Bændablaðið - 25.01.2005, Page 2

Bændablaðið - 25.01.2005, Page 2
Aukin sala á dilkakjöti gæti orð- ið til þess að útflutningsprósent- an lækki, en að sjálfsögðu er það háð því hvernig salan gengur á nýbyrjuðu ári. Ef salan verður sambærileg því sem hún var á árinu 2004 má ætla að útflutn- ingsskyldan í haust verði um 25% en hún var 36% á liðnu ári. Lægri útflutningsskylda gæti orðið til þess að bændur fái hærra meðalverð fyrir útflutt kjöt. Ástæðan er að sjálfsögðu sú að þeir markaðir sem minnst gefa yrðu fyrst skornir frá. Sauðfjárbændur gætu þannig beint kröftum sínum í auknum mæli að innanlandsmarkaði sem gefur hærra verð. "Við erum farnir að spyrna frá botninum," sagði Jóhannes Sigfússon, for- maður Landssamtaka sauðfjár- bænda. Formaður LS sagði þróunina gleðilega fyrir sína menn. "Ástæða aukinnar sölu er meðal annars breytt auglýsingastefna en síðast en ekki síst hafa framleiðslufyrir- tæki tekið sér tak. Veðurfar undan- farin ár hefur líka verði hagstætt og mikið selst af grillkjöti. Sala á þorramat hefur líka aukist. Hefð fyrir neyslu kindakjöts er svo sannarlega enn til staðar á Íslandi." Jóhannes sagði að óneitanlega skyggði afar lágt gæruverð á aukna sölu í dilkakjöti. Segja mætti að lágt gæruverð hafi étið að miklu leyti upp ávinninginn og vandinn væri sá að ekkert benti til þess að gærumarkaðurinn væri að brag- gast. Aðspurður um sölu dilkakjöts á erlendum mörkuðum - í ljósi gengisþróunar undanfarna mánuði - sagði Jóhannes að verð til bænda árið 2004 væri hærra en árið 2003. Ástæðan væri sú að afurðasölufyr- irtæki væru að flytja meira magn út til þeirra landa sem best borga, en auk þess væri varan meira unn- in. "Sala á lambakjöti virðist hafa heppnast ágætlega í Danmörku. Varðandi Ameríkumarkaðinn þá hefur óhagstæð þróun dollars haft sín áhrif. Þó hefur tekist að halda verði sem nemur lækkun dollar- ans," sagði Jóhannes og að það væri nokkuð gott. 2 Þriðjudagur 25. janúar 2005 16 þúsund spurðu í Varmahlíð Rösklega sextán þúsund manns komu í upplýsingamiðstöðina í Varmahlíð á liðnu sumri og leituðu þar upplýsinga. Þetta er mesti fjöldi sem þangað hefur komið á einu ári en 2003 komu þangað 14.600 manns. Eins og undanfarin ár voru er- lendir ferðamenn í miklum meirihluta þeirra sem leituðu sér upplýsinga hjá starfsfólki stöðvarinnar í sumar. Í Húnavatnssýslum voru starfræktar tvær upplýsingamið- stöðvar sl. sumar. Í Staðarskála var opið í einn og hálfan mánuð . Þangað komu 5.450 manns. Í upplýsingamiðstöðina á Blönduósi leituðu rúmlega þrjú þúsund manns sem var fækkun frá árinu á undan. Í Austur-Húna- vatnssýslu var hins vegar þokka- leg aðsókn í gistingu frá miðjum júlí fram í miðjan september. Þar var um útlendinga að ræða í 90% tilvika. Á málþingi ferðaþjónustunn- ar á Norðurlandi vestra fyrir skömmu komu m.a. fram at- hyglisverðar tölulegar staðreynd- ir. Þannig var hlutdeild Norð- vesturkjördæmis í seldum gisti- nóttum í landinu árið 2003 10,4%. Það skiptist þannig að Vesturland var með 5,7% hlut- deild, Vestfirðir 2,3% og Skaga- fjarðar- og Húnavatnssýslur með 2,4%. Það er ljóst að ferðaþjónustu- aðilar á þessu svæði hljóta að leggja áherslu á að auka hlutdeild sína á þessu sviði sem öðrum á næstu árum. /ÖÞ Jón Bjarnason er