blaðið - 30.06.2007, Side 46
46
LAUGARDAGUR 30. JUNÍ 2007
blaóió
FÓLK
folk@bladid.net
Nei, hún er ekkert gabb,
heldur yljar hún manni
um hjartaræturnar.
Hnatthlýnun getur varla verið gabb í þessum hita?
Sigurður Þ. Ragnarsson, jarð- og veðurfræðingur, er vel inni í málefnum hnatthlýn-
unar, en sjónvarpsþáttur sem fjallar um að sú þróun sé ekki mannanna sök hefur
vakið umtal að undanförnu. Mikið góðviðri hefur í kjölfarið verið á íslandi, hver svo
sem ástæðan er fyrir því.
HEYRST HEFUR
Dúndurf réttir héldu magn-
aða tónleika á fimmtudags-
kvöldið þar sem meistaraverkið
The Wall eftir Pink Floyd var
flutt með aðstoð Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Þar var margt
um manninn og mátti sjá unga
sem aldna aðdáendur verksins
sameinast í tónlistartransi.
Meðal gesta voru Þórólfur Árna-
son, fyrrum borgarstjóri, Tómas
Tómasson veitingamaður, Freyr
Eyjólfsson, dagskrárgerðar-
maður á Rás 2, og
kollega hans,
Andrea Jóns-
dóttir, oft nefnd
rokkamma
íslands, og
Eyþór Guð-
jónsson,
stjarnan
úr Hostel-
mynd-
inni...
Björgvin G. Sigurðsson iðnað-
arráðherra hefur loksins ráðið
sér aðstoðarmann samkvæmt
bloggvefnum Eyjunni. Það mun
verða dr. Jón Þór Sturluson,
dósent og for-
stöðumaður
meistaranáms
í viðskipta-
fræði við
Háskólann
i Reykja-
vík, sem
hreppir
hnossið...
Hið árlega Shellmót er nú í
fullum gangi í Vestmannaeyjum.
Þar eru vafalaust nokkrir fram-
tíðarleikmenn íslenska lands-
liðsins að stíga sín fyrstu skef í
bliðviðrinu á Heimaey. Meðal
gesta er Eiður Smári Guðjohn-
sen sem fylgist spenntur með
sínum syni en Eiður átti góða
takta á mótinu fyrir allmörgum
árum, þá í búningi ÍR. Þó svo að
hann hafi staðið sig mjög vel
var það félagi hans í
landsliðinu síðar
meir, Arnar Þór
Viðarsson,
sem kos-
inn var
b besti
leik-
maður
mótsins
það árið...
Hermann Hreiðarsson skiptir um félag
Óttast ekki fall í þetta sinn
Hermann Hreiðarsson
er staddur hér á landi
í stuttu fríi frá fótbolt-
anum. Hann gekk nýlega
til liðs við Portsmouth frá
Charlton í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Eyjapeyinn Hermann Hreiðars-
son hefur spilað með fimm enskum
liðum og er nýlega genginn til liðs
við það sjötta, Portsmouth. Hann
hefur fallið fjórum sinnum um deild
en segist hafa trú á mannskapnum
hjá nýja liðinu.
„Ég vona að ég verði í efri hlutanum
að þessu sinni. Liðið hefur fjárfest í
mörgum sterkum leikmönnum og
ég hef fulla trú á þessum mannskap.
Ef við gerum þetta eins og menn,
ætti þetta að vera í lagi,“ segir Her-
mann sem segist lítast vel á nýjan yf-
irmann sinn, Harry Redknapp.
„Það fer gott orð af karlinum
meðal leikmanna og allra sem eru
í kringum þennan bransa. Mér líst
einnig mjög vel á hann. Hann hefur
mikla reynslu, er kominn í klúbb
með mikla peninga á bak við sig og
í þeirri stöðu er hann mjög sterkur.
