Bændablaðið - 07.06.2005, Síða 29

Bændablaðið - 07.06.2005, Síða 29
Þriðjudagur 7. júní 2005 29 Til á lager á hagstæðu verði. Joskin haugsuga 8400 L galv………………………… Reck mykjuhræra TRY 500-T55……………………. Reck mykjuhræra TRE-Z 5-T55……………………. Avant 320Plus minivél 20 hö diesel……………… Avant 320 minivél 20 hö bensín…………………… Álrampar fyrir minivélar……………………………….. Niemeyer tromlusláttuvél 185 cm……………….. Niemeyer tromlusláttuvél 225 cm……………….. Mörtl diskasláttuvél 290 cm…………………………. Tonutti 4stj. lyftuttengd heytætla 5,8m………. Niemeyer 6stj. lyftutengd heytætla 6,7m……. Tonutti 5 hjóla lyftut. rakstrarvél 2,8 m………. Tonutti dragtengd 9 hjóla rakstrarvél 6 m….. Maschio hnífatætari 210 cm………………………….. Maschio pinnatætari 300 cm…………………………. Nardi fjórskera plógur 140-160 cm………………. LR 290 vatnsfylltur valti 290 cm…………………… WS 400 ávinnsluherfi (slóði) 4 m…………………. Sigma ýtutennur 2,65 m. með Eurotengi...... SS k3 2ja. stjörnu flekkjari........................ GS 300 flaghefill lyftutengdur. 3 m.............. Maschio kefla sláttuvél 190 cm…………………….. Crosmec sláttuvél m. safnkassa 2,2m…………. Lyftu tengdir dráttarkrókar…………………………… Vökva yfirtengi margar gerðir………………………. 12/24V dieselolíu dælur 45/60 l/min……………. LACOTEC kornmylla PTO 540 ca. 10T/klst…… Girðinganet 6 str. hæð 80 cm. lengd 50m.…. Girðinganet 8 str. hæð 100 cm. lengd 50m... Gaddavír 2x1,6mm 500m…………………………….. Otma M/551-3PA einskorinn brotplógur……….. Michelin traktors dekk 540/65 x 30……………… O R K U T Æ K N I e h f. S ím i: 5 8 7 6 0 6 5 . Kynbótasýningar hrossa hafa staðið yfir undanfarnar vikur og hafa hundruð hrossa verið sýnd víðsvegar um land. Sýningar standa fram yfir miðjan júní, en sú síðasta fer fram í Kópavogi líkt og undanfarin ár. Nú þegar hefur fjöldi hrossa hlotið góða dóma og einna mesta athygli hefur vakið dómur Núma frá Þóroddsstöðum sem sýndur var í Hafnarfirði. Númi, sem er 12 vetra gamall, var síðast sýndur sem einstaklingur árið 2000 og hlaut þá í aðaleinkunn 8,54, auk þess sem hann hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti á Hellu í fyrra. Að þessu sinni hlaut Númi 8,66 í aðaleinkunn, með 8,48 fyrir sköpulag og 8,78 fyrir hæfileika. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir skeið og fet og hækkaði upp í 9,0 fyrir háls og herðar. Númi er undan Svarti frá Una- læk og Glímu frá Laugarvatni og hefur hann verið í eigu hrossaræktarsamtaka Suður- lands og Eyfirðinga og Þingey- inga undanfarin ár, en ræktandi hans er Bjarni Þorkelsson á Þór- oddsstöðum. Númi var nýverið seldur til Danmerkur og fer lík- lega utan fljótlega og má leiða líkum að því að hann verði full- trúi Íslands í elsta flokki stóð- hesta á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð síðar í sumar. Sýnandi Núma var Daníel Jónsson, en hann varð einmitt sigurvegari í sama flokki á síðasta heims- meistaramóti á gæðingnum Sjóla frá Dalbæ sem hlaut einnig 8,66 í aðaleinkunn, meteinkunn í þeim flokki, sem nú hefur verið jöfnuð af Núma. Á kynbótasýningunni í Hafnar- firði komu einnig fram góðar ung- ar hryssur sem gaman verður að fylgjast með, auk þess sem athygl- isverðir einstaklingar hafa komið fram á öllum sýningum vorsins eins og venja er. Í sumar verður haldið fjórðungsmót Vestlendinga á Kaldármelum og kemur