Bændablaðið - 07.06.2005, Qupperneq 10
10 Þriðjudagur 7. júní 2005
Mjólkin er í sókn. Verðlagsum-
hverfi mjólkuriðnaðarins á Íslandi
hvetur til nýjunga og vöruþróunar
sem skilar sterkri stöðu. Sameinað
fyrirtæki fær nýtt nafn á næstu vik-
um. Framundan er að takast á við
frekari almenna hagræðingu, móta
stefnu MS/MBF í útflutningi
mjólkurafurða og búa iðnaðinn
undir innlenda og erlenda sam-
keppni.
Þannig horfir Guðbrandur Sig-
urðsson á stöðuna og verkefnin
þegar hann hefur gegnt starfi for-
stjóra í nýsameinuðu félagi
MS/MBF í tvær vikur. Raunar
starfaði hann sem ráðgjafi stjórna
félaganna í aðdraganda samrunans
með það fyrir augum að vera ráðinn
sem forstjóri. Enda þótt Guðbrand-
ur fari fram með hægð þá dylst eng-
um að hann vinnur markvisst og
hefur mikinn metnað. Sem mat-
vælafræðingur með reynslu og sér-
hæfingu í stjórnun býr Guðbrandur
að þekkingu sem nýtist honum í
mjólkuriðnaðinum, en það sem er
þó hvað áhugaverðast við ráðningu
hans er sú staðreynd að hann hefur
stjórnað stórum sjávarútvegsfyrir-
tækjum sem eru beintengd við er-
lenda markaði. Ef til vill er það tákn
um það sem koma skal í mjólkur-
iðnaðinum.
Ný „stjórnarskrá“
„Ég legg mesta áherslu á það að
koma mér vel inn í starfið og
glöggva mig á því hvar möguleik-
ana er að finna. Breytingaskipulag
til tveggja næstu ára hefur hlotið
samþykki og ég hef ásamt lykil-
stjórnendum búið til okkar skipu-
lagshandbók. Við getum kallað það
stjórnarskrá MS/MBF og þar er
m.a. fjallað um ábyrgðarskiptingu
innan fyrirtækisins og samskipti
milli manna og rekstrareininga. Við
erum svo að dreifa útdrætti úr
„stjórnarskránni“ til starfsmanna og
funda sérstaklega með þeim. Ég
legg talsvert upp úr upplýsinga-
miðlun og t.d. er hafin útgáfa
Mjólkurpóstsins, vikulegra innan-
hússfrétta MS/MBF.“
Skyndibitinn sem heilsuvara
Mikil hagræðingakrafa stendur á
mjólkuriðnaðinum, bæði með verð-
festingu á heðbundnum mjólkur-
vörum og þörfum framleiðenda fyr-
ir hagstætt verð.
„Engar rekstrareiningar innan
MS/MBF verða lagðar niður í bili.
Hins vegar munum við kortleggja
hvernig framleiðsluþættirnir skipt-
ast niður á einingar og tryggja að
framleitt sé á sem hagkvæmastan
hátt m.a. með tilliti til flutninga sem
eru stór þáttur í ferlinu. Augljóst-
ustu samlegðaráhrifin eru í yfir-
stjórninni og hefðbundinni starf-
semi.
En ef til vill er ekki öllum ljóst
að verðlagsumhverfið sem mjólkur-
iðnaðurinn býr við er mjög hvetj-
andi til nýjunga og vöruþróunar.
Verð á hefðbundnum mjólkurvör-
um hefur ekki hækkað í þrjú ár og
því er lykillinn að því að bæta fram-
legð og afkomu ekki síður fólginn í
vöruþróun og markaðssókn með
nýjungar heldur en í hagræðingu í
framleiðslu á verðföstum vörum.“
Neytendur hafa mjög orðið var-
ir við stöðugan straum nýjunga úr
mjólkuriðnaðum og ekki er annað
að sjá en þeir láti sér vel líka.
„Já, það hefur orðið aukning í
öllum helstu vöruflokkum hjá
MS/MBF á árinu
Það eru margar nýjungar í fram-
leiðslu og meiri neyslubreytingar
en oft áður.
