Bændablaðið - 25.01.2005, Qupperneq 8

Bændablaðið - 25.01.2005, Qupperneq 8
8 Þriðjudagur 25. janúar 2005 Farmall - Búinu allt Árið 2005 er merkisár í tæknisögu landbún- aðarins að því leyti að þá eru liðin rétt 60 ár síðan ein frægasta dráttarvél allra tíma á Ís- landi kom fyrst til landsins. Farmall A hét hún, og á sinn máta markaði hún upphaf fjölbreyttrar vélvæðingar hinna einstöku búa, en áður höfðu "samvinnuvélar" bænda, traktorarnir, unnið umtalsvert starf að jarða- bótum með nýrækt. Hið nýja hlutverk vél- tækninnar lá í heiti þessarar forvitnilegu dráttarvélar: FARMALL - Búinu allt, svo snarað sé á gott íslenskt ungmennafélags- mál. Ekkert minna hét hún, en málvöndun- armenn sem Íslendingar voru þá sem nú kölluðu hana bara Farmal og beygðu nafnið í föllum, bættu við það greini eftir þörfum og skelltu í fleirtölu vandræðalaust, rétt eins og um væri að ræða gamalgróna íslenska orðið þumall. Þannig tóku bændur þessa rauðu og fjölhæfu vél í sátt frá fyrsta degi. Hún seldist í hundraðatali og varð tákn um framsýni og sóknarhug þeirra er keyptu. Og færri fengu en vildu því á þessari tíð var inn- flutt vara skömmtuð. Samkvæmt bók Árna G. Eylands, Búvélar og ræktun, munu 474 Farmall A dráttarvélar hafa verið fluttar til landsins á árunum 1945-1948, þar af 174 fyrsta árið. Þær komu því á nærfellt 12. hvert býli. Það er því síst að undra að Far- mall A hefur orðið meira en einni kynslóð eins konar holdgervingur tæknibyltingar tuttugustu aldar og gangandi fulltrúi sveitar- innar eins og margir muna hana. Svo ekki sé hallað á aðra skal þess getið að nokkrir (13) jafnokar Farmals að lipurð og léttleika höfðu komið til landsins árið áður (1944); það voru gúmhjólaðar Allis Chalmers-drátt- arvélar, en þær hurfu af ýmsum ástæðum í skugga Farmalsins sem fékkst ekki afgreidd- ur það árið. Farmall - fyrsta heimilisdráttarvélin Traktorarnir, sem þegar voru orðnir góðir kunningjar landsmann um þessar mundir, voru flestir hinir mestu hlunkar, háværir og engin léttavara í meðförum, gengu á járn- hjólum enda einkum notaðir til þungra verka í tengslum við jarðvinnslu. Farmallinn mætti hins vegar á gúmmíhjólum frá fyrsta degi, virtist léttur og lipur og eiginlega til flestra verka hæfari en nýbrots og jarðvinnslu. Og reynslan tók fljótlega að safnast bændum: · Farmallinn var einkar lipur til sláttar á hinum nýju túnasléttum sem voru nú að koma í gagnið hver af annarri. · Farmallinn kom sér vel við heimakstur á heyi, hvort heldur var á vagni eða sleða. · Farmallinn, búinn heyýtu, sópaði saman heyi nærri því jafnrösklega og gert mundi hafa kerling Sæmundar í Odda öldum fyrr. · Farmallinn hentaði til kaupstaðarferða og annarra ferðalaga, komst fjórum sinnum hraðar en gangandi maður við góðar að- stæður, og fór vel á hestvagnabrautunum, sem víða voru komnar. · Farmallinn, með dráttarslá, tengigötum og festingum, reimskífu og/eða tengidrifi, tók fagnandi við hinum ýmsu verkfærum, sem voru að koma til landsins, ekki síst sláttu- vélum, forardælum og síðar heyblásurum. · Farmallinn varð innlendum hugvitsmönn- um freisting til frekari hönnunar og aðlög- unar léttitækja og útbúnaðar, en að því verður komið síðar. Menn kunnu sér eiginlega ekki læti, margir hverjir, kepptust við að eignast Farmal og notuðu þá ótæpilega. Alhliða vélvæðing úti- verka á almennum búum hafði hafið innreið sína, vélarheitið reyndist réttnefni, og Far- mallinn kom sér vel því vinnuaflsskortur háði landbúnaðinum: Aðrar atvinnugreinar freistuðu meira og þær gátu boðið betri laun og reglulegri vinnutíma. Ætt og uppruni Farmallinn kom frá Chicago í