Bændablaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 26
26 Þriðjudagur 28. mars 2006
Erfðabreyttar
jurtir sem gefa
ekki spírunar-
hæft fræ
Nokkur ár eru síðan bandaríska
fyrirtækið Monsanto setti á
markað erfðabreytta stofna
nytjajurta, svo sem af maís og
sojabaunum, en einnig nýlega
hrísgrjónum, sem þola jurta-
varnarefnið Roundup. Út-
breiðsla þessara erfðabreyttu
stofna er mikil í nokkrum lönd-
um, þar á meðal í Bandaríkjun-
um, Argentínu, Brasilíu, og
voru þeir ræktaðir á 80 - 90
milljón hekturum árið 2005 (sjá
síðasta Bændablað, nr. 5/2006,
bls. 20). Í sumum löndum, m.a.
í Evrópu, mætir þessi ræktun
hins vegar andbyr.
Fyrirtækið Monsanto hefur
fylgt því fast eftir að krefja einka-
leyfisgjalds af erfðabreyttum
stofnum sínum og staðið í mála-
ferlum í því sambandi.
Nú hefur fyrirtækið hins vegar
gengið skrefi lengra og sett á
markað erfðabreytta stofna nytja-
jurta sem bera fræ sem spírar
ekki. Andstæðingar erfðabreyttrar
ræktunar hafa varað við því að
þessi eiginleiki, að gefa fræ sem
spírar ekki, geti borist í náttúru-
lega stofna og skaðað þannig líf-
ríkið.
Á alþjóðlegri umhverfisráð-
stefnu í Jóhannesarborg árið 2002
beitti Noregur sér gegn því að all-
ir alþjóðlegir umhverfissáttmálar
yrðu lagaðir að regluverki Al-
þjóða viðskiptastofnunarinnar,
WTO. Margir vona að Noregur
geti nú á sama hátt barist gegn
því að leyft verði að rækta óspír-
unarhæft frá.
Árið 2000 var ákveðið að
fresta því að leyfa notkun þessar-
ar tækni. Nú er hins vegar hætta á
að sú frestun verði felld niður. Sú
ákvörðun verður tekin á ráðstefnu
í Brasilíu í lok mars á þessu ári.
Líftækniiðnaðurinn berst af
öllum kröftum fyrir því að bann-
inu verði aflétt og hefur fengið
Kanada, Nýja-Sjáland og Ástralíu
á sitt band í þeirri baráttu, og hef-
ur þegar náð þeim áfangasigri að
losa um bannið. Noregur stóð þó
gegn þeirri ákvörðun.
(Heimild: Nationen, Ósló).
Sveitarstjórn Húnaþings vestra
gengst fyrir viðamikilli ráð-
stefnu um landbúnað og dreif-
býli í sveitarfélaginu þriðjudag-
inn 11. apríl næstkomandi í Fé-
lagsheimilinu á Hvammstanga.
Elín Líndal, oddviti í Húnaþingi
vestra, sagði í samtali við Bænda-
blaðið að svipuð ráðstefna hefði
verið haldin á síðasta kjörtímabili
og væru menn sammála um að
hún hefði skilað miklu fyrir sveit-
arfélagið.
Hún sagði að á ráðstefnunni nú
yrði fjallað um hinn hefðbundna
landbúnað í sveitarfélaginu.
Fyrirlesarar eru margir og fjallað
jafnt um núverandi stöðu og
framtíðarsýn.
,,Síðan er það þessi gífurlega
uppbygging í ferðaþjónustu á
svæðinu sem er einn af okkar stóru
vaxtarbroddum. Um hana verður
mikið fjallað á ráðstefnunni.
Ferðaþjónustan er vaxandi at-
vinnugrein í dreifbýlinu, ekki bara
hjá okkur heldur um allt land,“
sagði Elín.
Hún sagðist sannfærð um að
fyrirlestrar og pallborðumræður á
ráðstefnunni muni skilja mikið eft-
ir sig af hugmyndum og efni fólki
til umhugsunar.
Ráðstefna um landbúnað og
dreifbýli í Húnaþingi vestra
Grýtubakka-
hreppur
Skorað á Símann
að koma upp
ADSL tengingu
Fyrir nokkru barst sveitarstjórn
Grýtubakkahrepps undirskrift-
arlisti þar sem 112 íbúar sveitar-
félagsins skora á Símann að
koma upp ADSL tengingu, bæði
tölvu- og sjónvarpssambandi á
Grenivík, hið fyrsta.
Guðný Sverrisdóttir sveitar-
stjóri sagðist hafa komið áskorun-
inni á framfæri en ekki fengið svar
ennþá. Áður hefur verið rætt við
forráðamenn Símanns um þetta
mál og sagði Guðný að þeir hafi
svo sem tekið vel í málið en það
virðist vera spurning um hvaða
tækni þarf að nota til að koma
sambandinu á.
,,Við erum vissulega orðin
langeyg eftir þessu því okkur
finnst það mikilvægt byggðamál
að vera með sæmileg fjarskipti,“
sagði Guðný Sverrisdóttir.
Bændablaðið
kemur næst út
þriðjudaginn
11. apríl