fyrsti flutn- ingsmaður þingsályktunartil- lögu um að standflutningar verði teknir upp aftur. Í tillög- unni er gert ráð fyrir að sam- gönguráðherra verði falið að hefja uppbyggingu strandsigl- inga sem nauðsynlegs hluta af vöruflutninga- og samgöngu- kerfi landsins. Ráðherra undir- búi með gerð áætlana og fram- lagningu frumvarpa að ríkið geti í framtíðinni tryggt reglu- legar strandsiglingar til allra landshluta með því að bjóða út siglingaleiðir. Í greinargerð með tillögunni segir m.a. að á síðustu árum hafi strandsiglingar verið að leggjast af hér við land. Flutningsmenn telja að ekki verði við það unað enda má fullyrða að sjóflutningar meðfram strandlengjunni séu verulega vannýttur samgöngu- kostur. Því leggja þeir til að sam- gönguráðherra verði falið að und- irbúa að strandsiglingar verði hafnar á vegum ríkisins á grund- velli útboða. Einnig er tekið fram að fram- kvæmdastjórn Evrópubandalag- anna hafi fallist á aðstoðarkerfi sem Bretar hafa komið á til að færa flutninga af vegum og yfir í siglingar og að hóflegur styrkur ríkis til slíkra aðgerða brjóti ekki gegn samkeppnisreglum banda- lagsins. Flutningsmenn telja mikilvægt að útboð á siglingaleiðum geti hafist eigi síðar en haustið 2005. Því er lagt til að ráðherra skili til- lögum sínum sem allra fyrst og eigi síðar en 1. febrúar 2005. Jóhannes Sigfússon, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda Sauðfjárbændur spyrna frá botninum Strandflutningar verði teknir upp aftur Samkvæmt bráðabirgðatölum Samtaka afurðastöðva í mjólk- uriðnaði nam innvigtun mjólk- ur í desember 9,248 milljónum lítra en var 9,086 milljónir lítra í desember 2003. Nemur aukn- ingin 1,8% á milli ára en ef litið er til fjölda framleiðsludaga þá var aukningin um 5% milli ára. Á árinu 2004 skiluðu kúa- bændur landsins um 112 milljón lítrum mjólkur til afurðastöðv- anna, ekki hefur verið framleitt eins mikið magn mjólkur hér- lendis síðan árið 1985 en þá nam innvigtun í afurðastöðvar lands- ins um 116 milljónum lítra. Innvigtun mjólkur á síðasta ári var um 3,6 milljónum lítrum meiri en á árinu 2003 sem er aukning um 3,4% milli ára. Það sem af er verðlagsárinu hefur innvigtunin verið 34,8 milljónir lítra sem er um 2,3 milljónum lítrum meira en á verðlagsárinu á undan sem er aukning um 7%. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, sagði að ekki mætti gleyma því að á sama tíma árið 2003 dró nokkuð úr framleiðslu mjólkur en að það hafi nú alveg gengið til baka. Þá benti hann á að markaðurinn þurfi 109 til 110 milljónir lítra á ári, það sé það magn sem verið er að selja prótínið úr. ,,Sumarið í fyrra var víðast hvar indælt og þess vegna er til mikið af góðu fóðri hjá bændum og kýrnar mjólka því vel," sagði Þórólfur. Hann segir að sú mikla fjöl- breytni sem átt hefur sér stað í framleiðslu á mjólkurafurðum eigi sinn þátt í aukinni mjólkur- neyslu landans. Sömuleiðis hafi sá samdráttur sem verið hefur í fitusölunni í það minnsta stöðv- ast. Hann segir að mjólkurfram- leiðendur hafi tapað á kennara- verkfallinu og slíkt hafi gerst áð- ur í kennaraverkfalli. Börnin drekka mikið af mjólk í skólun- um, það dettur niður í verkfalli og þá komi líka mikið los á allt sem heitir næring. Þetta segir Þórólfur