Bændablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 24
24 Þriðjudagur 7. júní 2005 Frjósemi mjólkurkúa hefur heldur minnkað með árunum frá því að fyrstu kýrnar voru sæddar hér á landi frá sæð- ingastöð í Eyjafirði 1946. Þá voru 80% af kúnum með kálfi eftir 1. sæðingu. Á 6. áratugnum virðist fanghlutfallið oft hafa verið 67-70% og það þurfti 1,5 sæðingu til að koma fangi í kýrnar. 1976 er farið að nota aðferð til að mæla frjósemi sem not- uð er víða erlendis og er auðveld í notkun. Þá er athugað hve hátt hlutfall af sæddum kúm kemur ekki til endursæðingar innan 60-90 daga (60-90 daga ekki uppbeiðsli, 60-90 daga e. u., 60-90 d. non-return). Þá var eingöngu farið að nota fryst sæði. Á áttunda áratugnum var þetta hlutfall u.þ.b. 74,5%. Það virðist haldast svipað út níunda áratuginn, en á tíunda áratugnum er það nær 72% en þá var bara miðað við 60 daga e.u. Á árinu 2003 var þetta hlut- fall 69,4% og aðeins 66% á Suðurlandi Þó að þessi aðferð til þess að mæla ár- angur í sæðingum sé viðurkennd hefur hún vissa kosti og all mikla galla. Kostirnir eru fyrst og fremst þeir að það geta legið fyrir niðurstöður eftir 2 mánuði. Að óbreyttum aðstæðum er hægt að fá samanburð milli ára. Hins vegar geta orðið verulegar skekkjur í útreikningi á sæðingaárangri með þessu lagi. Kýr sem eru sæddar einu sinni og er síðan ákveðið að slátra koma ekki til endursæðing- ar aftur. Það sama á við kýr sem er haldið undir heimanaut eftir eina sæðingu. Í þess- um tilfellum mælist árangurinn betri en hann er. Verst er þetta ef um er að ræða kerfis- bundin mistök í sæðingum sem verða til þess að notkun á heimanautum eykst og ár- angur sæðingamannsins mælist batnandi vegna þess að kúnum er haldið en koma ekki til endursæðinga. Mesta innbyggða skekkjan með því að mæla 60 daga e.u. er sú staðreynd að mjög hátt hlutfall beiðsla fer framhjá án þess að sjást. Athuganir sem ég gerði á sæðingum hér á landi fyrir all mörgum árum sýndu að milli 25 og 26% af kúnum koma ekki til endursæðingar fyrr en liðnir eru meira en 46 dagar frá síðustu sæðingu. Það segir að raun- verulegt fanghlutfall getur varla hafa verið hærra en 58% á árinu 2003. Því miður hef ég grun um að það sé ennþá lægra. Miðað við 66% 60 daga e.u. eins og það var á Suð- urlandi 2003 halda í hæsta lagi 53% af kún- um við 1. sæðingu. Þetta er nokkuð í sam- ræmi við ýmsar athuganir sem ég hef gert á árangri sæðinga á undanförnum árum og er- lendar athuganir sem benda til þess að helm- ingur af beiðslum uppgötvist ekki. Raun- verulegt fanghlutfall víða erlendis, t.d. í Danmörku og í Holsteinstofninum í Banda- ríkjunum, hefur lengi verið um eða innan við 50%. Nokkrar ástæður geta verið fyrir því að fanghlutfallið hefur lækkað eins og raun ber vitni á þeim næstum 60 árum sem eru síðan sæðingar hófust hér á landi. Árið 1946 var meðalnytin á árskú 2902 kg og 3,74% fita. Ekki veit ég hvenær árs kýrnar voru sæddar, en vegna samgangna verður að teljast líklegt að flestar sæðingarnar hafi verið fram- kvæmdar um sumar. Árið 1980 var nytin 3769 kg á árkú og fitan 4,21%. Árið 2003 mjólkaði árskýrin 5063 kg af 4,05% feitri mjólk. Fram að árinu 2003 höfðu sæðingarn- ar verið smá saman að flytjast yfir á mánuð- ina desember og janúar en sumarsæðingum hafði fækkað. Kúm er eðlilegt að halda seint að sumri, þannig að þær beri í gróandanum næsta vor. Eðlileg nyt miðast við að mjólka kálfinum. Holdakýr sem ber að vori, beiðir ekki fyrr en kálfurinn dregur úr soginu eftir 2-4 