blaðið - 30.06.2007, Page 45
blaöió
LAUGARDAGUR 30. JUNÍ 2007
45
Beckham í
Ugly Betty
Victoria Beckham mun að
öllum líkindum taka að sér
hlutverk í sjónvarpsþáttunum
Ugly Betty en hún er sögð afar
spennt yfir því að fá að spreyta
sig í þáttunum. Beckham mun
leika sjálfa sig og mun að öllum
líkindum aðeins birtast í einum
þætti. Að sögn leikarans Eric
Mabius höfðu framleiðendur
þáttanna samband við Vikt-
oríu Beckham og buðu henni
gestahlutverk þar sem þeir telja
að það muni vekja enn meiri
athygli á þáttunum, en Beck-
ham-hjónin hafa verið mikið í
sviðsljósinu vestanhafs, eftir að
David Beckham gekk til liðs við
fótboltaliðið L.A. Galaxy.
Washington
iðrast
Leikarinn Isiah Washington úr
sjónvarpsþáttunum Grey’s An-
atomy segir það ekki vera rétt
að hann hafi farið í meðferð
til þess að ná tökum á hræðslu
við samkynhneigða en honum
lenti saman við leikarann T.R.
Knight, sem fer með hlutverk
George í þáttunum, en hann er
samkynhneigður. Washington
segir hið rétta vera að hann
hafi leitað sér hjálpar til þess að
ná tökum á reiðiköstum og að
hann hafi sjálfviljugur gengist
undir meðferðina þar sem hann
iðrist gjörða sinna.
Taka höndum
saman
Leikararnir Russel Crowe og
Leonardo DiCaprio munu
taka höndum saman í kvik-
myndinni Body of Lies sem
Ridley Scott kemur til með að
leikstýra. Myndin snýst um
leyniþjónustumenn sem reyna
að ráða niðurlögum háttsettra
al-Qaeda-leiðtoga en myndin
er byggð á samnefndri bók eftir
rithöfundinn David Ignatius.
Crowe mun leika CIA-mann
sem ásamt DiCaprio leggur
allt í sölurnar til þess að koma
höndum yfir þrjótana. Er
þetta ekki í fyrsta skiptið sem
Crowe og Scott starfa saman en
þeir hafa áður unnið saman i
kvikmyndunum Gladiator og A
Good Year.
Burnett í bardagalistir
Mark Burnett, framleiðandi
hinna sívinsælu Survivor-raunveru-
leikaþátta, ætlar að framleiða raun-
veruleikaþátt þar sem hvers kyns
bardagalistum er gert hátt undir
höfði. Burnett framleiddi einnig
The Apprenctice í samstarfi við
Donald Trump þar sem leitað var
að lærlingum þess síðarnefnda. Nýi
þátturinn hefur ekki enn fengið
nafn en Burnett segir að um sé að
ræða blöndu af júdó, karate, jújútsú,
glímu og hnefaleikum. Burnett
segist alltaf hafa verið heillaður af
bardagalistum en hann framleiddi
þættina The Contender sem sýndir
voru hér heima á Skjá einum en þar
var ungum hnefaleikaköppum att
saman í leitinni að þeim besta.
Tekur Idolið alvarlega
Paula Abdul segir að hún laki
hlutverk sitt sem dómara í sjón-
varpsþáttunum American Idol
mjög alvarlega og segist fá meira
út úr því að sitja í dómarasætinu
en hún fékk nokkurn tímann á
sviði. „Það gefur mér mun meira
að uppgötva ungt hæfileikafólk
en að koma fram á sviði sjálf. Það
að vera dómari í Idolinu skiptir
mig gríðarlegu máli og í fauninni
meira máli heldur en að vinna
Grammy-verðlaun og gefa út
plötur.“
Sumarkaffi er samansett af sérvöldum úrvais tegun
Það hefur frísklegt sítrusbraqð ásamt yndislega Ijúfum
keim af hnetum og sætum ávöxtum. Kaffið er í góðu jafn-
vægi, hefur mikla fyilingu og hunangsmjúkt eftirbragð.
www.teogkaffi.is
stundin - bragðið - stemningin
'Mm