Sveinsson að reynslan sýni. Uppgjör á sauð- fjárskýrslum frá haustinu 2004 Eins og áður þá byrjuðu skýrslur úr sauðfjárræktinni frá haustinu að berast til uppgjörs hjá BÍ snemma í nóvember. Vinnan gekk greiðlega og náðist að ljúka uppgjöri á öllum skýrslum, sem bárust fyrir 22. desember, fyrir jól. Þá var búið að gera upp skýrslur fyrir fleiri ær en nokkru sinni áður á sama tíma. Uppgjör var þá búið fyrir rúmlega 123 þúsund ær frá hasutinu 2004. Hér verður ekki gerð grein fyrir niðurstöðum. Eins og ýmsir þekkja er hægt að finna niðurstöður úr margvíslegu uppgjöri á vef Bænda- samtakanna (bondi.is). Uppgjörið, sem lokið er, er eins og ætíð á þess- um tíma ákaflega misskipt eftir landsvæðum, hlutfallslega lang- mest af því er af Vestfjörðum og Norðurlandi. Þrátt fyrir að náðst hafi að ljúka þetta miklu uppgjöri á þessum tíma er ástæða til að vekja athygli á því að vegna gæðastýringar þá er fá- dæma mikil aukning í skýrsluhald- inu, þannig að hlutfallslega er ekki meiru lokið nú en áður. Þess vegna er ástæða til að minna alla þá mörgu skýrsluhald- ara á, sem enn eiga eftir að skila skýrsluhaldinu frá haustinu 2004, að skilafrestur til þess að standast ákvæði reglugerðar um gæðastýr- ingu er til 1. mars 2005. Sá stóri hópur sem enn á eftir að skila skýrslunum er því hvattur til að huga að þeim málum sem allra fyrst. /JVJ/ Vilja endurbætur á nautauppeldisstöð BÍ í Þorleifskoti "Félagsráð Félags kúabænda á Suðurlandi telur brýnt að nú þegar verði ráðist í endurbætur á nautauppeldisstöð BÍ í Þorleif- skoti, þannig að hún standist kröfur reglugerðar nr. 438/2002 um aðbúnað nautgripa." Þannig hljóðar ályktun sem samþykkt var á á fundi félagsráðs Félags kúabænda á Suðurlandi þann 4. janúar síðastliðinn: Í greinargerð segir: "Núver- andi aðstaða í Þorleifskoti er orðin mjög gömul og byggð á tímum þegar allt aðrar aðstæður og kröfur ríktu. Innréttingar eru orðnar úrelt- ar og standast engan veginn ákvæði reglugerðar um aðbúnað nautgripa. Umönnun gripanna þarna hefur hins vegar ætíð verið til fyrirmyndar og umsjónarmönn- um til stakrar prýði. Eins er húsa- kostur stövarinnar ágætur og vel við haldið. Því ætti ekki að vera kostnaðarsamt að gera þær úrbæt- ur sem þarf. Þeir kálfar sem aldir eru upp í Þorleifskoti bera með sér framtíðar erfðaefni íslenskrar nautgriparæktar og því ætti það að vera metnaður okkar að búa þeim sem bestar aðstæður." Mesta innvigtun mjólkur frá 1985 Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda í apríl Stjórn Landssamtaka sauðfjár- bænda hefur ákveðið að halda að- alfund samtakanna árið 2005 á Hótel Sögu í Reykjavík, dagana 7. og 8. apríl nk. Ástæða fyrir því að fundartíma hefur verið flýtt frá fyrra ári er ósk aðildarfélaga LS og fulltrúa þeirra, þar sem fundar- tími í júní eða ágúst þykir óhent- ugur. Einnig er í sumum tilfellum hagstæðari kjör á aðstöðu fyrir svo stóran fund að vetri til en á sumrin. Það er allmikið vetrarríki í Skagafirði nú í byrjun árs og bregður mönnum við eftir snjólausa vetur að undanförnu. Víða hefur safnast mikill snjór að byggingum, en þessi mynd náðist áður en þeir Kimbastaðabændur fóru að moka frá fannbörðum útihúsunum. Bændablaðsmynd/Gunnar

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.