mánuði. Ef hún missir kálfinn beiðir hún, en líkurnar á því að hún haldi aukast eftir því sem dreg- ur úr prótínauðgi gróðursins sem hún bítur, náttúran leitast við að hindra hana í að halda fyrr en svo að hún beri í sumarbyrjun. Viðleitni okkar til þess að nýta kúna í okkar þágu hefur gengið gegn náttúrunni. Við höfum markvisst reynt að auka nyt hennar, við höfum viljað láta hana mjólka á veturna því það hentar vinnslunni og neyt- endum. Við bundum hana á bás því þannig fór minnst fyrir henni. Við notum sæðingar með frystu sæði til þess að auka afköstin í kynbótunum. Allt þetta er þess eðlis að í raun og veru er mesta furða að kýrnar skuli yfirleitt bera á þeim tíma sem okkur hentar, þ.e. á haustin og veturna með sem næst 12 - 13 mánaða millibili. Ég geri mér vonir um að í framtíðinni muni frjósemi mjólkurkúnna batna. Þekking okkar á fóðrun er alltaf að batna og vitneskja okkar um gæði fóðursins er að aukast. Áherslan í ræktunarstarfinu er að færast frá því að einblína á nytina og heislufarsþættir eins og frjósemi og júgurheilbrigði koma sterkari inn. Þar þurfa mælingaaðferðirnar að styrkjast. Mjólkuriðnaðurinn er farinn að kalla eftir meiri framleiðslu á sumrin svo burðartíminn dreifist. Fjósin eru að stækka, kýrnar fá hreyfingu, gott legupláss og frjáls- ari aðgang að fóðri. /Þorsteinn Ólafsson Frjósemi mjólkurkúa Og Vodafone hefur hrundið af stað nýrri þjónustu, Og1, sem stuðlar að lækkun á símakostnaði heimila. Má þar nefna gjaldfrjáls mínútugjöld vegna símtala úr GSM í heimilissíma í allt að 60 mínútur á dag, 500 gjaldfrjálsar mínútur milli heimasíma innanlands og 6Mb/s ADSL og ótakmarkað niðurhal á 4.990 kr. á mánuði. Hver heimilissími eða hvert GSM númer fær að auki 120 gjaldfrjálsar mínútur á mánuði í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Dæmi um sparnað: ·Sá sem hringir heim úr farsíma í tvær mínútur á dag sparar um 1.000 krónur á mánuði. Ef 120 gjaldfrjálsar mínútur í heimasíma í útlöndum eru fullnýttar sparast 3.500 krónur á hvern GSM og 2.300 krónur úr heimasíma. Hægt er að spara 900 krónur ef 500 mínútur milli heimsíma eru fullnýttar Til þess að eiga kost á skráningu í Og1 þurfa heimili að hafa GSM, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone. Þeir sem eru með síma eða nettengingu frá vinnuveitanda geta einnig skráð sig í Og1 og njóta þá ávinningsins af þeirri þjónustu sem þeir greiða sjálfir. GSM ·0 kr. heim. Nú hringja allir heim úr GSM án þess að greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag. 0 kr. í vin í útlöndum. Hvert GSM númer fær 120 mínútur á mánuði í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Mánaðargjald fyrir GSM áskrift er 600 kr. Gildir fyrir Frelsisnotendur með 500 kr. Frelsisáskrift. Heimasími ·0 kr. innanlands. 500 mínútur í aðra heimasíma eru innifaldar í mánaðargjaldi. Flestir tala minna en í 500 mínútur á mánuði á milli heimasíma og greiða því aldrei neitt mínútugjald. ·0 kr. í vin í útlöndum. Hver Heimasími fær 120 mínútur á mánuði í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Mánaðargjald fyrir Heimasíma er 1.340 kr. Internet Meiri hraði, frjálst niðurhal og verðþak. Þeir notendur sem skráðir eru í Og1 eiga þess kost að fá 6Mb/s ADSL og ótakmarkað niðurhal á 4.990 kr. á mánuði eða 4Mb/s ADSL og 1GB niðurhal fyrir 3.990 kr. á mánuði með verðtryggingu. ADSL hraði miðast við þjónustusvæði Og Vodafone. /Fréttatilkynning Og1: ný þjónusta frá Og Vodafone Stuðlar að lækkun á símakostnaði heimila Ef