Bændablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 7. júní 2005 11 Vegagerð yfir Hólaheiði hugsan- lega boðin út í haust Íbúar við Þistilfjörð, Bakka- fjörð og Raufarhöfn hafa lengi beðið eftir því að gerður yrði al- vöru upphækkaður vegur yfir Öxnadalsheiði, sem heimamenn kalla Hólaheiði. Nú er bara vegaslóði yfir heiðina sem er ekki opinn nema yfir hásumar- ið. Nú hillir undir að framkvæmd- ir geti hafist á næsta ári við nýjan veg því úrskurður Skipulagsstofn- unar mun liggja fyrir um mánaða- mótin maí/júní. Í kjölfar þess kemur kærufrestur og í haust eða í byrjun vetrar ætti að vera hægt að bjóða verkið út. Rúnar Þórarinsson, oddviti Öxarfjarðarhrepps, sagði að það hefði dregist lengi að Vegagerðin lyki sínu matsferli varðandi þenn- an veg en nú væri það komið og málið hafi farið til Skipulagsstofn- unar sem er að ljúka sínu verki. Búast megi við að einhverjar kær- ur og alla vega athugasemdir muni koma fram hjá landeigendum þar sem vegurinn mun liggja. Því er óvíst hvenær hægt verður að bjóða verkið út en hugsanlega gæti það orðið í haust. Vegur yfir heiðina frá Öxar- firði í Þistilfjörð er 56 km langur og styttir leiðina til Kópaskers eða Húsavíkur fyrir fólk í Þistilfirði mjög mikið og eitthvað fyrir Rauf- arhafnarbúa líka þar sem ekki þarf þá lengur að fara Melrakkaslétt- una. Skeifan 2 • 108 Reykjavík S. 530 5900 • Fax 530 5911 www.poulsen.is Fyrir flestar dráttavélar kr. 12.960 m/vsk Fáðu þér sæti Gufubaðsreiturinn á Laugarvatni Uppbygging fyrir rúmar 300 milljónir Tillaga að deiliskipulagi fyrir Gufu- baðsreitinn á Laugarvatni hefur verið send til skipulagsnefndar til fullnað- arafgreiðslu. Í undirbúningi eru fram- kvæmdir á gufubaðsreitnum fyrir rúmlega 300 milljónir króna. Það eru Hollvinasamtök gufubaðs og smíða- húss á Laugarvatni sem standa að þessum framkvæmdum og eru þau búin að fá stóra lóð á vatnsbakkanum á leigu frá ríkinu. Meðal annarra verður Bláa lónið stór rekstraraðili að þessari miklu uppbyggingu sem þarna mun eiga sér stað. Menn ætla að efla ímynd Laugar- vatns sem gamals baðstaðar fyrir land og þjóð. Fyrir tíma sólarlandaferða fóru margir Íslendingar að Laugarvatni, fóru í gufubað og syntu í vatninu. Til stendur að þarna verði byggt upp gufubað og að til boða standi hvers kyns heilsutengd þjónusta. Sveinn A. Sæland, oddviti Bláskóg- arbyggðar, sagði í samtali við Bænda- blaðið að hér væri ekki um að ræða fram- kvæmdir á vegum sveitarfélagsins. Hins vegar hefur sveitarfélagið lagt þessu lið og er sveitarstjórinn Ragnar S. Ragnars- son í stjórn félagsins sem annast upp- bygginguna.          !""# $% !"""   &&&'  (   )'  <' '   ' 3 <' 3 ' 3 => ' 3   ' 3 ?' 3 -' 3 @'A B  '  Kúskadagurinn á Hvanneyri laugardaginn 13. ágúst nk. Einstakt tækifæri fyrir gamla kúska frá Hvanneyri og aðra starfsmenn, sem þar hafa verið, til að hittast og rifja upp gamlar minningar Sögudagskrá og samvera - alvara, glens og gaman Heyrum gjarnan frá ykkur sem flestum Guðmundur Hallgrímsson s. 860 7305 og Bjarni Guðmundsson s. 894 6368 Nánari upplýsingar í síma 433 5000 og á www.buvelasafn.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.