Nýju vörurnar, eins og til að
mynda skyrdrykkirnir, hafa verið
að koma mjög sterkar inn í neyslu
og það styrkir okkur á markaðnum
og í rekstri félagsins. Um leið er
mikil samkeppni milli tegunda hjá
okkur og tilfærsla í sölu. Nýjar og
hentugar umbúðir hafa gert það að
verkum að ýmsar mjólkurvörur
hafa slegið í gegn sem þægilegur
og hollur skyndibiti og heilsuvara.
Ný framleiðslutækni á gamalkunn-
ar vörur hefur sömuleiðis leitt til
þess að þær ganga í endurnýjun líf-
daga. Ný áferð, meiri stöðugleiki í
gæðum, útlit sem fellur að smekk
dagsins og umbúðir sem henta dag-
legu lífi, eru allt þættir sem styrkja
stöðu mjólkurafurða í markaðnum
þar sem þær eru í harðri samkeppni
við ýmsa aðra vöru. Ég vil líka
nefna að ýmsar vörur frá okkur líka
vel sem stuðningur í matargerð og
kemur það m.a. fram í söluaukn-
ingu á matreiðslurjóma og sýrðum
rjóma.“
Þrjár leiðir í útflutningi
Með nýjum mjólkursamningi og
breytingu á búvörulögum hefur
mjólkuriðnaðinum verið tryggt ör-
uggt rekstrarumhverfi næstu árin,
en horfur eru á því að nýir samning-
ar um heimsviðskipti geti opnað
fyrir meiri innflutning á mjólkuraf-
urðum en nú er raunin. Er þá út-
flutningur svarið við hugsanlegri
þróun?
„Áhugi á að koma íslenskum
landbúnaðarafurðum á markað er-
lendis hefur verið að aukast á ný
upp á síðkastið. Alþjóðleg sam-
keppnishæfni er orðið ríkjandi við-
mið í mörgum atvinnugreinum á Ís-
landi. Eitt af þeim verkefnum sem
liggur fyrir að vinna hjá MS/MBF er
að móta stefnu félagsins gagnvart út-
flutningi mjólkurvara. Það er mikil-
vægt fyrir okkur að skoða vel alla
valkosti félagsins í þessum efnum.
Það eru einkum þrjár leiðir sem vert
er að skoða nánar. Þær eru beinn út-
flutningur, leyfisbundin framleiðsla
og fjárfestingar erlendis.
Fjarlægðin frá mörkuðum kann
að vera okkur fjötur um fót í beinum
útflutningi en benda má á vel heppn-
aða leyfisbundna framleiðslu, eins og
á norska Jarlsberg ostinum í Banda-
ríkjunum sem mun vera að skila
norskum mjólkuriðnaði umtalsverð-
um tekjum. Áhættumesta leiðin er að
fjárfesta í mjólkurbúum erlendis sem
þegar eru í framleiðslu. Með því móti
fæst aðgangur að erlendum mörkuð-
um sem mætti nota til að koma ís-
lenskum vörum á framfæri. Það
verður spennandi að skoða þessi
málefni á næstu mánuðum og nauð-
synlegt fyrir félagið að hafa skýra
stefnu á þessum þýðingarmikla vett-
vangi. Ég tel raunar eðlilegt að
mjólkuriðnaðurinn skoði það vand-
lega hvort ekki væri rétt fyrir grein-
ina að ná fótfestu erlendis með út-
flutningi á valda markaði.“
Samkeppni er góð
Nýtt mjólkurbú, Mjólka, hefur ver-
ið í umræðunni og er ætlun þess að
hefja framleiðslu á osti án ríkis-
styrkja og utan þess framleiðslu-
kerfis sem við lýði er í landinu.
Hver er afstaða nýs forstjóra
MS/MBF til Mjólku?
