „Fyrsta senan verður ekki dýr,“ segir hann.
„Hún verður ekki löng, kannski 20 mínútur eða
eitthvað. Svo er planið að framleiða alvöru mynd
sem verður klukkutími, eða einn og hálfur
jafnvel."
atli@bladid.net
Verslunarmenn
æfir út í Prince
Nýjustu breiðskífu listamanns-
ins Prince verður dreift frítt
með breska sunnudagsblaðinu
The Mail on Sunday. Verslunar-
menn í Bretlandi hafa brugðist
illa við tíðindunum þar sem
platan verður ekki komin í sölu
í verslanir áður en henni verður
dreift frítt með dagblaðinu.
Breiðskífan Planet Earth kemur
út þann 24. júlí næstkomandi en
ritstjóri blaðsins segir ástæðuna
fyrir samstarfinu við Prince vera
þá að listamaðurinn vilji að sem
flestir geti notið tónlistar hans.
Yfir tvær milljónir eintaka eru
seldar af The Mail on Sunday
í viku hverri en stærra upplag
verður prentað af blaðinu daginn
sem diskurinn fylgir með.
Rosalega flottur, saumlaus með
blúndu í BC skálum á kr. 2.350,-
buxur i stíl kr. 1.250,-
Virkiiega þægilegur f CDE
skálurrrá kr. 2.350,-
hnxnr í stíl á kr 1 250 -
Mjög mjúkur og góður í CDEF
skálum á kr. 2.350,-
buxur í stíl á kr. 1.250,-
Lokað á Laugardögum í sumar
Helgi Pé er viss um að sonminn nái langt með Sprengjuhöllinni
Sprengjuhöll og Ríó
ekki saman á svið
Sprengjuhöllin gerir
það gott þessa dagana,
en fæstir vita að Snorri,
söngvari og gítarleikari
sveitarinnar er sonur
Helga Pé úr Ríó tríó.
FEÐGARNIR
►
►
Helgi Pé er pabbi Snorra í
Sprengjuhöllinni.
Sprengjuhöllin hefur átt
vinsælasta lag landsins í
rúman mánuð.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
►
Helgi Pé gerði garðinn fræg-
an með Ríó tríói.
„Þetta er auðvitað sérlega ánægju-
legt. Ég man eftir að hafa heyrt
ávæning af laginu og þegar þetta
var komið í einhvern búning þá
sagði reynslan mér að þarna væri
eitthvað á ferðinni sem ætti eftir
að ná í gegn,“ segir Helgi Pét-
ursson tónlistarmaður um
lagið Verum í sambandi
með Sprengjuhöllinni.
Lagið hefur setið á toppi
lagalista Morgunblaðsins
í rúman mánuð, en Snorri
Helgason, söngvari og gít-
arleikari sveitarinnar, er
sonur Helga, sem gerði
garðinn frægan með
Ríó tríóinu á árum áður.
Tók upp gítarinn 15 ára
„Það bar nú ekkert
sérstaklega á þessu.
Þetta kom nú allt í einu
eiginlega,“ segir Helgi
aðspurður hvort Snorri hafi fengið
tónlistarlegt uppeldi. „Hann á þrjú
eldri systkini og þau fóru öll í alls
konar píanótíma og söngtíma og
eitthvað slíkt. Hann tók að mig
minnir gítarinn upp í kringum
15 ára aldur og hefur ekki
skilið hann við sig síðan.“
Helgi segist fullviss um
að Sprengjuhöllin með son-
inn í fararbroddi nái langt.
„Ég er alveg viss
um það,“ segir
hann. „Þeir
vinna í þessu
og eru að
gera þetta af
samvisku-
semi, en
hafa
greini-
lega
mjög
gaman af þessu. Þetta eru hins
vegar ekki strákar sem vilja endi-
lega vera á forsíðu Séð og heyrt.
Þeir eru mjög rólegir i tíðinni.“
Sprengjuhöliin höfðar til Helga
Reynsla Helga úr Ríó tríói gæti
komið sér vel fyrir Snorra, en þrátt
fyrir það segir hann soninn halda
tónlistinni mikið fyrir sig. „Við
höfum svo sem ekki endilega átt
einhverja tónlistarlega samleið,"
segir Helgi. „En þetta er auðvitað
voða gaman. Mér sýnist þeir vera
góðir félagar þessir drengir í band-
inu og þeir æfa. Þetta hefst ekki
öðruvísi. Þetta eru góðir náungar
og góðir vinir.“
Tónlist Sprengjuhallarinnar
höfðar til Helga, enda hafa hljóm-
sveitir gömlu góðu daganna haft
áhrif á sveitina. „Þetta er mjög
melódískt, ég held að það helgist
meðal annars af því að ég veit að
Snorri hefur hlustað á [Bob] Dylan,
The Band og Hollies og alls konar
svona grúppur, fyrir utan Bítlana
auðvitað. Maðúr heyrir auðvitað
að þessir strákar draga dám af því.
Þeir eru líka, finnst mér, búnir að
skapa sér sinn stíl.“
Aðspurður hvort Sprengjuhöllin
hiti upp á endurkomutónleikum
Ríós tríós skellir Helgi upp úr. „Nei,
það hefur ekki komið til tals.“
Lily handtekín
Söngkonan Lily Allen hefur verið
handtekin fyrir að ráðast á ljós-
myndara fyrir utan næturkíúbb
í Lundúnum í mars síðastliðnum.
Umrætt atvik átti sér stað þegar
Allen yfirgaf gleðskap í ^
Wardour-klúbbnum. Hw
Sumartíska CK
Calvin Klein hélt svokallaða sumar-
leyfistiskusýningu á dögunum og
sprönguðu fyrirsæturnar um í fatn-
aði sem stílaður er inn á
sumarfríið í þetta árið. I
Vill ekki leika
á móti konunni
Leikarinn Antonio Banderas
mun að líkindum aldrei leika á
móti konu sinni, Melanie Grif-
fith, þar sem kappinn segist hata
kvikmyndir þar sem hjón leiða
saman hesta sína. Stjarnan neitar
að horfa á myndir þar sem raun-
veruleg hjón leika saman og hefur
lýst því yfir að aldrei muni hann
leika með konu sinni. „Mér hefur
aldrei líkað myndir þar sem eigin-
maður og eiginkona leika saman
á skjánum. Þegar Spencer Tracy
og Katherine Hepburn voru upp
á sitt besta gekk þetta kannski
upp en síðan þá hefur mér aldrei
líkað þetta.“
Johnny Marr
er fyrirmyndin
Noel Gallagher, höfuðpaurinn
í hljómsveitinni Oasis, hefur
viðurkennt að hljómsveitin The
Smiths hafi stuðíað að því að
hann tók upp gítarinn á sínum
tíma. Það mun hafa verið söngv-
arinn, hljómborðsleikarinn og
gítarleikarinn Johnny Marr sem
heillaði Gallagher hvað mest*og
hefur hann lýst því yfir að sá síð-
arnefndi sé helsta fyrirmynd sín
þegar kemur að tónlistinni. „Ég
man eftir að hafa séð The Smiths
spila og án þess að það eigi að
hljóma eitthvað klikkað verð ég
að viðurkenna að ég vildi hrein-
lega vera Johnny Marr.“