Bændablaðið - 25.01.2005, Side 9

Bændablaðið - 25.01.2005, Side 9
Þriðjudagur 25. janúar 2005 9 Aloe Vera – gefandi jógúrt Nú á dögum erum við almennt meðvituð um heilsusamlegt líferni og þær náttúruafurðir sem löngum hafa verið nýttar til heilsu- eflingar. Dæmi um þetta er Aloe Vera plantan, eyðimerkurliljan, sem inniheldur yfir 100 virk efni sem geta verið mikilvæg fyrir heilsu og útlit. Njótið endurnærandi ferskleika MS Aloe Vera jógúrtar og jógúrtdrykkjar sem veita vellíðan og stuðla að innra jafnvægi. www.ms.is/aloevera H im in n o g h a f / S ÍA – 9 0 5 0 0 0 2 G R A N AT E P L I O G A P P E L S Í N A Fegurðin kemur innan frá Dótturfélag SS sameinast Reykjagarði Sláturfélag Suðurlands svf. hefur sameinað dótturfélag sitt SS Eignir ehf. Reykja- garði hf. sem m.a. rekur kjúklingasláturhús og kjö- tvinnslu á Hellu. Samhliða sameiningunni er hlutafé Reykjagarðs aukið og er að því loknu 195,7 millj- ónir króna. Eftir aukningu hlutafjár á Sláturfélagið 51% hlutafjár í Reykjagarði. Lokaátak í vatnsveitumálum kúa- og ferðaþjónustubænda Um síðustu áramót rann út frest- ur mjólkur- og ferðaþjónustu- bænda til að skila inn umsókn um starfsleyfi fyrir vatnsveitur sínar. Segja má að hér sé um að ræða hluta lokaátaks vegna gæðamála vatnsveitna matvæla- framleiðanda og þeirra sem selja mat. Árið 2001 var sett reglugerð um að þessir aðilar verði að sækja um starfsleyfi fyrir vatn- sveitur sínar. Heilbrigðisfulltrú- ar á hverjum stað framkvæma úttekt á vatnsbólunum áður en starfsleyfi er veitt og heilbrigðis- nefndir viðkomandi sveitarfé- laga veita síðan þeim vatnsveit- um, sem standast kröfur, starfs- leyfi í samræmi við neysluvatns- reglugerð og lög um matvæli. Birgir Þórðarson hjá Heilbrigð- iseftirliti Suðurlands sagði að all- nokkuð væri um það að bændur væru með sínar eigin vatnsveitur og að ástand þeirra flestra væri nú orðið nokkuð gott og því lítið sem gera þurfi til að fá starfsleyfi fyrir þær. Víða eru komnar vatnsveitur fyrir heilu hreppana og þær væru í góðu standi. Mikill áhugi er fyrir því að koma slíkum veitum á sem víðast því þær eru öruggari en heimaveiturnar. Það er Sigrún Guðmundsdóttir, heilbrigðisfulltrúi og mjólkurfræð- ingur, sem hefur umsjón með þessu verkefni Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.