Bændablaðið - 07.06.2005, Side 4

Bændablaðið - 07.06.2005, Side 4
4 Þriðjudagur 7. júní 2005 Oft hefur fólk heyrt talað um mikilvægi þess að gæði loðdýra- fóðurs séu mikil og að það sé forsenda þess að ná megi góðum afurðum. Þetta er líka hárrétt en breytir ekki þeirri staðreynd að í fóðurgerðina er hægt að nota mest allan afskurð frá slát- urhúsum, kjöt- og fiskvinnslu. Þessu til viðbótar hefur færst verulega í vöxt að nýta lífrænan eldhúsúrgang í loðdýrafóður. Af Norðurlöndunum er senni- lega mest nýtt af úrgangi frá eld- húsum í Noregi og þá aðallega frá stórum mötuneytum. Enn sem komið er hefur þetta ekki verið gert hér á landi. Í raun má segja að allan lífrænan úrgang frá matvæla- iðnaðinum megi nýta til fóður- gerðar sé hann ekki á nokkurn hátt farinn að skemmast og gæði hans slík við gætum með góðri sam- visku lagt okkur hann sjálf til munns, værum við ekki svona vandlát eins og raun ber vitni. Á Íslandi falla til árlega vegna slátr- unar og vinnslu á sauðfé, nautgrip- um, svínum og kjúklingum um 20 þúsund tonn á ári af hliðarafurðum sem við mennirnir viljum ekki nýta. Stærstan hluta af þessum úr- gangi væri hægt að nýta til skinna- framleiðslu en nú er einungis verið að nýta um 1.500 tonn. Til viðbót- ar er síðan verulegt magn af úr- gangi frá fiskvinnslu og fiskeldinu. Ekki eru til nákvæmar tölur um heildarmagn sem fellur til frá fisk- vinnslunni en reikna má með að það séu margir tugir þúsunda tonna á ári plús auk þess sem fer í hafið. Frá fiskeldinu falla til 1-2 þúsund tonn en stór hluti þess er nú nýttur til fóðurgerðar fyrir loð- dýr. Framleiðsla á loðdýrafóðri á Íslandi árið 2004 var tæp 8.000 tonn og þar af voru milli 6-7 þús- und tonn hreinar hliðarafurðir frá sláturhúsum, fiskvinnslu og lax- eldi. Þær afurðir sem framleiddar voru úr þessum hliðarafurðum gera um 350 milljónir í útflutn- ingstekjur fyrir þjóðina. Hvernig væri því að hugsa málið upp á nýtt og gera fóðurstöðvar loðdýrafóð- urs að eyðingarstöðvum fyrir líf- rænan úrgang og breyta honum þannig í aukin verðmæti og skapa um leið aukna atvinnu. /EE Rætt við ríkið um land undir íbúða- byggð á Laugarvatni Árið 1996 var gerður land- skiptasamningur milli gamla Laugarvatnshrepps og ríkisins þar sem sveitarfélagið fékk byggingarland norður og austur af þéttbýlinu á Laugarvatni. Að sögn Sveins A. Sælands, oddvita Bláskógabyggðar, reyndist þetta land mjög illa sem bygginga- land vegna þess hve djúpt er niður á fast og svæðið er líka mjög blautt. Sveinn segir að mikil ásókn sé í lóðir undir hús- næði á Laugarvatni og sveitar- stjórnin hefur ekki getað orðið við óskum fólks um lóðir. Því var óskað eftir viðræðum við ríkið um að fá landið sunnan og vestan við Menntaskólann á Laugarvatni undir íbúðabyggð. Stjórnendur menntaskólans eru þessu hlynntir vegna þess að þeir vilja að skólinn verði meiri hluti af byggðinni en ekki í útjaðrinum eins og nú er. Sveinn segir að við- ræðurnar við menntamálaráðuneyt- ið séu á mjög jákvæðum nótum. Heimavinnsla og sala afurða Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í Bændablaðinu er tekin til starfa verkefnisstjórn sem hef- ur að markmiði að stuðla að brautargengi heimavinnslu og milliliðalausri sölu til neytenda. „Verkefnið hefur farið vel af stað en unnið hefur verið að því að tryggja fjármögnun auk þess sem unnið hefur verið við þróun vörumerkis og hugmyndafræði í tengslum við verkefnið. Næstu skref eru fyrirhuguð með þeim hætti að tak-mörkuðum fjölda áhugasamra bænda verði boðin þátttaka í handverkssýningunni á Hrafnagili í samvinnu við verk- efnisstjórnina og að þar verði verkefnið kynnt enn frekar“, sagði Árni Jósteinsson, verkefnisstjóri hjá Bændasamtökunum. Á komandi hausti er síðan stefnt að því að vinna leiðbeiningarefni og reglur og er stefnt að því að því verki ljúki fyrir áramót. Það má því búast við að málefni heimavinnslu og sölu afurða verði komin á fulla ferð upp úr næstu áramótum með fræðlu og námskeiðahaldi auk vöruþróun- ar og tilraunaverkefna. Áherslan verður fyrst um sinn lögð á fram- leiðslu mjólkurafurða, kjöt, fisk og brauðmeti. Verkefnisstjórnin horfir töluvert til Noregs við mót- un verklagsreglna og fræðslu enda hafa frændur okkar Norð- menn langa hefð fyrir fram- leiðslu og sölu afurða af þessu tagi. Áhugsamir eru hvattir til að hafa samband við Árna í síma 563-0300. Jón Bjarnason alþingismaður lagði fram þingsályktunartillögu skömmu fyrir frestun þingfunda í vor um stofnun háskólaseturs á Akranesi. Hann segist muni mæla fyrir tillögunni í haust. Í tillögunni segir að Alþingi álykti að fela menntamálaráðherra að hefja undirbúning að stofnun háskólaseturs á Akranesi með áherslu á iðn- og tæknigreinar auk almennra grunngreina há- skólanáms. Ráðherra geri Al- þingi grein fyrir undirbúnings- starfinu og tillögum sínum um uppbyggingu háskólanáms á Akranesi fyrir 1. nóvember. ,,Einhverjir segja að stutt sé á milli Akraness og Reykjavíkur og því sé óþarfi að byggja þar há- skóla. Styttra er á milli Háskóla Ís- lands og Háskóla Reykjavíkur. Samt þykir mönnum sjálfsagt að byggja nýtt skólahús fyrir HR,“ sagði Jón Bjarnason í samtali við Bændablaðið. Hann segir að Akranes og byggðir Borgarfjarðar séu vaxandi samfélag. Það er orðinn hluti af lífskjörum fólks að eiga aðgang að fjölbreyttu námi. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum könnun- ar sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi létu gera á viðhorfum fólks til búsetuskilyrða á Vestur- landi er ljóst að menntamálin eru mörgum þar ofarlega í huga. Á svæðinu sunnan Skarðsheiðar lentu möguleikar á að afla sér há- skólamenntunar í 2. sæti yfir þá þætti sem íbúarnir töldu helst ábótavant hjá sér. Sama könnun leiddi í ljós brýna þörf fyrir iðnað- armenn með framhaldsmenntun og ákveðnar vísbendingar um að skortur á iðn- og tæknimenntuðu fólki hamlaði vexti almenns iðn- aðar á Akranesi. Ný lög um gæðamat á æðardúni Ný lög um gæðamat á æðardúni voru samþykkt á Alþingi á dög- unum (www.althingi.is þing- skjal 1422; mál nr. 670). Aðalat- riði laganna er að allur æðar- dúnn, hvort sem er til dreifingar á innanlandsmarkaði eða til út- flutnings, skal metinn og veginn af lögskipuðum dúnmatsmönn- um eftir fullhreinsun. Áður en að dreifingu á innanlandsmark- aði eða til útflutnings kemur skal liggja fyrir að æðardúnn standist gæðamat dúnmats- manna með vottorði þeirra þar að lútandi. Frá því árið 1970 hafa verið í gildi lög um gæðamat á æðardúni. Í þeim lögum var bannað að flytja úr landi æðardún nema að hann væri metinn sem 1. flokks æðar- dúnn af löggiltum dúnmatsmanni. Hins vegar var ekki skylt að láta gæðameta æðardún sem seldur var á innanlandsmarkaði. Þetta var kært til eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna meintrar mismunun- ar á körfum til gæða æðardúns annars vegar til sölu innanlands og hins vegar til útflutnings. Í nýju lögunum er tekinn af allur vafi um að það sama gildir um dreifingu æðardúns innanlands og erlendis. Árni Snæbjörnsson, hlunn- inda- og æðarræktarráðunautur, segir að mikill meirihluti æðar- bænda sé samþykkur þessari breytingu á lögunum. Hann segir að kostnaður vegna þessa sé ekki mikill fyrir æðarbændur eða svip- aður og verið hefur enda er æðar- dúnninn fluttur út að langmestu leyti. Af þessu tilefni verður haldið námskeið fyrir dúnmatsmenn. Áætlað er að námskeiðið geti orð- ið fimmtudaginn 30. júní hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þetta námskeið verð- ur nauðsynlegur undirbúningur allra sem ætla að sinna þessu starfi, hvort sem þeir hafa verið matsmenn áður eða hafa áhuga á að gerast slíkir. Námskeiðið verður auglýst nánar en þeir sem vilja frekari upplýsingar geta leit- að til Árna í s. 5630300 eða net- fangið as@bondi.isSköpum verðmæti úr því sem annars væri hent! Háskólasetur á Akranesi? Nú er sá árstími er stóðhestar landsins taka til við að sinna skyldum sínum á ræktunarsviðinu. Hans-Christian Löwe, tamningamaður á Feti við Rauðalæk, notaði tækifærið í blíðunni á dögunum og tók léttan sprett á stóðhestinum Lúðvík frá Feti rétt áður en folinn sá hverfur til annarra starfa. Bændablaðsmynd: Hulda G. Geirsdóttir Mjólkurkvótinn sígur í verði „Ýmsar vísbendingar segja að verð á mjólkurkvóta fari nú lækkandi,“ segir Þórólfur Sveinsson, formaður Lands- sambands kúabænda. Eftir jafna stígandi var verð á fram- leiðslurétti hvers mjólkurlítra er komið upp í 410 kr. en virðist ætla að stöðvast þar og ganga til baka í framhaldinu. Í október var lítraverðið í kringum 280 kr. þannig að hækkunin hefur verið gríðarmikil á ekki ýkja löngum tíma. Þórólfur segir verðlækkunina meðal annars helgast af því að mikil eftirspurn sé eftir mjólk um þessar mundir og afurðastöðvarn- ar greiði fyrir alla umframmjólk sem þeim berist. Samanlagður framleiðsluréttur þessa verðlag- sárs sé um 106 milljónir lítra, en innvegin mjólk verði hins vegar verulega mikið meiri. Gera megi ráð fyrir að greitt verði fyrir prótín úr hálfri sjö- undu milljón lítra til viðbótar - og að óbreyttu verði kvóti næsta framleiðsluárs aukinn til sam- ræmis við þetta eða í 112 til 113 milljónir lítra. Í ár er kvótinn 106 milljónir lítra þannig að aukning- in gæti orðið 5,7 til 6,6% milli ára og hefur aldrei verið svo mikil frá einu verðlagsári til annars. Þetta segja heimildarmenn blaðsins að minnki þrýsting á markaðnum og lækki kvótaverð.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.