Bændablaðið - 07.06.2005, Síða 30
30 Þriðjudagur 7. júní 2005
Gisting í öllum gæðaflokkum
En hvað hafa bændur að bjóða
uppá? Hægt er að finna gist-
ingu í öllum gæðaflokkum hjá
Ferðaþjónustu bænda, frá
heimagistingu til flottustu hót-
elgistingar og sumarhúsa í
hinum ýmsu myndum. Mögu-
leikarnir í gistingu eru fjöl-
margir og hægur leikur er að
finna gistingu sem hentar
hverjum og einum. Þá má
ekki gleyma nábýlinu við
náttúruna sem bændur hafa
uppá að bjóða. Ferðaþjónusta
meðal bænda í landinu er
kannski ekki nógu sýnileg
sem búgrein, því bændur eru
ekki bara í hefðbundnum bú-
störfum heldur einnig í mikilli
ferðaþjónustu og stunda bú-
drýgindi með framleiðslu
heimabúvara. Þannig er ferða-
þjónusta bænda ákveðinn
gluggi fyrir fólk til að kynnast
landbúnaði. Hægt er að fá að
kynnast hefðum og verklagi
til sveita og eru tamningar á
hestum, heyskapur og mjaltir
atriði sem hægt er að fá að
komast í snertingu við með
því að nýta sér ferðaþjónustu
bænda.
Afþreying af ýmsum toga
Segja má að ferðaþjónusta
meðal bænda sé ákveðinn
angi af landbúnaði þar sem
ferðaþjónustubændur nýta
landið sitt á annan hátt en
tíðkast til landbúnaðar. Þannig
er boðið upp á afþreyingu af
öllu tagi, svo sem hestaleigu,
gönguferðir, hellaskoðun,
snjósleðaferðir, veiði í ám að
ógleymdum húsdýrunum.
Þegar kemur að afþreyingu
fyrir ferðamenn er óhætt að
segja að Gunnar Th. Sigurðs-
son, Leifsstöðum í Eyjafirði,
sé stórhuga maður, því síðasta
sumar hóf hann golfvallar-
framkvæmdir á jörð sinni og
stefnir að því að opna völlinn
núna í sumar. Gunnar rekur
einnig glæsilegt gistihús. Á
sumrin tekur hann því á móti
kylfingum ásamt ferðamönn-
um innlendum jafnt sem út-
lendum og á veturna eru það
skíðamenn sem sækja hann
heim. Ferðaþjónusta allt árið
um kring hjá Gunnari.
Hver staður hefur sinn
sjarma
Jóhannes Kristjánsson er einn
stærsti aðilinn að Ferðaþjón-
ustu bænda og rekur glæsilegt
hótel að Höfðabrekku við Vík
í Mýrdal. Hann hittir naglann
á höfuðið þegar kemur að því
að útskýrir í hverju ferðaþjón-
usta bænda felst. "Líkja má
ferðaþjónustu bænda við þeg-
ar komið var í verslun í gamla
daga og hægt var að fá klauf-
hamar upp í gjafavöru og allt
þar á milli. Ég held að styrkur
ferðaþjónustunnar sé sá hvað
fjölbreytileikinn er mikill. Við
erum að bjóða upp á allt
mögulegt í gistingu, mat og
afþreyingu og hver staður hef-
ur þannig sinn sjarma," segir
hann.
Umhverfisvæn ferðaþjónusta
Umhverfismál skipa stóran
sess hjá Ferðaþjónustu
bænda og má segja að ferða-
þjónustubændur séu í farar-
broddi þegar kemur að um-
hverfisvænni ferðaþjónustu
hér á landi. Bændur hafa
unnið markvisst að því und-
anfarin ár að halda umhverfi
sínu hreinu og aðlaðandi og
halda úti sérstakri umhverfis-
stefnu. Þannig er stuðlað að
verndun á menningar- og
náttúruminjum og leitast er
við að nota endurnýjanlegar
auðlindir við reksturinn.
Stunduð eru græn innkaup,
ef svo má að orði komast, og
eru gestir virkjaðir til um-
hverfisverndar með leiðbein-
ingum og fræðslu svo eitt-
hvað sé nefnt. Ferðaþjónusta
bænda telur umhverfisvæna
ferðaþjónustu skipta miklu
máli og með öflugri stefnu í
þeim málum eru gæði þeirrar
þjónustu sem boðið er upp á
aukin til muna.
Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi
hjá Ferðaþjónustu bænda
Sumarið 2004 stóðu yfir
miklar golfvallarframkvæmdir
við Leifsstaði í Eyjafirði.
Myndin var tekin þegar
framkvæmdir stóðu sem
hæst, en völlurinn verður
opnaður á sunnudaginn.
Höfðinginn á Höfðabrekku,
Jóhannes Kristjánsson:
"Styrkur ferðaþjónustu
bænda er sá að við erum í
raun að bjóða upp á allt
mögulegt í gistingu, mat og
afþreyingu."
Nábýli landbúnaðar og
ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Að Stóru Mörk III undir vestur
Eyjafjöllum heldur Ragna
Aðalbjörnsdóttir úti
myndarlegri heimagistingu.
Hjá henni má segja að nábýli
landbúnaðar og
ferðaþjónustu sé í fyrirrúmi,
enda rekur hún kúabú með
glæsibrag.
Stundum er sagt að Ferðaþjónusta bænda sé stærsta hótel á Íslandi. Auðvitaðer það ekki svo, en hitt er annað mál að 150 bændur í landinu eru aðilar aðferðaþjónustunni og eru gistirými hátt í 4000 talsins. Þannig að "hótelið" er
vissulega stórt og teygir anga sína um land allt. Bændagisting er vel þekkt víða í
Evrópu og hingað til hafa útlendingar verið í meirihluta þeirra sem sótt hafa til
Ferðaþjónustu bænda. Íslendingar hafa hins vegar verið að sækja í sig veðrið und-
anfarin ár og eru farnir að uppgötva kosti bændagistingar og alla þá möguleika sem
hún hefur uppá að bjóða.Ferðaþjónusta bænda hlaut umhverfisverðlaun
Ferðamálaráðs á sl. ári, skandinavisku ferðaverðlaunin í mars og Uppsveitarbrosið
sem Ferðamálasamtök uppsveita Árnessýslu veittu sl. haust.