kornbændur þurfa að nota varnarefni til að verja akra sína gegn sjúkdómum og illgresi, ættu þeir að hyggja að því núna á næst- unni. Óhætt er að blanda varnar- efnum gegn þessum vágestum saman og úða í einni ferð. Þetta verður að gera þegar gróður er á réttu þroskastigi. Miðað við sáð- tíma og tíðarfar í vor ættu akrar víða um land að vera hæfilega langt komnir til þess á milli 10. og 20. júní. Að sjálf- sögðu getur brugðið frá þessu á stöku stað. Sjúkdómar Eini sjúkdómur- inn, sem veldur tjóni í byggi hér- lendis, er svo- nefndur augn- flekkur. Í göml- um ökrum smitar hann byggið strax sem smáplöntur og sveppurinn vex með plöntunni innan í stöngl- inum. Sveppurinn veldur því að blöðin á bygginu visna og dregur þar með úr uppskeru. Auk þess veikir sveppurinn stöngulinn, svo að sjúkt bygg leggst iðulega flatt. Engin ástæða er til að úða akra fyrsta ár á nýju landi og varla heldur annað árið. En á þriðja ári mun akur í flestum tilvikum vera orðinn fullsmitaður. Skemmdir af völdum sjúkdómsins eru þó mis- miklar eftir aðstæðum. Bygg þol- ir sjúkdóminn til dæmis betur á sandi en á mólendi og mýri. Eins þolir tvíraðabygg sjúkdóminn betur en sexraðabygg að öllu jöfnu. Nefna má líka að sexraða- yrkið Lavrans frá Noregi á að vera ónæmt gegn smiti. Til varnar sveppnum er mælt með efninu Sportak. Í Noregi er ráðlagt að nota 1 lítra á hektara, en í tilraunum á Korpu hefur hálf- ur sá skammtur gefið fullnægj- andi vörn. Til að vinna á sveppn- um má úða hvenær sem er frá því að byggið hefur myndað alla hlið- arsprota sína og allt fram undir skrið. Illgresi Bygg er yfirleitt öflugt í sam- keppni við illgresi og því heyrir frekar til undantekninga að ástæða sé til að nota varnarefni. Þó hefur mælst í tilraunum veru- legur uppskeruauki eftir illgresis- eyðingu í gömlum byggakri. Ef menn búa við gamla byggakra getur því verið ástæða til að grípa til úðadælunnar og slá saman ill- gresiseyðingu og sveppavörn. Þegar úðað er verður illgresið allt að vera komið upp, en best er að það sé smávaxið, arfinn með svona 3-4 blöð. Í tilraunum hefur reynst óhætt að draga úðun nokk- uð fram yfir það þroskastig og er reyndar nauðsynlegt, ef sameina á úðun gegn illgresi og sveppum. Til að eyða illgresi úr korn- ökrum eru notuð varnarefni, sem vinna á tvíkímblaðategundum, en láta einkímblaðajurt, eins og byggið, ósnortið. Fleiri en eitt efni af því tagi hefur verið á markaði undanfarið. Oftast hefur verið notað efni, sem selt er undir heitinu Herbamix. Það er blanda af efnunum Mec- hlorprop og 2,4- D. Ráðlagður skammtur af því er 3-4 lítrar á hektara. Fleiri efni koma til greina, en hafa þarf á hreinu að þau vinni aðeins á tvíkímblaða- gróðri, en séu korninu meinlaus. Hvenær á að úða? Fyrri mörk úðun- artíma miðast við að illgresið sé komið upp og byggið búið að mynda alla sína hliðarsprota. Síðari mörkin mið- ast við það að akurinn þoli um- ferð án þess að troðast til skemmda. Það þýðir að rétti tím- inn til úðunar er rétt áður en stöngullinn á bygginu fer að teygja sig upp. Á góðu vori er það 6-7 vikum eftir sáningu. Svo verður að sjálfsögðu að velja veðrið. Þegar úðað er verð- ur að vera þurrt á og helst þarf hann að hanga þurr nokkra klukkutíma eftir að úðað er. /JH. Rétti tíminn til að úða gegn sjúkdómum og illgresi verður milli 10. og 20. júní Illgresi í kornakri á Korpu 7 vikum eftir sáningu vorið 2003. Þessi akur er fullmikið sprottinn til þess að þola umferð.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.