BNA, var smíðaður í verksmiðjum International Har- vester, sem þá var orðið stórveldi í búvéla- smíðum. Rætur fyrirtækisins lágu ekki síst í starfi Cyrus Hall McCormick, sem gjarnan er minnst sem höfuðsmiðs kornskurðarvéla. Þótt Farmall A væri nýlunda hérlendis árið 1945 hafði hann komið á markað vestra árið 1939. FARMALL-hugmyndin átti þó mun lengri sögu. Árið 1916 er vitað að lögð voru drög að alhliða dráttarvél er gert gæti sem flest búverk að einmenningsiðju. Vinnuafls- skortur fyrra stríðsins knúði m.a. slíkar hug- myndir fram. Það var svo árið 1924 að verk- smiðjurnar buðu völdum mörkuðum 200 handsmíðaða Farmala, skrifuðu þeir Klanc- her og félagar í bókinni Farm tractors (2003). Ekki lagði Farmallinn veröldina að fótum sér strax, enda braut gerð hans um margt í bága við traktorahefð þess tíma (t.d. IHC 10-20 og Fordson). En áfram var haldið og 1930 sló dráttarvélin loks í gegn ..."the Farmall set standard for the modern farm tractor and spawned a line of tractors that would dominate the industry for nearly four decades", skrifuðu Klancher og félagar. Far- mallinn þótti einkar lipur í snúningum, og veitti ökumanni góða sýn yfir verkin. Vélin var hábyggð og með nástæðum framhjólum, sem komu sér afar vel í raðræktuðum jarðar- gróða, svo sem maís, baunum ofl., við sán- ingu, hreykingu, illgresiseyðingu og upp- skeru. Farmallinn var því ekki að ófyrir- synju auglýstur undir slagorðunum "culti- vision". Farmallinn öðlaðist miklar vinsæld- ir í BNA og átti ríkan þátt í að leysa vinnu- hestana frá störfum. Bændurnir hengdu hestaverkfæri sín aftan í Farmalinn, rétt eins og margir íslenskir starfsbræður þeirra gerðu mörgum árum seinna. En svo var það iðnhönnuðurinn Raym- ond Loewy sem undir lok fjórða áratugarins gaf Farmalnum nýtt útlit, og fram komu FARMALL A, B, C, H og M, ..."timeless classics that are still a standard fixture on the American farm", skrifuðu Klancher og félagar. Farmall A var minnstur bræðranna, skilaði 16 hestöflum í drætti en 18 á reim- skífu. Farmalarnir seldust í hundruðum þús- unda og mun Farmall H hafa selst best. Lestina rak svo FARMALL CUB, smíðaður með þarfir minni búa í huga og framleiddur allt til ársins 1964. Hann naut líka mikilla vinsælda hérlendis, enda búinn flestum kost- um bræðra sinna utan aflinu sem var aðeins 8 hestöfl. Farmall í ýmsum hlutverkum Er Farmalarnir voru mættir til starfa í ís- lenskum sveitum leið ekki á löngu áður en bændur tóku að laga þá að þörfum sínum með ýmsum hætti. Misþægum og þolnum dráttarhestum var fljótlega gefið frí og hestaverkfærin spennt aftan í hinn nýja afl- gjafa. Sá gat unnið hvíldarlaust á meðan ek- illinn hélt sér vakandi. Hin hefðbundnu störf svo sem létt jarðvinnsla og sláttur lágu beint við. Snúnings- og rakstrarvélar komu til sögunnar og bæði einstaklingar og verkstæði ráku saman hey- og jarðvegsýtur á Farmal- inn. Þá stækkuðu menn heyvagna sína og - sleða í samræmi við það ríkulega afl sem fengist hafði. Afköstin uxu og verkin léttust. En svo beittu menn Farmalnum líka til óhefðbundinna búverka. Skrifaranum er kunnugt um ungan mann sem datt það m.a. í hug að létta móður sinni kjöthökkun með því að taka hakkavél hennar (sem var nr. 10, að minnir mig) og hengja hana við tengidrif Farmalsins með hjálp tannhjóla og keðju af gömlu reiðhjóli sem til var á bænum. Á lulli hentaði þannig snúningshraði Farmalsins til þess að knýja hakkavélina: var þá bara að koma sér vel fyrir með kjötið og mata hakkavélina og hinum megin við hana beið síðan fars tilbúið til frekari vinnslu. Sami piltur hafði stundum þurft að dæla for úr