Bændablaðið - 25.01.2005, Síða 13
Þriðjudagur 25. janúar 2005 13
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Fræðaþing landbúnaðarins 2005
verður haldið dagana 3. - 4.
febrúar n.k. og hefst stundvís-
lega kl. 09.00. Þetta er í annað
sinn sem þing af þessu tagi er
haldið, - en það er arftaki hlið-
stæðra funda sem nefndust
,,Ráðunautafundir"
Markmið Fræðaþings landbún-
aðarins er; - fagleg umfjöllun um
landbúnað og náttúrufræði og
miðlun niðurstaðana frá rann-
sókna- og þróunarstarfi í landbún-
aði. Fyrri daginn er þingið haldið í
húsakynnum Íslenskrar erfðagrein-
ingar, Sturlugötu 8, Reykjavík.
Meginefni þingsins þann dag er
sameiginleg dagskrá undir yfir-
skriftinni; Heilbrigði lands og
lýðs.
Seinni dag þingsins verða tvær
samhliða dagskrár í ráðastefnusöl-
um á 2. hæð Hótel Sögu. Þar verð-
ur fjallað um eftirfarandi megin-
efni: "Framleiðsluaðstæður á Ís-
landi: ógnanir og tækifæri" og "Ís-
lenskt umhverfi / landslag - van-
nýtt auðlind".
Eins og undanfarin ár verða
einnig kynntar fjölbreytilegar nið-
urstöður rannsókna og þróunar-
starfs í landbúnaði á veggspjöldum,
sem verða til sýnis báða dagana á
Hótel Sögu.
Fræðaþing landbúnaðarins
2005 er samvinnuverkefni Bænda-
samtaka Íslands, Landbúnaðarhá-
skóla Íslands, Landgræðslu ríkisins
og Skógræktar ríkisins.
Fræðaþingið er opið fyrir bænd-
ur og annað áhugafólk um fagmál
landbúnaðarins á meðan húsrúm
leyfir. Skráning á þingið hefst í
húsakynnum Íslanskrar erfðagrein-
ingar kl. 08.15 fimmtudaginn 3.
febrúar n.k. Ráðstefnugjald fyrir
báða dagana er kr . 9 000 . Innifalið
í gjaldinu er rit með erindum og
veggspjaldakynningum sem haldin
verða/kynnt á þinginu, kaffi og eða
te. Ráðstefnugajld fyrir annan dag-
inn er kr 4 500 og ráðstefnuritið
kostar kr 3500 í lausasölu.
Fræðaþing land-
búnaðarins 2005
Á Agromek sýningunni í Danmörku
sem lauk í síðustu viku voru kynntar
ýmsar nýjungar að vanda. Ein þeirra
sem vakti athygli gesta og er sann-
kallað fjölmúlavél var sambyggð
rúllu- og pökkunarvél sem bindur
u.þ.b. 50 kg rúllubagga. Notagildið
eflaust misjafnt hjá bændum en fram
kom að frændur okkar hjá færeysku
ráðunautamiðstöðinni höfðu fest
kaup á vélinni. Ekki fylgdi sögunni
hvort íslenskir gestir sýningarinnar,
sem voru um 100 talsins, hefðu lagt
inn pöntun. Nánar verður fjallað um
Agromek í næsta Bændablaði.
50 kg rúllubaggar!