Það er ekki að ástæðulausu sem
hann hefur verið kallaður wealer
and dealer í gegnum árin.“
Portsmouth er tæplega 200.000
manna hafnarborg á suðurströnd
Englands. Knattspyrnufélagið, sem
gengur jafnan undir heitinu Pom-
pey, líkt og borgin, er í eigu franska
milljarðamæringsins Alexandre
Gaydamak, sem ku hafa mikinn
metnað fyrir velgengni félagsins.
„Þetta er stærri klúbbur en Charl-
ton, ef stærðin er mæld í peningum.
Þarna er mikill uppgangur og
fjársterkir eigendur virðast hafa
metnað til þess að gera liðið heima-
kært í úrvalsdeildinni. Áhorfendur
liðsins eru með þeim bestu á Eng-
landi, eru ástríðufullir og tryggir
sínu liði, sama hvernig gengur. Þá er
einnig stefnt á byggingu nýs vallar
og æfingasvæðis og allt hugarfar í
kringum klúbbinn virðist vera mjög
jákvætt,“ segir Hermann sem hefur
ekki enn fundið sér nýtt heimili.
„Nei, en það er allt að koma. Maður
var orðinn nokkuð rótgróinn í Charl-
ton eftir fjögur ár og ég neita því
MAÐURINN
Hermann Hreiðarsson er
32 ára
Hann hefur spilað samtals
336 úrvalsdeildarleiki í
Englandi
Þar hefur hann skorað 14
mörk
ekki að það er svolítill fiðringur í
maganum við að flytja, en ég þarf
auðvitað að sanna mig fyrir nýjum
þjálfurum, leikmönnum og áhorf-
endum. Annars hlakka ég bara
mikið til að byrja að æfa þarna
á þriðjudaginn. Þar hitti ég fyrir
Djimi Traore sem var hjá okkur í
Charlton, en annars verða þetta allt
ný andlit sem ég kynnist,“ segir Her-
mann sem veit alveg hvað hann vill
gera eftir að ferlinum lýkur.
„Ég er 33 ára og með tveggja ára
samning við Portsmouth og vona því
að ég sé ekki á neinni heimleið í bráð.
Ég hef mikinn áhuga á að fara út í
þjálfun þegar ferlinum lýkur, en það
er alltof snemmt að fara að spá eitt-
hvað meira í það. Þessi bransi er óút-
reiknanlegur og það getur allt gerst.
Maður veit aldrei hvert leiðin liggur,“
segir Hermann sem þarf varla að ör-
vænta, enda liðtækur golfari.
„Æi, ég veit það nú ekki. Forgjöfin
er nú ekkert til að hrópa húrra
yfir. Maður getur druslast einn og
einn hring, en svo koma stundum
nokkrir hræðilegir inn á milli. Ætli
ég sé ekki með svona 15-16 eða 17-18
í forgjöf."
GoÍfklæðnaður Hermanns hefur
ekki vakið síðri athygli heldur en
hlaup hans úr vörninni upp vinstri
kantinn.
„Við eigum það til að klæða okkur
upp á eins og enskir hefðarmenn.
Með sokka upp að hnjám og allt
það. Mér fannst þetta líka bara svo
helvíti flott föt að ég ákvað að kýla á
þetta,“ sagði Hermann að lokum.
.-—/
Canon eos 4ood
með 18-55mm linsu
10,1 milljón pixla
2,5" skjár
Níu punkta fókus
Digic II örgjörvi
3 rammar á sek.
allt að 27 rammar í burst
Picture style - mismunandi
litir og áhrif
Hugbúnaður til RAW vinnslu í tölvu
Video out
Vegur aðeins 510 grömm
Val á yfir 60 linsum við vél
IHa\sFeteme\
Su doku
4 7 5 2 6 9 1
7 5
2 6 9 5
1 7 9 8
6 9 3 1
8 4 2 6
9 4 3 7
6 4 3
1 2
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin
heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Drífa sig! Hún kemur heim
eftirtíu mínútur.
8-31
© LauflhingStock International Incydist by Umted Media. 2004
HERMflN
eftir Jim Unger