Bændablaðið - 25.01.2005, Síða 16
16 Þriðjudagur 25. janúar 2005
F r a m l e i ð s l a o g s a l a b ú v a r a í d e s e m b e r 2 0 0 4
Meðalmjólkurinnlegg á hvert kúabú
109.208
131.182
121.371
119.226
78.732 82.413
89.212
95.540
100.120
60.000
70.000
80.000
90.000
100.000
110.000
120.000
130.000
140.000
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
Ár
Lí
tr
ar
Meðalinnlegg á hvert sauðfjárbú
4.6824.584
4.396
3.225
3.286
3.451
3.695
4.184
4.207
2.500
3.000
3.500
4.000
4.500
5.000
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
Ár
kg
k
jö
ts
Fjöldi kúabúa
1.237
854893
929
972
1.039
1.1221.185
1.291
400
600
800
1.000
1.200
1.400
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
Ár
Fj
öl
di
k
úa
bú
a
Fjöldi sauðfjárbúa
1.918
1.846
1.973
2.059
2.3142.3392.369
2.405
2.521
1.500
1.700
1.900
2.100
2.300
2.500
2.700
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
Ár
Fj
öl
di
s
au
ðf
já
rb
úa
Þróun síðustu átta ára
Kúabúum fækkaði um 34%
en sauðfjárbúum um 27%
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir desember 2004
des.04 okt.04 jan.04 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla 2004 des.04 des.04 desember '03 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 416.196 1.371.135 5.384.501 -2,4 -1,4 -5,6 22,3%
Hrossakjöt 102.372 346.465 883.109 49,5 35,1 -2,5 3,7%
Kindakjöt* 135.943 4.693.401 8.644.029 -56,5 -11,4 -1,7 35,8%
Nautgripakjöt 289.025 929.175 3.606.998 14,4 3,5 -0,5 15,0%
Svínakjöt 423.891 1.420.430 5.597.498 -9,6 -8,7 -9,8 23,2%
Samtals kjöt 1.367.427 8.760.606 24.116.135 -10,6 -6,8 -4,4
Mjólk 9.258.022 26.313.567 112.029.504 1,9 7,3 3,4
Sala innanlands
Alifuglakjöt 410.854 1.307.005 5.236.278 11,3 -0,4 -3,6 23,6%
Hrossakjöt 50.340 191.363 579.456 27,7 40,3 19,3 2,6%
Kindakjöt 533.211 1.967.637 7.228.865 15,0 16,5 13,5 32,7%
Nautgripakjöt 292.199 935.677 3.611.968 17,0 5,8 -0,1 16,3%
Svínakjöt 425.048 1.415.297 5.475.074 -10,0 -5,6 -8,4 24,7%
Samtals kjöt 1.711.652 5.816.979 22.131.641 7,4 5,3 1,2
Mjólk:
Sala á próteingrunni: 8.839.274 27.177.284 109.538.183 0,7 2,5 2,9
Sala á fitugrunni: 9.767.335 26.200.729 98.649.788 0,0 1,2 1,8
* Kindakjöt lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
Kúabúum hefur fækkað hratt síðustu ár. Í lok ársins 1996 voru þau 1.291
talsins en í árslok 2004 alls 854. Þetta er fækkun upp á 34%.
Heildarframleiðsla mjólkur hefur verið nokkuð jöfn á tímabilinu sem þýðir
að búin sem eftir standa hafa aukið framleiðslu sína verulega.
Meðalinnvigtun mjólkur frá framleiðanda hefur aukist jafnt og þétt um
leið og framleiðendum hefur fækkað og nyt kúnna hefur aukist.
Meðalinnvigtun hvers framleiðanda hefur aukist um 67% síðustu átta
ár.
Sauðfjárbúum með virkt greiðslumark hefur fækkað um 27% á síðustu
átta árum, úr 2.521 niður í 1.846. Mesta fækkunin varð árið 2001 en þá
fækkaði lögbýlum með virkt greiðslumark í sauðfé um 255.
Í sumum tilvikum eru fleiri en einn innleggjandi skráðir á sama býli. Fjöldi
innleggjenda er því nokkru meiri en fjöldi lögbýla með greiðslumark.
