Bændablaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 28. mars 2006
Ólafur Þór Hauksson, sýslu-
maður á Akranesi, segir að allt
fram á síðustu misseri hafi
geymsla skotvopna víða hér á
landi ekki verið í lagi. En við
voðaskot sem átti sér stað á Sel-
fossi fyrir tveimur árum hafi
verið ákveðið að herða mjög
reglur um geymslu skotvopna.
Hann segist hafa gert könnun í
sínu umdæmi og þá hafi komið
í ljós að víða var þetta í stak-
asta lagi og aðrir tilbúnir til að
gera þær umbætur sem þurfti.
Hann segir að það sé sín reynsla
að þeir sem hafa byssuleyfi og
eru með lögleg skotvopn sé
hópur sem vill hafa sín mál al-
gerlega í lagi. Þetta sé löghlýð-
inn hópur. Þeir sem eru með
óskráða og ólögmæta byssu
fara ekki eftir neinum lögum
eða reglugerðum um meðferð
skotvopna. Viðurlög við að vera
með ólöglega byssu og án
byssuleyfis eru sektir og skot-
vopnin eru gerð upptæk.
Læst húsnæði
Ólafur Þór segir að samkvæmt
23. gr. vopnalaga nr. 16/1998 sbr.
Og 33. gr. reglugerðar nr.
787/1998, skulu eigendur eða
umráðamenn skotvopna og skot-
færa ábyrgjast vörslur þeirra og
sjá um að óviðkomandi nái ekki
til þeirra. Í því skyni skal hús-
næði sem geymir skotvopn og
skotfæri ávallt vera læst ef íbúar
eru fjarverandi. Við lengri fjar-
veru skal auk þess gera skotvopn
óvirkt, t.d. með því að fjarlæga af
því nauðsynlega hluta, aðra en
láshús.
Þeim sem eiga eitt til þrjú
skotvopn og geyma þau ekki í
sérútbúnum vopnaskáp er skylt
að hafa gikkslás á vopnum sínum
þegar þau eru ekki í notkun. Jafn-
framt er þeim skylt að geyma þau
í læstum hirslum.
Þeim sem á fleiri en þrjú skot-
vopn er skylt að geyma þau í sér-
útbúnum vopnaskáp sem sam-
þykktur er af lögreglustjóra. Með
vísan til ofanritaðs sagðist Ólafur
Þór hafa ákveðið eftirfarandi um
búnað vopnaskápa og geymslu
skotfæra í sínu umdæmi:
Vopnaskápur
Skápurinn skal gerður úr stáli og
þykkt hliða, gafls og hurðar skal vera
að lágmarki 3 mm. Lamir skulu vera
innfelldar. Hann skal búinn minnst
einum lykla- og/eða talnalás sem
skal vera innfelldur í hurð. Hengilás-
ar eru ekki leyfðir. Hann skal vera
boltaður og/ eða steyptur í vegg eða
gólf ef eigin þyngd er minni en 150
kg. Hann skal vera með a.m.k.
þriggja punkta læsingu (pinnar/bolt-
ar), þar af skal einn ganga í hurða-
karm lásmegin.
Geymsla skotfæra
Skotfæri skulu geymd í læstu hólfi
inni í sérútbúnum samþykktum
vopnaskáp eða í læstum skáp eða
annarskonar læstum hirslum sem
festar eru í vegg eða gólf. Heimilt
er að tveir eða fleiri aðilar með
skotvopna-leyfi samnýti skot-
vopnaskáp enda hafi þeir einir að-
gang að honum og hver og einn
eigi eða hafi afnotaheimild að öll-
um vopnum sem geymd eru í
skápnum.
Lögreglustjóri getur heimilað
geymslu skotvopna í sérútbúnum
herbergjum (geymslum) ef fyrir
gluggum eru rimlar og fyrir her-
berginu er sérstök öryggishurð.
Lögreglustjóri getur samþykkt
vopnaskápa sem fluttir hafa verið
inn eða framleiddir fyrir gildistöku
þessara reglna þótt þeir uppfylli
ekki ofangreind ákvæði.
Jói byssusmiður stend-
ur hér við sterklegan
byssuskáp en sam-
kvæmt lögum verða
menn að kaupa byssu-
skáp þegar þeir eignast
fjórðu byssuna. Jói
sagði það sína skoðun
að menn ættu að kaupa
byssuskáp um leið og
þeir keyptu fyrstu byss-
una. Hætta væri á að
menn misstu áhugann á
skotveiði og hentu
byssunni niður í
geymslu þar sem hver
sem er gæti farið að
fikta við hana. Svona
byssuskápur eins og
Jói stendur við kostar
37 þúsund krónur.