vilpunni á bænum með handdælu, 1939- módelinu. Það þótti honum heldur leiðinlegt verk en nýttist þó tíminn við handdælinguna til þess að hugsa út hvernig beita mætti Far- malnum við það einnig. Og hann fann lausn: Hann tjakkaði Farmalinn upp að aftan þann- ig að annað hjólið gat súrrað rúnt. Við boltagat á felgu hjólsins festi hann eins kon- ar hlaupastelpu sem leidd var í veltiarminn (handfangið) á forardælunni. Í hæfilegum gír lét nú Farmallinn dæluna ganga, í bók- staflegri merkingu, og hægt og bítandi fyllt- ist foraráman. Á meðan lá piltur með strá í munni sólarmegin undir vilpuveggnum og naut hugvits síns í veðurblíðunni. Farmall- inn vann verkið. Svo brugðu menn sér einnig til kirkju, á ball eða búnaðarfélagsfund á Farmalnum. Víst var hann stöðutákn bænda um hríð, eins og oft hefur orðið um tækninýjungar. Óneit- anlega gat hins vegar orðið erfitt að ferðast um langvegu á Farmal eins og öðrum tækj- um þar sem ekill sat óvarinn fyrir veðri og vindum. Dæmi voru því um að bændur smíðuðu eins konar ekilshús eða ekilsskýli á Farmala sína. Ekki munu þau öll hafa staðist fagurfræðilegar kröfur hvað þá öryggis- staðla er síðar komu fram, en mættu hins vegar þeirri frumkröfu að veita vörn fyrir veðrum. Og þannig urðu dæmin eflaust fleiri. Farmalar Búvélasafnsins Á Búvélasafninu á Hvanneyri er til sýnis uppgerður Farmall A, er kom til landsins fyrsta innflutningssumarið, 1945. Hann var í eigu hjónanna á Innri-Skeljabrekku í Anda- kíl, Kristínar og Jóns Gíslasonar. Þá á safnið tvo aðra í góðu standi: frá Glitstöðum í Norðurárdal og Kaðalstöðum í Stafholt- stungum. Ýmis fylgiverkfæri eru til, svo sem sláttuvél, plógur, hey- og jarðýta, en hvort tveggja er íslensk smíð. Töluvert myndefni er til, einkum úr safni Verkfæra- nefndar ríkisins. Þá má nefna bækur og rit, þ.m.t. auglýsingabæklinga og leiðbeiningarit um meðferð og notkun Farmalsins og verk- færa með honum. Fleiri innlend söfn eiga ágæta Farmala í fórum sínum og fjöldi ein- staklinga hefur gert upp dráttarvélar af þess- ari gerð. Ætla má að nokkri tugir uppgerðra Farmal A-véla séu til og að minnsta kosti annað eins sé til í bjarglegu standi í geymsl- um víða um land. Það segir sitt um vinsældir Farmalanna en ekki síður hve traustbyggðir og endingargóðir þeir hafa reynst, því frá- leitt var þeim hlíft í notkun mörgum hverj- um. Í safninu er einnig fallegt eintak af Far- mal Cub, frá Ytri-Skeljabrekku í Andakíl, og nefna má að nýlega afhenti fjölskylda Friðjóns Árnasonar frá Melgerði í Lundar- reykjadal, safninu Farmal H, þann eina sem mun hafa komið til landsins, en sú vél kom að Hvanneyri og var notuð þar um árabil. Innlendar Farmal-sögur óskast! Farmallinn tróð brautina fyrir aðrar tegundir heimilisdráttarvéla, svo nú varð ekki aftur snúið. Margt fylgdi hinni nýju tíð. Ýmsar sögur urðu til um sambýli gróins sveitalífs og þessa galdraverkfæris úr Vesturheimi. Búvélasafninu á Hvanneyri væri mikill fengur af slíkum frásögnum og því hvetjum við lesendur til þess að senda okkur Farmal- sögur. Myndefni er líka vel þegið. Slíkt efni getur brugðið skemmtilegu ljósi á merkilega kafla í sögu íslenskrar verkmenningar. Efnið má senda til skrifarans á Hvanneyri, sem einnig hefur símann 433 5000, og netfangið bjarnig@hvanneyri.is. Bjarni Guðmundsson, Hvanneyri Farmallinn sextugur á Íslandi Farmall A eins og hann var auglýstur bændum á 5. áratug síðustu aldar. Eggert bóndi Ólafsson á Þorvaldseyri ýtir saman nýslegnu heyi með Farmal sínum á 6. ára- tug síðustu aldar. (Myndasafn Verkfæranefndar/Búvélasafnið)

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.