Rösklega 300 lögbýli til viðbótar framleiða kindakjöt án þess að eiga
greiðslumark, en það eru í flestum tilvikum lítil bú. Frá þessum býlum
koma um 300 tonn af kjöti og um 30 tonn að auki frá framleiðendum utan
lögbýla.
Sauðfjárbú hafa stækkað á síðustu árum og afurðir eftir hvert og eitt
aukist jafnt og þétt. Á átta ára tímabili hefur meðalinnleggið aukist um
45%. Innlagt kindakjöt í heildina hefur verið á bilinu 7.900 til 9.700 tonn á
tímabilinu. Mest var framleitt árið 2000 eða 9.700 tonn.
Fósturvísa-
talning í sauðfé
Síðastliðið ár nýttu þó nokkuð
margir sauðfjárbændur sér þá
þjónustu að láta telja fóstur í
ám og gemlingum. Fósturtaln-
ingu er best að framkvæma
45-90 dögum eftir fang. Þrif
og flutningur á búnaði er
framkvæmdur eftir reglum
yfirdýralæknis.
Þeir aðilar sem bjóða upp á
fósturvísatalningu eru:
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir,
Ljótarstöðum, Skaftártungu,
gsm. 866-0790, s. 487-1362.
Elínu Heiðu Valsdóttur,
Úthlíð, Skaftártungu,
gsm. 699-5127, s. 487-1363.
elinheida@visir.is
Gunnar Björnsson,
Sandfelli, Öxarfjarðarhreppi,
hs. 465-2229, gsm. 822-6108
Anna Englund,
Sandfelli, Öxarfjarðarhreppi,
hs. 465-2229, gsm. 822-6106,
netfang http://www4.mmed-
ia.is/hunaver/fangskodun.htm
Guðbrandur Þorkelsson,
Skörðum, 371 Búðardal.
S: 434-1302, gsm: 848-0206.
Refa- og minkaveiðar
Ríkinu ber sam-
kvæmt lögum að
greiða helming
veiðilauna
Árið 2003 ákvað ríkið að lækka
þá upphæð sem það greiddi á
móti sveitarfélögunum í veiði-
laun fyrir ref og mink. Sveitar-
félögin mátu það svo að ríkið
greiddi ekki nema um 30% af
veiðilaununum eftir lækkunina.
Samkvæmt lögum ber því hins
vegar að greiða 50% en lögun-
um var ekki breytt þótt ákveðið
væri að lækka upphæðina.
Umhverfisstofnun sendi út
bréf, dagsett 8. desember sl., um
endurgreiðslur vegna refa- og
minkaveiði. Hreppsnefnd Borgar-
fjarðarsveitar lýsti fyrir skömmu
megnustu óánægju með afgreiðslu
stofnunarinnar á málinu.
Sveinbjörn Eyjólfsson, oddviti
Borgarfjarðarsveitar, sagði ríkið
skýla sér á bak við fjárlögin og
segi að á þeim sé ekki meiri fjár-
veiting en þessi 30% sem nú eru
greidd. Fyrir bragðið lendir það
sem upp á vantar af kostnaði á
sveitarfélögunum. Sveinbjörn seg-
ir að Umhverfisstofnun hafi sett
sér verðskrá veiðilauna. Hún sé
svo lág að það fáist enginn maður
til þess að veiða á þeim kjörum.
,,Okkar kostnaður af veiðun-
um liggur á milli 1,5 til 2 milljónir
króna á ári. Af því endurgreiðir
ríkið um 400 þúsund krónur. Og
þegar sveitarfélögin eru búin að
greiða vsk. af allri upphæðinni er
lítið eftir af því sem kemur frá rík-
inu. Vegna alls þessa lýstum við
yfir megnustu óánægju með mál-
ið," sagði Sveinbjörn.
Hann segir að Samband ís-
lenskra sveitarfélaga geri allt sem
það geti til þess að fá meira fé til
að greiða í veiðilaun en það hafi
ekki borið neinn árangur til þessa.
www.bondi.is