Bændablaðið - 07.06.2005, Síða 12

Bændablaðið - 07.06.2005, Síða 12
12 Þriðjudagur 7. júní 2005 Þátttaka í kynbótasýningum og hrossadómum 1998 - 2004 0 200 400 600 800 1000 1200 1400 1600 1800 2000 1 2 3 4 5 6 7 Ár F jö ld i Fjöldi dóma Hross dæmd Aukinn áhugi á fagmennsku í hrossarækt Bændasamtök Íslands bera ábyrgð á faglegu ráðgjafar- og ræktunarstarfi í hrossarækt gegnum kynbótadóma á sýningum og skráningu ræktunar- upplýsinga í gagnabanka hrossaræktarinnar, - WorldFeng. Nú geymir hann gögn yfir 220.000 hross. Skráning í gagnabankann fer nú fram í tíu þjóðlöndum. www.bond i . is Um árabil hafa Bændasamtök Íslands tekið þátt í þremur skólaverkefnum; Sveitaheimsóknum barna, Degi með bónda og Heimsókn að Tann- staðabakka. Markmið verkefnanna er að veita börnum og unglingum innsýn í landbúnað sem atvinnugrein og lífsmáta. Sveitaheimsóknir barna byggja upp á heimsókn úr þéttbýlinu á sveitabæ að vori. Fimm bæir taka á móti börnum; Miðdalur og Grjóteyri í Kjós, Bjart- eyjarsandur á Hvalfjarðarströnd, Hraðastaðir í Mos- fellsdal og Stóri-Dunhagi í Hörgárdal í Eyjafirði. Á síðastliðnu ári heimsóttu alls rúmlega 18.000 manns sveitina og var þá um verulega aukningu að ræða frá árinu áður. Í vor hafa heimsóknir enn aukist og hefur verið mikið líf og fjör bæjunum. Börnin fá að komast í snertingu við dýrin, klappa hundum og hestum og halda á nýfæddum lömbunum. Að lokum býður svo mjólkuriðnaðurinn börnunum upp á mjólkursopa. Dagur með bónda hefur verið við lýði í sex ár og sjá sjö bændur á Suður- og Norðurlandi um það verkefni. Það fer þannig fram að starfandi bóndi heimsækir nemendur í 7. bekk og veitir þeim innsýn í sín daglegu störf með kynningu á sjálfum sér og búskap sínum. Börnin fá kynningu og útskýringar á hinum ýmsu vélum, tækjum og efnum sem notuð eru við sveitastörfin, þeim er sýnd myndbandsupp- taka og ljósmyndir heiman frá bóndanum og er bóndinn þá til svara við öllum þeim spurningum, sem kunna að vakna hjá börnunum. Bóndinn leggur einnig fyrir þau margvísleg verkefni, t.d. að greina mismunandi efni í krukkum s.s. bygg, grasfræ, fiski- mjöl og júgursmyrsli. Á Tannstaðabakka er 12 ára börnum boðið í heimsókn í tengslum við veru sína í skólabúðunum á Reykjum. Skúli Einarsson bóndi tekur á móti krökk- unum og fræðir þá um lífið í sveitinni. Hópurinn gengur um útihúsin og skoðar bú og byggingar undir leiðsögn bónda. Um 2000 unglingar heimsækja Skúla ár hvert og eru heimsóknirnar á annað hundrað. Krakkar í þriðja bekk Snælandsskóla í heimsókn í Miðdal í Kjós. Hvað er í krukkunni? Myndin var tekin í Snælands- skóla þar sem bóndi var í heimsókn. Skólaverkefni á vegum BÍ Skúli Einarsson og Ólöf Ólafsdóttir, bændur á Tannstaðabakka Þátttaka í kynbótasýningum og hrossadómum 1998-2004 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.