Bændablaðið - 07.06.2005, Page 26
26 Þriðjudagur 7. júní 2005
Stjórn Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði (SAM) ákvað 19.
maí sl. að mælast til þess að af-
urðastöðvarnar kaupi prótein-
hluta úr 2 milljónum lítrum af
mjólk til viðbótar þeim 4, 5
milljónum lítra af umframmjólk
sem áður var ákveðið að kaupa
á yfirstandandi verðlagsári.
Í bréfi dagsettu 4. febrúar síð-
astliðinn mæltist stjórn SAM til
þess að afurðastöðvar í mjólkur-
iðnaði keyptu prótein úr sem
næmi allt að 4,5 milljónum lítrum
af umframmjólk á yfirstandi verð-
lagsári sem lýkur 31. ágúst næst-
komandi. Jafnframt kom eftirfar-
andi fram í áðurnefndu bréfi :
„Fylgst verður með söluþróun
næstu mánuði og í byrjun maí nk.,
þegar sölutölur aprílmánaðar
liggja fyrir, mun koma í ljós hvort
söluþróunin gefi tilefni til þess að
keypt verði meira prótein úr um-
frammjólk á verðlagsárinu. „
Stjórn SAM hefur farið yfir
framleiðslu- birgða- og söluþróun
mjólkur og mjólkurvara. Ljóst er
að sala sl. 12 mánuði er nú þegar
orðin jafn mikil og greiðslumark
verðlagsársins að viðbættum áður
útgefnum 4,5 millj. lítrum af um-
frammjólk, eða sem nemur um
110,5 millj. lítrar. Auk þess bend-
ir söluáætlun, fram á seinnihluta
yfirstandandi árs, til þess að sala
mjólkurvara verði ríflega 112
millj. lítrar. Því sá stjórnin ástæðu
til að mælast til þess að afurða-
stöðvarnar kaupi próteinhluta úr 2
millj. lítrum til viðbótar, eða alls
6,5 millj. ltr. á yfirstandandi verð-
lagsári.
Uppgjör og uppgjörsreglur
Það mjólkurmagn sem afurða-
stöðvar vilja kaupa með þessum
hætti af mjólkur-framleiðendum, á
yfirstandandi verðlagsári, svarar
til um 6,13% af úthlutuðu 106
millj. ltr greiðslumarki verðlag-
sársins 2004 / 2005 . Hver
greiðslumarkshafi hefur því for-
gang að greiðslu fyrir umfram-
mjólk sem samsvarar því hlutfalli
af greiðslumarki hans, eða 6,13%.
Það sem kann að vera ónotað að
loknu slíku uppgjöri, deilist á þá
framleiðendur sem leggja inn um-
frammjólk og þá í hlutfalli við
greiðslumark þeirra.
Greiðslur til hvers framleið-
anda umframmjólkur sem fellur
innan ofangreinds marks, 6,13%
af rétti hvers um sig, ættu að geta
farið fram samhliða uppgjöri fyrir
innvegna mjólk í hverjum mánuði.
Endanlegt uppgjör og lokagreiðsla
fyrir þá umframmjólk, sem óskað
er eftir, getur ekki farið fram fyrr
en verðlagsárið frá 1. september
2004 til 31. ágúst 2005 er liðið og
fullnaðaruppgjör Bændasamtaka
Íslands liggur fyrir.
Gert er ráð fyrir að sala
mjólkurvara verði ríflega
112 milljónir lítra á árinu
Efnahags- og framfarastofnunin
í París (OECD) áætlar árlega
þann stuðning, sem einstök ríki
og ríkjasambönd veita til bú-
vöruframleiðslu og bænda. Mest
notaði mælikvarðinn er „reikn-
aður framleiðendastuðningur“,
nefndur PSE, sem er skamm-
stöfun á enska heitinu „Produc-
er Support Equivalent“. Þetta
PSE-gildi er svo túlkað á ýmsa
vegu, togað og teygt í umræð-
unni um búvöruverð og land-
búnaðarpólitík.
En hvað er PSE? Það er
mælikvarði á þann tekjuauka,
sem búvöruframleiðendur fá
vegna opinberra aðgerða, ann-
ars vegar með fjárframlögum /
styrkjum (með neikvæðu for-
merki, ef um sértækar álögur er
að ræða), og hins vegar er sk.
markaðsvernd, þ.e. hversu mik-
ið hærra verð bóndinn fær fyrir
afurð sína vegna tollverndar eða
annarra opinberra verðlagsaf-
skipta, borið saman við lægsta
heimsmarkaðsverð, að teknu til-
liti til flutningskostnaðar. Reynt
er að útskýra þetta á meðfylgj-
andi mynd, sem lýsir nokkurn
veginn mati OECD á Íslandi nú.
U.þ.b. 2/3 hlutar af tekjum
bænda eru raktir til opinberra
aðgerða, 1/3 er opinber framlög,
1/3 er reiknuð markaðsvernd og
þar með telst PSE vera 67%, en
1/3 er áætlað markaðsvirði til
framleiðenda á heimsmarkaði.
Matið á markaðsverndinni
er erfiðast og viðurkennt að það
er ónákvæmt og ýmsum ann-
mörkum háð. Síðustu ár hefur
markaðsverndin fyrir íslenskar
búvörur verið áætluð 6-7 millj-
arðar króna. Þá álykta sumir í
umræðunni: Ef við opnum allt
og flytjum inn án tolla, lækkum
við verð á búvörunum um 6-7
milljarða. En svo einfalt er mál-
ið ekki og svona má ekki álykta.
