Bændablaðið - 07.06.2005, Qupperneq 3

Bændablaðið - 07.06.2005, Qupperneq 3
Þriðjudagur 7. júní 2005 3 Fyrirhugað er að taka um 1000 ferkílómetra undir undir Hekluskóga en þetta er um 1% af öllu Íslandi og jafn- framt lang stærsta samfellda svæði sem hefur verið tekið til skógræktar á landinu. Það af- markast af Þjórsárdal í vestri, Hrauneyjafossi í norðri og Gunnarsholti í suðri. Hekla sjálf sleppur að mestu enda ná skógarmörk á svæðinu aðeins í 4-500 metra hæð. „Megin tilgangurinn er að endurheimta birkiskóg og víði- kjarr á svæðinu sem geti varið land gegn áföllum af völdum ösku úr Heklu. Trjágróður hefur möguleika á að lifa af gjóskufall sem kæfir lágvaxnari gróður. Skógur myndar skjól og dregur þannig úr hættu á foki gosefna,“ sagði Ása L. Aradóttir, sviðsstjóri hjá Landgræðslunni þegar hún var spurð um hug- myndafræðina að baki Heklu- skógum. Og Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi bætir við: „Margir möguleikar skapast á landnýtingu með skóginum eins og útivist og frístunda- byggð. Dýralíf og gróður verður fjölbreyttara, beitarþolið vex, kolefnisbinding eykst, og lækir myndast.“ „Úlfur Óskarsson kom fyrst fram með þessa hugmynd fyrir um fimm árum,“ segir Ása. „Landgræðslan hefur grætt upp mikið land á svæðinu og Skóg- ræktin, Landsvirkjun og skóg- ræktarfélög plantað miklum skógi m.a. í Þjórsárdal. Það er því fengin mikil reynsla af upp- græðslu þessa svæðis sem mun nýtast okkur vel.“Hreinn tekur undir með Ásu og segir þetta stórt verkefni, en nú hefur verið ákveðið að mynda samráðshóp til að vinna að því. „Nú hefur verið stigið það skref að mynda samráðshóp til að vinna að framgangi verkefnisins. Að honum koma auk Landgræðsl- unnar og Skógræktarinnar; Landgræðslusjóður, Skógrækt- arfélög Árnesinga og Rangæ- inga, Suðurlandsskógar og land- eigendur á svæðinu.“ segir Hreinn. „Það er ekki ætlunin að taka hvern fermetra af þessi svæði undir skóg,“ bætir Hreinn við, „því þarna eru bújarðir þar sem fólk mun áfram stunda sinn bú- skap og þarna eru líka hraun sem ekki er ástæða til að hrófla við. Þetta kemur allt betur í ljós þegar gerð verður heildar áætl- un um þetta átak og svæðið“. „Við erum ekki komin það langt að við getum sagt hver kostnaðurinn verður við Heklu- skóga. Svæðið er stórt og þetta er dýrt verkefni sem margir þurfa að koma að. Vinna þarf að uppgræðslu á hluta svæðisins til að stöðva jarðvegsrof og hraða gróðurframvindu. Ætlunin er að láta náttúruna hjálpa okkur sem mest, meðal annars með því að gróðursetja birki, gulvíði, loð- víði og fleiri tegundir í lundi þaðan sem þær geta dreifst. Þessar tegundir byrja að fram- leiða fræ tiltölulega snemma á æviferlinu og eru duglegar að sá sér út þar sem skilyrði eru hag- stæð,“ segir Ása. „Við höfum niðurstöður tilrauna og áralanga reynslu til að byggja á sem munu nýtast vel í þessu verk- efni“ sagði Hreinn að lokum. Hekluskógar Vilja endurheimta birkiskóg og víðikjarr sem geti varið land gegn áföllum af völdum ösku úr Heklu Lítil birkiplanta í nágrenni drottn- ingar íslenskra fjalla. Nýr samningur um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu tekur gildi í haust Frá og með 1. september nk. tekur nýr samingur um starfs- skilyrði mjólkurframleiðslu gildi. Þá verður sú breyting að beingreiðsla miðast ekki lengur við að vera 47,1% af lágmarks- verði mjólkur til framleiðenda heldur föst heildarfjárhæð sem deilist niður á heildar- greiðslumark framleiðenda. Beingreiðsla á lítra tekur síðan mánaðarlegum breytingum til hækkunar (eða lækkunar) í samræmi við vísitölu neyslu- verðs. Til 31. ágúst verður bein- greiðsla á lítra 39,32 kr., sem er 47,1% af núgildandi lágmarks- verði. Þann 1. september tekur síðan nýja fyrirkomulagið gildi. Þá verður þeirri fjárhæð sem er til ráðstöfunar í beingreiðslur, jafnað á heildargreiðslumark verðlagsársins og þannig fengin beingreiðsla á lítra. Samkvæmt samningu um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar frá maí í fyrra verða beingreiðslur 3.900 millj. kr að viðbættri verðtrygg- ingu. Sem dæmi má setja upp að miðað við verðlag 1. júní 2005 (vísitala 240,7 stig) og heildargreiðslumark upp á 112 millj. ltr. á komandi verðlagsári verður beingreiðsla 36,44 kr/ltr. Þannig þýðir hækkun heildar- greiðslumarks, lækkun bein- greiðslna á lítra og öfugt.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.