Reglur um geymslu
skotvopna hafa
verið hertar
Gaulverjabæjarskóli í Gaul-
verjabæjarhreppi hefur nú feng-
ið nýtt hlutverk því í skólanum
hefur verið opnuð sérdeild ætluð
sunnlenskum börnum og ung-
lingum með hegðunar- og til-
finningavanda.
Kristín Hreinsdóttir, forstöðu-
maður Skólaskrifstofu Suðurlands,
er forstöðumaður skólans en deild-
arstjóri er Kristín Guðmundsdóttir
atferlisfræðingur. Kristín sér um
daglega umsjón skólans. Alls hafa
átta nemendum verið veitt skóla-
vist í deildinni. Nemendur stunda
nám og meðferð við skólann í 3-6
mánuði og snúa svo aftur í sinn
heimaskóla. Meðferðin í skólanum
er þríþætt og skiptist í félagsfærni-
þjálfun, reiðistjórnun og siðferðis-
þjálfun. Unnið er samkvæmt með-
ferðarkerfinu ART (Aggression
Replacement Training), sem hefur
verið að ryðja sér til rúms víða í
Evrópu og Bandaríkjunum. ART
er, eins og nafnið bendir til, beint
fyrst og fremst gegn árásargirni.
Meðferðin fer fram í 45 mín. Lot-
um, þrisvar til fjórum sinnum í
viku. /MHH
Gaulverjabæjarskóli, sem hefur nú fengið nýtt hlutverk en í dag er hann fyrir sunnlensk börn og unglinga á aldr-
inum 10 til 16 ára sem etja við hegðunar- og tilfinningavanda. Bændablaðsmynd/MHH
Sérdeild fyrir sunnlensk börn í Gaulverjabæjarskóla
Sýningin „Verk og vit“
Bændablaðið brá sér á sýninguna Verk og vit sem var haldin í nýju
íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal á dögunum. Á sýningunni var
megináhersla lögð á fagmennsku, aukna þekkingu og tækninýjungar í
byggingariðnaði og mannvirkjagerð en mjög örar framfarir hafa orðið
á þessu sviði undanfarin ár. Áhugaverðar nýjungar í íslenskri fram-
leiðslu voru kynntar, auk véla, tækja, hönnunar, ráðgjafar og þjónustu,
sem ýmis fyrirtæki bjóða. Skipulagsmál sveitarfélaga fengu sérstakan
sess.
Hér eru þeir Kjartan Kristófersson, starfsmaður í varahlutaverslun
Vélaborgar, og Magnús Sigurðsson, sölumaður búvéla. Kjartan sagði
að á þessari sýningu væru einkum verktakar í byggingaiðnaði, en
hann lét vel af sér og aðsókn í básinn.
Borgarplast var mætt til leiks. F.v. Sigurður Ástvaldsson sölumaður,
Arnar Már Gíslason sölumaður og Guðni Þórðarson, forstjóri Borgar-
plasts. Á sýningunni voru einkum brunnar og fl. sem sveitarfélög nota
í starfsemi sinni, en eins og kunnugt er framleiðir Borgarplast einnig
rotþrær og fiskiker, sem eru stærsti hluti framleiðslunnar.
Starfsmenn Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki kynntu steinull í
gríð og erg. F.v. Magnús Sigfússon sölustjóri og Trausti Jóel Helgason
skrifstofustjóri. „Kostir steinullarinnar eru miklir en það þarf stöðugt
að vera að minna á sig,“ sagði Magnús sölustjóri.
Lesendur Bændablaðsins þekkja vel fyrirtækið Landstólpa, sem er í
eigu Arnars Bjarna Eiríkssonar í Gunnbjarnarholti. Landstólpi var
þarna á sinni fyrstu „stóru“ sýningu. F.v. Sigrún Símonardóttir bókari,
Rúnar Skarphéðinsson sölumaður, Þröstur Jónsson sölumaður, Ás-
geir Eiríksson og Arnar Bjarni Eiríksson framkvæmdastjóri. Land-
stólpafólkið lét vel af sér. Það fengi mikið af fyrirspurnum sem er jú
upphafið að frekari viðskiptum.