„Umgjörð mjólkuriðnaðarins
kemur ofan frá og afurðastöðvarnar
vinna innan hennar., Samkeppnin
kemur utan að fyrr en síðar og við
áttum kannski fremur von á henni
erlendis frá en hér á innanlands-
markaði. Í eðli sínu er samkeppnin
eins hvaðan sem hún kemur og ég á
ekki von á öðru en að hún hvetji
okkur til frekari dáða. Ég óska for-
svarsmönnum Mjólku velfarnaðar
og vonandi verður starfsemi þeirra
til að stækka markaðinn á Íslandi í
heild fremur en að minnka hann
fyrir aðra.“
Rækt við hefðina
Mjólkuriðnaðurinn á Íslandi byggir
á sterkri hefð og MS hefur m.a. lagt
áherslu á tengingu við íslenskt mál
í markaðsstarfi sínu. Hverjar verða
áherslur sameiginlegs félags
MS/MBF í þessum efnum?
„Ég ber mikla virðingu fyrir
rótunum í samvinnuhreyfingunni
og þeim hefðum sem íslenskir
bændur hafa skapað í samtökum
sínum og afurðastöðvum. Mér
finnst eindregið að leggja eigi rækt
við samfélagslega ábyrgð fyrirtæk-
isins og starfsmanna þess og hef
áhuga á að fylgja málum þar vel
eftir. Íslenskan verður áfram okkar
mál og þar er enn hægt að plægja
nýjan akur.“
Frá Brim og ÚA til
MS/MBF
Guðbrandur Sigurðsson er
matvælafræðingur frá Há-
skóla Íslands og með meist-
aragráðu í viðskiptum
(MBA) frá Edinborgarhá-
skóla. Hann hefur frá því
hann lauk námi starfað
innan sjávarútvegs. Meðal
annars stýrði hann við-
skipta- og vöruþróun hjá
Íslenskum sjávarafurðum
hf. árin 1990 til 1996. Árið
1996 var hann ráðinn
framkvæmdastjóri Útgerð-
arfélags Akureyringa hf. og
gegndi því starfi til vors
2004 þegar félagið var selt
nýjum eigendum. Þá var
hann einnig framkvæmda-
stjóri Brims, sjávarútvegs-
sviðs Eimskipafélags Ís-
lands frá 2003 til 2004. Síð-
astliðið ár hefur Guð-
brandur sinnt ráðgjafa- og
fjárfestingarverkefnum.
Guðbrandur Sigurðsson forstjóri horfir fram á veginn
MS/MBF mótar útflutningsstefnu
Nýtt nafn í vændum
Margir bíða spennir eftir því hvaða nafn verður fyrir valinu á nýja fyrirtækið, enda telja flestir víst
að MS/MBF verði ekki langlíft heiti.
„Það er rétt að nú stendur yfir hugmyndasamkeppni meðal starfsmanna um nýtt nafn og verið er að
vinna úr tillögum. Mér sýnist að verulegur meirihluti vilji móta heiti fyrirtækisins þannig að skammstöfunin
MS haldist. Við verðum að átta okkur á því að bæði MS og MBF eru sterk vörumerki í hugum fólks og
þeim þarf að sjálfsögðu að viðhalda í markaðsstarfi. Um leið þurfum við að hyggja að því hvernig ætlunin er
að staðsetja fyrirtækið og styrkja ímynd þess á komandi árum og nýtt nafn getur verið góður upphafspunktur
í því starfi sem raunar tekur aldrei enda,“ sagði Guðbrandur.
„Við þurfum að skoða alla kosti
MS/MBF varðandi útflutningsmálin
og þar koma einkum þrjár leiðir til
greina: beinn útflutningur, leyfis-
bundin framleiðsla og fjárfestingar
erlendis,“ segir Guðbrandur Sig-
urðsson forstjóri. Mynd: Guðjón
Reynir.
Lykilstjórnendur MS/MBF ásamt forstjóra, f.v.: Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólkurbússtjóri í Búðardal og á Blönduósi, Guðmundur Geir Gunnarsson,
mjólkurbússtjóri á Selfossi, Auðunn Hermannsson, gæða- og umhverfisstjóri, Birgir Guðmundsson, framkvæmdastjóri aðfanga, framleiðslu og flutninga,
Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri sölu og dreifingar, Einar Matthíasson, framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarmála, Aðalbjörg Lúthersdóttir, fram-
kvæmdastjóri starfsmannamála, Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri MS/MBF, Pétur Sigurðsson, mjólkurbússtjóri í Reykjavík og Guðlaugur Björgvinsson,
framkvæmdastjóri fjármála og reksturs. Mynd: Guðjón Reynir.