Bændablaðið - 25.01.2005, Síða 11

Bændablaðið - 25.01.2005, Síða 11
Þriðjudagur 25. janúar 2005 11 Hátt kjarnfóðurverð bitnar einna harðast á svínaræktend- um. Rúmlega 40% af tekjum svínabúanna fara í að kaupa kjarnfóður. Þarna er því um að ræða gríðarlega mikið hags- munamál fyrir svínaræktendur að sögn Ingva Stefánssonar, for- manns Svínaræktarfélags Ís- lands. Hann segist hafa fengið þær skýringar á háu kjarnfóðurverði að flutningskostnaður hafi aukist. Það sé vegna þess að ekki er hægt að nýta skipin til baka með flutn- ingi á fiskimjöli eins og gert var. Sömuleiðis hafi eftirlitskostnaður aukist, það er að segja sýnataka úr fóðri til þess að ganga úr skugga um að ekki sé salmonellu eða aðra sjúkdóma að finna í fóðrinu. ,,Ég vil hins vegar taka það skýrt fram að við teljum okkur engan veginn hafa fengið fullnægj- andi skýringar á fóðurverðinu," sagði Ingvi Stefánsson. Hann seg- ist vita til þess að einhverjir svína- bændur hafi aflað sér tilboða í að kaupa heila skipsfarma erlendis frá til þess að ná niður fóðurkostnaði. Matthías H. Guðmundsson, formaður Félags kjúklingabænda, segir kjarnfóður vega mjög þungt í rekstrarkostnaði kjúklingabúa. Sem hlutfall af heildar rekstrar- kostnaði er kjarnfóðurkostnaður um það bil 50%. Hann segir þetta vera langstærsta kostnaðarliðinn hjá búunum. ,,Ég hef leitað eftir skýringum hjá fóðurinnflytjendum á þessu háa verði og fengið þau svör að flutningskostnaður hafi aukist mjög mikið því erfitt sé að fá lausafarms flutningaskip. Uppi- staðan í kjúklingafóðri er maís eða korn sem að mestu leyti er keypt frá Bandaríkjunum og þar lækkaði verð á maís í haust auk þess sem dollarinn hefur lækkað niður í sögulegt lágmark. Síðan í desember 2003 hefur verð á kjarnfóðri hækkað um 23% en gekk nýlega til baka um 3%. Eftir stendur því 20% hækkun sem var gerð 2003 meðal annars vegna hás gengis dollarans og hversu hátt verð er á fóðrinu. Nú hefur verðið ytra lækkað niður í það sem eðlilegt er. Gengið hefur lækkað og þess vegna þykir okkur undarlegt að fóðrið skuli ekki lækka hér á landi og ekki síst vegna þess að flutningskostnaður á fóðri, sem kostar u.þ.b. 38 krón- ur kílóið, er um 5 krónur á kíló- ið," sagði Matthías. Hann segir að í undirbúningi sé fundur hjá forystumönnum þeirra búgreina sem nota mest af kjarnfóðri. Menn geti ekki sætt sig við þær skýringar sem gefnar eru á hinu háa verði. Landssamband kúabænda hef- ur gert úttekt á kjarnfóður- verði hér á landi og erlendis. Fram kemur m.a. í gögnum LK að verðmunur hér og á hinum Norðurlöndunum er gríðarlega mikill og er kjarnfóður til að mynda meira en helmingi ódýr- ara í Danmörku en á Íslandi. Verðþróun hérlendis hefur ver- ið töluvert önnur en í ná- grannalöndunum. Umræða um hátt kjarnfóður- verð hér á landi hefur verið hávær meðal bænda undanfarið. Sem dæmi má nefna að kjarnfóður fyr- ir mjólkurkýr kostar að jafnaði meira en 30 krónur kílóið. Kjarn- fóðurkostnaður vigtar um það bil 10% í rekstri kúabúa. Á vef LK segir að finna verði leiðir til að lækka kjarnfóðurkostnaðinn vegna þess hve þungt kjarnfóður vegur í rekstri kúabúa. Kjarnfóður um 50% af rekstrar- kostnaði svína- og kjúklingabúa Eyjólfur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Fóðurblöndunn- ar, segir ástæðuna fyrir því að verð á kjarnfóðri hér á landi er allt að helmingi hærra en í Dan- mörku vera flutningskostnaðinn og dýrara hráefni sem liggur í óskum bænda um að notað sé fiskimjöl í fóðrið til að bæta gæðin á fóðrinu. Bændum stend- ur til boða sambærilegt ódýrt fóður eins og selt er í Danmörku en þeir nota það einungis til eldis hér á landi. Flutningskostnaður- inn hefur hækkað mikið á síð- ustu misserum og Íslendingar þurfa að flytja mest af sínum hráefnum til fóðurframleiðslu frá Bandaríkjunum og Evrópu en Danir rækta megnið af sínum hráefnum. Þá segir hann að samkvæmt reglum Evrópusambandsins megi skip sem flytja fóður innan sam- bandsins ekki flytja fiskimjöl héð- an. Það verði að líða 6 mánuðir frá því skip sem flutt hefur fiskimjöl má flytja fóður. Þetta geri það að verkum að skipin fari hugsanlega tóm héðan sem geri flutninginn mun dýrari en ella. Í júlí í fyrra var sett á öryggisgjald vegna hafnar- verndar skipa í Reykjavíkurhöfn sem er vel á annað hundrað þús- und krónur fyrir skip. Þá hefur aukist kostnaður vegna reglugerða sem koma frá Evrópusambandinu og vegna eftirlits. Í lok árs 2003 varð mikil verð- hækkun erlendis á hráefnum eða um 40 - 50% en þar á undan var verð í lágmarki. Verðið á kjarn- fóðri hér á landi hækkaði um 23% en hefur síðan lækkað um 6% aftur og mun halda áfram að lækka í takt við lækkun á kostnaði við hrá- efni. Eyjólfur segir að þessi verð- hækkun erlendis hafi gengið til baka að hluta og gengi erlendra gjaldmiðla lækkað en flutnings- gjöldin aftur á móti hækkað. Flutningsgjöld frá Bandaríkjunum hafi þrefaldast og flutningsgjöld frá Evrópu séu enn að hækka. Þá hafa flutningsgjöld frá kornfram- leiðendum í Bandaríkjunum til hafnar líka hækkað mikið. Eyjólf- ur segir að hækkun flutningsgjalda hafi étið upp hluta af lækkun doll- arans og þá lækkun sem varð á maís í Bandaríkjunum síðastliðið haust vegna uppskerubata. Flutningskostnaður á kjarn- fóðri hefur hækkað mikið -segir Eyjólfur Sigurðsson framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar Kjarnfóður mun dýrara en í Danmörku

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.