í ljós hvaða hross hafa unnið sér inn þátttökurétt þar þegar kynbótasýn- ingunum lýkur í júní. Nú þegar hafa góð hross í eigu Vestlendinga komið fram, s.s. Sólon frá Skáney sem hlaut 8,39 í aðaleinkunn fyrir skemmstu og verður spennandi að sjá hverju Vestlendingar tefla fram á mótinu í sumar. Þeir sem vilja fylgjast með kynbótasýningum og hafa aðgang að öllum dómum um leið og þeir eru skráðir inn í dómpalli geta gert það í gegnum gagnabankann Worldfeng á slóðinni www.world- fengur.com. Félagar í Félagi hrossabænda fá ókeypis aðgang að gagnagrunninum, en aðrir geta keypt áskrift hjá Bændasamtökun- um þar sem allar nánari upplýsing- ar fást. /HGG Kynbótasýning- ar í fullum gangi -Númi hlaut meteinkunn Hin stórglæsilega Dögg frá Breiðholti vakti mikla lukku á héraðssýningu á Sörlastöðum. Hún er aðeins fjögurra vetra gömul, undan Orra frá Þúfu og Hrund frá Torfunesi. Eigandi og ræktandi er Gunnar Ingvason, en knapi er Jón Páll Sveinsson. Bændablaðsmynd: HGG Þegar fulltrúi Bændablaðsins var á ferð í hesthúsahverfi Gust- ara í Kópavogi fyrir skemmstu stóð þar yfir gæðingakeppni fé- lagsins. Meðal keppenda voru vinirnir Bára Bryndís Kristjáns- dóttir og Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson og höfðu þau ný- lokið keppni í úrslitum þegar Bændablaðið tók þau tali. Þau hafa bæði verið virkir keppendur undanfarin ár og staðið sig vel og að þessu sinni hafði Bjarnleifur sigur í unglingaflokki á gæðingi sínum Roða frá Ármóti og Bára Bryndís varð fjórða í sama flokki á ungum og efnileg- um hesti sem hún eignaðist í vet- ur, Stefni frá Hofi í Öræfum. Að- spurð segja þau hestamennskuna frábært áhugamál sem snúist ekki bara um keppni og þau eru dugleg að ríða út alla daga. Bjarnleifur hefur undanfarin sumur starfað í Halakoti í Flóa og verið í læri hjá ábúendum þar sem stunda tamn- ingar, en hann hefur ekki enn gert upp við sig hvað hann gerir í sum- ar, en þó er ljóst að það mun hafa eitthvað með hross að gera. Bára Bryndís er á leið í sumarvinnu á Efri-Brúnavöllum á Skeiðum og hlakkar mikið til. „Það er mjög spennandi að fá að vera í sveit í sumar og ég fæ að taka hestinn minn með og læri vonandi helling á dvölinni.“ Þau eru sammála um að það sé frábært fyrir borgarbörn að dvelja í sveit og fyrir krakka sem hafa áhuga á hestum sé ekki vafamál að best sé að komast í vinnu þar sem stundaðar eru tamningar og útreiðar, enda sé reynslan besti skólinn þegar kemur að hesta- mennskunni. Bændablaðið þakkar þessum hressu vinum spjallið og óskar þeim góðs gengis í hesta- mennskunni í sumar. /HGG Bjarnleifur Smári og Bára Bryndís með hesta sína Roða og Stefni að lok- inni keppni. Bændablaðsmynd: HGG Spennandi að vinna í sveit          !""# $% !"""   &&&'  (   )'  G   IBA>   -    Stóðhestar til notkunar Sörlatungu í Holtum Rangárþ. Þokki frá Sörlatungu Tölt. 8,5 Brokk. 8,5 Stökk. 8,5 Vilji og Geðsl. 8,5 Fegurð í reið 9,0 Kostir 8,03 Sköpul.7,91 Segull frá Sörlatungu Tölt. 9.0 Brokk 8,5 stökk 9,0 Vilji og geðsl. 8,5 Fegurð í reið 8,5 kostir 8,06 sköpul. 7,93 Verð á folatolli kr. kr. 25.000 Uppl. Þorgrímur og Sólveig s. 89-21270 og 89-21271          !""# $% !"""   &&&'  (   )'  3 HK 3 -  3 $ 3 3   3   3     ,  DCK   

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.