Um er að ræða áætlun framleið-
endaverðs út frá lægsta verði í
heimsviðskiptum. Varan þarf
engan veginn að vera sambæri-
leg og er það örugglega ekki allt-
af. T.d. er mjólkurverð reiknað
út frá undanrennudufti annars
vegar og smjöri hins vegar, þar
sem nýmjólk er lítið í alþjóða-
viðskiptum. Íslendingar mundu
heldur ekki flytja bara inn ódýr-
ustu finnanlegar búvörur.
A.m.k. mundi okkur þá setja
niður á ýmsum sviðum.
Útreikningar OECD þjóna
fyrst og fremst þeim tilgangi að
bera saman stuðninginn hjá
mismunandi ríkjum og hvernig
hann breytist frá einum tíma til
annars. Grunnurinn er sam-
bærilegur fyrir alla, þannig að
þegar skýrslur OECD sýna
u.þ.b. helmingi hærra PSE fyrir
Ísland en Evrópusambandið,
má örugglega álykta að opinber-
ar aðgerðir vegi um helmingi
meir í tekjum bænda hér en þar.
En með því er ekki öll sagan
sögð. Landbúnaðurinn er gjör-
ólíkur hér og þar. Í Evrópu veg-
ur akuryrkjan mun meira.
Reiknað PSE-hlutfall við sauð-
fjárrækt er t.d. svipað hér og í
ESB, mun lægra hér við nauta-
kjötsframleiðslu, og mjög hefur
dregið saman í stuðningi við
svínarækt.
Það er auðvitað staðreynd,
að íslenskur landbúnaður nýtur
mikilla styrkja á alþjóðlegan
mælikvarða. En þar erum við
ekki einir á báti, heldur á sam-
bærilegu plani og önnur vel
stæð, þróuð lönd, sem búa við
óhagstæð ræktunarskilyrði.
Þetta eru Sviss og Noregur, Jap-
an og Suður-Kórea og svo ein-
stök ríki eða svæði innan ESB,
sem ekki eru lengur birtar sjálf-
stæðar niðurstöður fyrir.
Það er fyllilega eðlilegt að
fram fari gagnrýnin umræða
um réttmæti þess að styðja land-
búnað umfram aðrar atvinnu-
greinar. Slík umræða fer alls
staðar fram þar sem líkt háttar
til og hér. En það skiptir máli að
rætt sé á réttum forsendum og
án fordóma. Virtur prófessor
við Háskóla Íslands benti
stjórnmálamönnum á þann
möguleika í Morgunblaðinu fyr-
ir nokkrum dögum að leggja
mætti vegi fyrir reiknuðu mark-
aðsverndina. Er von að öðrum
skjátlist!
Sigurgeir Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri BÍ.
Mat á stuðningi við landbúnað
- hvað er PSE?
P
S
E
=
6
7
%
1.0
2/3
1/3
Opinber
framlög
1/3
Reiknuð
markaðs-
vernd
1/3
Verð-
mæti á
heims-
markaði
1/3
Verð-
mæti á
heims-
markaði
Fram-
leiðslu-
tekjur+
framlög
Fram-
leiðenda-
verð á
Íslandi
Nú á vordögum var sett af stað verkefni sem hefur
það að markmiði að kanna mjaltahraða íslensku
kúnna. Undafarna daga hefur Elin N. Grethards-
dóttir, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands,
safnað gögnum hjá bændum sem eru með tölvu-
stýrð mjaltakerfi. Er skemmst frá því að segja að
verkefninu hefur verið afar vel tekið af bændum og
gengur söfnunin greiðlega. Komin eru gögn frá 45
búum, með upplýsingar um mjaltir 1800 kúa. Aflað
er upplýsinga um nyt kýrinnar (kg mjólkur), há-
marks flæði og meðalflæði (kg/mín) og lengd
mjalta (mín). Þá er skráð hvernig kerfi er á búinu
og hvort um morgun- eða kvöldmjaltir er að ræða.
Eins og við var að búast er gríðarlegur breytileiki í
mjaltahraðanum. Þegar gögnin eru skoðuð eins og
þau koma fyrir, kemur í ljós að mesta hámarks-
flæði er 6,3 kg/mín en það minnsta er 0,7 kg/mín.
Að jafnaði er hámarks flæðihraði við mjaltir 2,68
kg/mín, staðalfrávik er 0,88 og breytileikastuðull
0,328. Ekki er búið að leiðrétta fyrir þáttum sem
ætla má að hafi áhrif á flæðihraðann, t.d. nyt,
mjaltaskeiði eða hvernig mjaltakerfi er á búinu. Þá
verður mjög spennandi að sjá hvernig breytileika
milli feðra kúnna er háttað varðandi mjaltahraðann.
Eitt af markmiðum verkefnisins er að athuga, hvort
hægt er að nýta þessi gögn til að styrkja mat á
mjöltum dætra einstakra nauta. Ljóst er að með sí-
fellt stærri búum er það þáttur sem bændur leggja
aukna áherslu á í ræktunarstarfinu. Gögnin mun El-
in nota í B.S.120 verkefni við Landbúnaðarháskól-
ann, leiðbeinandi hennar er Magnús B. Jónsson,
LBHÍ. Einnig koma að verkefninu Jón V. Jón-
mundsson og Baldur H. Benjamínsson, ráðunautar
hjá Bændasamtökum Íslands. Elin vill koma fram
sérstökum þökkum til þeirra bænda sem lagt hafa
verkefninu lið fyrir góðar móttökur. /BHB.
Mikill breytileiki í mjaltahraða kúnna
Söfnun gagna gengur vel